Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.03.2011, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 22.03.2011, Qupperneq 46
22. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR30 FÉSBÓKIN „Maður vonaði alltaf að það kæmi fólk að sjá myndina en ég bjóst ekki við að þetta gengi svona vel strax,“ segir Reynir Lyngdal, leikstjóri Okkar eigin Osló. Gamanmyndin er í efsta sæti yfir aðsóknarmestu myndir landsins með rúma 14.400 áhorfendur þrátt fyrir að hafa aðeins verið sýnd í tæpar þrjár vikur. Titillag myndarinnar í flutningi Valdimars Guð- mundssonar og Memfismafíunnar er sömuleiðis efst á vinsældalista Rásar 2 og er Okkar eigin Osló því á toppnum á tveimur stöðum samtímis. „Þetta er lítil og sæt saga, lítill sólargeisli. Hún fjallar um meingallað fólk sem meinar vel og fólk vonandi finnur sjálft sig í þessu fólki,“ segir Reynir, sem ætlar að leikstýra annarri gamanmynd með sama hópi og gerði Okkar eigin Osló og er Þorsteinn Guð- mundsson þegar byrjaður að skrifa handritið. Til stendur að sýna Okkar eigin Osló í Noregi, enda eru norskir meðframleiðendur að henni og líklega verður það síðar á þessu ári. Einnig er verið að vinna í að sýna hana á kvikmyndahátíðum erlendis. Reynir er með tvær aðrar myndir í bígerð en óvíst er hvenær þær verða tilbúnar. Annars vegar mynd eftir bók Auðar Jónsdóttur, Fólkinu í kjallaranum, og hins vegar mynd eftir draugasögu Gerðar Kristnýj- ar, Garðinum, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. Reynir vinnur handritið að Fólkinu í kjallaranum með eiginkonu sinni Elmu Lísu Gunnarsdóttur. Lík- lega mun Ólafur Egilsson, sem annast leikgerð verks- ins í Borgarleikhúsinu, verða þeim innan handar. - fb Á toppnum á tveimur stöðum REYNIR LYNGDAL Yfir fjórtán þúsund manns hafa séð Okkar eigin Osló á aðeins þremur vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Matreiðslumeistarinn Siggi Hall er sennilega einn af fyrstu sjón- varpskokkum Íslands en matreiðsluþættir hans, sem hafa verið ansi fjölbreyttir, nutu mikilla vinsælda. Siggi hefur verið aðal- maðurinn á matarhátíðinni Food & Fun sem fram fór fyrir skemmstu og gömlu vinnuveitendur hans á Stöð 2 leituðu því ekki langt yfir skammt þegar þá vantaði mann til að gera tvo þætti um þessa miklu veislu. Aðdáendur Sigga Hall geta því farið að hlakka til að sjá meistarann á skjánum. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær getur Stefán Karl Stef- ánsson ekki sótt heim frumsýningu kvikmyndarinnar Kurteist fólk þrátt fyrir að þetta sé fyrsta aðalhlutverk hans á hvíta tjaldinu. Stefán er samkvæmt heimildum Fréttablaðsins á fullu við að stofnsetja framleiðslufyrirtæki með eiginkonu sinni Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur í Los Angeles og á það sinn þátt í fjarveru Stefáns. Undirbúningur er nú í fullum gangi og Stefán því verið upp fyrir haus í alls kyns pappírsvinnu og fundarhöldum. Og á netinu má nú nálgast fyrstu stikluna úr Tíma nornar- innar eftir Friðrik Þór Friðriksson en þættirnir fara í sýningu 27. mars. Meðal þeirra sem þar bregður fyrir eru Gestur Einar Jónasson en eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er þetta fyrsta hlutverk Gests í níu ár eða síðan hann lék Gogga fréttamann í Stellu í framboði. Sjónvarpsáhorf- endur verða síðan að notfæra sér plús-stöðvarnar í næstu viku því Tími nornarinnar er sýndur á sama tíma og Pressa Stöðvar 2. