Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.10.1925, Side 7

Sameiningin - 01.10.1925, Side 7
2C1 að hann væri sendur af GuSi, aS hann væri í .sérstakri merkingu Guðs sonur (guðssonurww), að hann væri Messías (mannssonur- inn) og að í þeirri trúí skyldu þeir útbreiða ríki hans um alla ver- öldina. ------------- Af þeim einu heimildum, sem1 vér höfum fyrir lífi og kenn- ingu Jesú, er það ljóst, að Jesús hefi.r tileinkað sér eiginleika guð- dómsins, og þeir, sem þektu hann ibezt, segja svo frá, aS hann hafi gert sig jafnan föðurnum. Jesús' opinberar Guð með því aS sýna mönnunum sjálfan sig. Fyrir því er hann sjálfur aðal- atriði guðfræðinnar. Þessari kenning Krists um sjálfan -hann hafa lærisveinar hans trúað alt til þessa dags. Þvi sannfærðari sem menn hafa orðið’ um guðdóm frelsarans', því betur hafa þeir unnið að því, að boða hann heiminum og fá mennina til að gefa sig- undir vald hans. í trúnni á guðdóm Krists hefir kirkjan staðið um allar aldir og breiðst út um veröldina. Margt má segja um sundur- lyndi innan kirkjunnar og deilur milli kirkjuflokkanna. Því undursamlegra er það þá, að nærri undantekningarlaust hefir allri kristni ávalt komið saman um þetta eina: gufídóm frels- arans. Um það bera samhljóða vitnisburð játningar allra kirkjudeildanna á öllum tímum. Og hvað sem menn annars segja um gildi trúarjátninganna, kemur öllum saman um, að þær séu vitnisburður um trú játenda sinna. Allar stórdeildir fornkirkjunnar, gríska kirkjan, rómverska kirkjan og Armeníu- kirkjan, viðurkendu ummæli Níkeu-játningarinnar um guðdóm Jesú. Þegar siðbótin lcom, var mörgu hafnað af kenningum kaþólsku kirkjunnar, en allar deildir Mótmælenda kirkjunnar voru sammála um það, að gera. guðdóm Jesú að hornsteini trú- arinnar. Svo er enn í öllum löndum kristninnar, nær því und- antekningarlaust, og gildir ja.fnt um nýja guðfræði og gamla. Mótmæli gegn þessum samhljóða vitnisburði Krists sjálfs, postula hans til) forna og kristninnar á öllum öldum, geta verið með þrennu móti: i. Það má halda þvi fram, að Jesús hafi haft rangt fyrir sér — hafi misskilið bæði Guð og sjálfan sig. Það virðist manni vera nokkuð hrottaleg tilgáta. Með því er það fullyrt, að vitrasti og bezti fræðari mannanna, höfundur þeirra trúar- bragða, sem lyft hafa anda mannsins hæst, og hafið mann’kyn- ið á það æðsta stig, menningar og siðgæðis, sem það hefir náð, —i hafi verið sjálfur blektur af draumórum, sem ekki hafi viö nokkur rök að styðjast. Hann hafi misskiliS Guð, misskilið sjálfan sig, misskiliö guðssambandið; og með honum og fyrir

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.