Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1927, Qupperneq 14

Sameiningin - 01.12.1927, Qupperneq 14
364 sem til er við böli og syncl. “Sjá það Guðs lamb, sem ber heimsins synd!” Svo liljóða orð þess, er skírði lýð- inn iðrunarskírn í Jórdan forðum, þess manns, er fékk ]>að háleita hlutverk að vera brautryðjandi Jesú sjálfs. En það er ekki einasta, að Kristur taki á sig syndabyrði alls heimsins, ber hana og líður fyrir synduga menn, heldur er hann sá eini, er birtir mönnunum alfullkomið réttlætis lögmál, þá kennirig réttlætis og miskunnar, er ein nægir til að endurfæða hinn einstaka mann og fegra og betra alt mannlíf. Ef þjóðirnar vildu framganga í því ljósi, sem Réttlætissólin varpar yfir heimsmálin, þá yrði sannarlega friður á jörðu 0g velþóknun Guðs yfir mönnunum. En það er ekki það einasta, að Réttlætissólin dreifi vanþekkingar myrkrinu og' synda myrkrinu, sýni liinn rétta veg hjálpræðisins og hvernig mannlífið geti orðið réttlætt fyrir Guði, heldur rís hún upp með græðslu und- ir vængjum sínum. 0g mannlífið er sífelt í sárum. Þau sundurflakandi sár einstaklinga og heilla þjóða, er Jesús einn megnugur að græða. Heimsstríðið mikla veitti mörgum stór sár, er seint vilja gróa. Auk þess er mannlífið á jörðunni óaflátanlega sorgum hlaðið. Sárin 0g sorgirnar læknar Jesús og hann einn. Einungis með því að vera í för með honum, er manni óhætt. Undir merki hans ber oss öllum að vera. Þetta heilaga mál um Réttlætissólina, í hinum síð- asta Messíasar-spádómi hins eldra sáttmála, minnir mjög sterklega á fagnaðarefni jólanna. Birtan, fögnuðurinn, lofsöngurinn 0g boðskapurinn á Betlehemsvöllum, hina fyrstu jólanótt, er alt í nákvæmu samræmi við þenna dýrðlega spádóm. Pagnaðarefnisins, er báðar frásög- urnar flytja, þurfum vér að geta notið og það ríkulega og hjartanlega. Fyrir óumræðilega elsku Föðurins blessaða, í nafni Sonarins elskaða og með endurfæðandi og helgandi náðarupplýsing í Heilögúm Anda, verður oss þá alt frelsismál Guðs að sönnum veruleika. Þá verður fæðingarhátíð Drottins oss öllum sann- arlega—gleðileg jól.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.