Fréttablaðið - 22.03.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 22.03.2011, Blaðsíða 34
22. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR18 BAKÞANKAR sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. íþrótt, 6. frá, 8. þvottur, 9. farvegur, 11. umhverfis, 12. bit, 14. enn lengur, 16. strit, 17. þjálfa, 18. goð, 20. persónufornafn, 21. ögn. LÓÐRÉTT 1. þungi, 3. pot, 4. reiðufé, 5. fát, 7. þögull, 10. gras, 13. frjó, 15. kviður, 16. temja, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. golf, 6. af, 8. tau, 9. rás, 11. um, 12. glefs, 14. áfram, 16. at, 17. æfa, 18. guð, 20. ég, 21. arða. LÓÐRÉTT: 1. farg, 3. ot, 4. lausafé, 5. fum, 7. fálátur, 10. sef, 13. fræ, 15. magi, 16. aga, 19. ðð. Þá er komið að föstudags-hryll- ingnum. Og í kvöld sýnum við Karftöfluflysjara- fjöldamorðin í Texas. Langar þig að dansa? Hélt þú ætl- aðir aldrei að spyrja! Nei! Það þarf að þrífa á svæði þrjú! Ég er að gera háls- menn í Valentínusar- gjöf handa mömmu. Í hvert skipti sem hún setur það á sig mun hún rifja það upp hversu mikill tími fór í að gera það. Hvað ert þú að gera handa henni? Súkkulaði. Heimska hálsmen. Fjölskylda mín fór fyrir skömmu til Ameríku. Við lentum í Seattle og ég átti von á hefðbundinni stórflugvallafýlu starfsmanna, sem tækju út pirring sinn á okkur ferðalöngum. Nei, ónei. Elsku- legt fólk mætti þreyttum útlendingum. Einn sagði með hlýju í augum „verið vel- komin“ og annar sagði „njótið verunn- ar í Bandaríkjunum“. Takk, þetta var óvænt móttaka. Smáfólkið fékk líka sinn skammt, „fínn hattur“ og „falleg peysa“. Jákvæðnin var skýr og almenn. SVO héldum við áfram og enduðum suður við landamæri Mexíkó og bleytt- um tærnar í Kyrrahafinu. Herra Fúll og frú Fýla virtust gersamlega týnd. Var eitthvað að? Fólk hafði getu til að sjá, virða og hrósa. Jafnvel í atinu í Disneylandi og Lego- landi tjáðu vandalausir ef eitt- hvað hreif. Svo vorum við boðin inn á heimili vina okkar og eflingarorðin flugu. ÞESSI áberandi jákvæðni og hrós urðu mér íhugunarefni. Síðustu mánuði hafa frétta- tímarnir verið samfeldur rosi, traust hefur trosnað og Fúll á móti farið hamförum. En þó margt sé okkur mótdrægt er óþarfi að temja sér nábít í tengslum við fólk. Börnin hafa þörf fyrir að við sjáum þau og við bregðumst við þegar þau gera vel og vinna sigra í smáu eða stóru. Nábíturinn á ekki heldur að stjórna atvinnulífi, stofnunum og þ.m.t. fjöl- miðlum. Við megum og þurfum að tjá fólki, að það og verk þess veki hrifningu og gleði. Maki þinn þarfnast þess að þú sjáir hann og bregðist við með jákvæð- um hætti. Fólk við búðarkassa tekur jafnan vel við þegar hlý orð falla í þess garð. HRÓS varðar ekki málæði og yfirborðs- tjáningu, heldur að temja sér ákveðna afstöðu til annarra. Fólk er dýrmæti og þannig skapað. Allir þarfnast orða. Við lifum í krafti tengsla, höfum þörf fyrir að vera séð, að lífshættir, hæfileikar, eigindir og verk séu færð í tal. Öllum verður gott af því, sem hefur verið kall- að H-vítamín – hrós. Það er trúverðug lífsleikni að næra aðra með orðum þegar vert er og ástæða til. Æfðu þig og temdu þér að strjúka með orðum. Slíkt atferli og tjáning er smitandi og samfélags- eflandi. H-ið vinnur á öllum gerðum af nábít og jafnvel Fúll og Fýla skána. Verið velkomin. Þú ert flott og frábær! Er ein- hver nálægt þér, sem þarfnast þess að heyra það líka? Blóm dagsins er hrós. Flott hjá þér *Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar. SKEMMTUM OKKUR INNANLANDS FLUG OG GISTING Í EINA NÓTT FRÁ AÐEINS 21.030 KR.* FLUGFELAG.IS ÍS LE N SK A/ SI A. IS /F LU 5 38 64 0 3/ 11 Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði. • FATNAÐUR • MATUR • MYNDATAKA • SPARNAÐARRÁÐ • FERMINGAR Í SAMSETTUM FJÖLSKYLDUM Fermingarhandbókin fylgir Fréttablaðinu á morgun

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.