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Auglýsingasími Kraftakarlinn Arnar Grant var rændur þegar hann var í Barcelona við tökur á sjónvarpsþátt- unum „Arnar og Ívar á ferð og flugi“ sem hefj- ast á Stöð 2 á fimmtudaginn. „Ég sat á Römblunni og þá kom pottormur og tók símann minn sem lá á borðinu. Hann sprettaði í burtu og ég tætti á eftir honum,“ segir Arnar. „Ég náði í rassgatið á honum, lyfti honum upp, hristi hann til og reif símann af honum. Svo las ég honum pistilinn á íslensku og labbaði bara til baka. Ég held að honum hafi verið nokkuð brugðið og ég er nokkuð viss um að hann hafi lært sína lexíu.“ Í þáttunum ferðast Arnar og útvarpsmað- urinn Ívar Guðmundsson til fimm borga, eða Barcelona, Berlínar, Kaupmannahafnar, Lond- on og New York, og lenda í hinum ýmsu ævin- týrum. Í fyrsta þættinum í Barcelona spreyttu þeir sig á nautaati í fyrsta sinn. „Við mætt- um klukkutíma of seint og þá var búið að æsa nautin upp í heilan klukkutíma þegar þeim var hleypt í hringinn,“ greinir Arnar frá. „Það var mikið span á þeim og ég held að við höfum aldrei verið eins hræddir á ævinni. Ég tapaði þarna veðmáli fyrir Ívari og þurfti að vera í rauðum bol sem er ekki gæfulegt fyrir nautin.“ Í Kaupmannahöfn hittu þeir Casper Chris- tensen úr sjónvarpsþáttunum Klovn og fór vel á með þeim félögum. „Hann borðaði með okkur smörrebrod og það kom mikið á óvart hvað hann er skemmtilegur fýr. Hann sagði okkur margar sögur sem er kannski ekki við hæfi að segja neins staðar.“ - fb Hljóp uppi símaþjóf í Barcelona KRAFTAJÖTNAR Arnar Grant og Ívar Guðmundsson lentu í honum kröppum í Barcelona. MYND/JÓI KJARTANS „Það er leiðinlegt að þetta þurfti að enda svona. Þetta hefði getað verið stöngin inn,“ segir Róbert Aron Magnússon, sem skipulagði tónleika bresku hljómsveitarinnar Hurts á sunnudagskvöld. Rafmagnið fór tvívegis af hljóð- kerfinu með skömmu millibili meðan á tónleikunum stóð í Voda- fone-höllinni. Síðari rafmagns- bilunin varð í næstseinasta lagi sveitarinnar og alls var töfin sem af þessu hlaust um tuttugu mínút- ur. Eftir að síðasta laginu lauk fór sveitin af sviði og kom ekki aftur til að taka uppklappslag eins og venjan er. „Þeir hefðu líklega tekið eitt uppklappslag en þeir treystu ekki á það sem var í gangi,“ segir Róbert Aron. „Þetta er leiðindamál en sem betur fer var þetta alveg í lokin og þeir náðu að klára sitt sett.“ Hljómborðsleikari Hurts, Adam Anderson, varð að vonum fúll þegar rafmagnið fór af í seinna skiptið og rauk af sviðinu. Hann kom þó aftur til að spila undir í lokalaginu. „Hann var ekki sáttur. Menn eru að koma alla þessa leið og vilja að svona verði tipp, topp,“ segir Róbert. Hann kann engar skýringar á því hvað fór nákvæmlega úrskeið- is en segir málið í athugun. Hann hefur bæði rætt við forsvarsmenn Vodafone-hallarinnar og fyrirtæk- ið HljóðX sem sá um hljóðkerfið. „Þetta er eitthvað sem þarf að skoða. Við erum að hamast í því.“ Hljómborðsleikarinn Ander- son hafði lýst því yfir í viðtali við Fréttablaðið að hljómsveitin ætl- aði að kíkja á næturlífið í Reykja- vík eins og hún gerði er hún komið hingað síðasta haust. Það stóðu þeir félagar við þrátt fyrir skakka- föllin. Einkapartí var haldið á skemmtistaðnum Austri þeim til heiðurs og stóð það yfir til klukk- an fimm um nóttina þar sem þeir RÓBERT ARON MAGNÚSSON: HEFÐI GETAÐ VERIÐ STÖNGIN INN Villtar klukkustundir á Ís- landi þrátt fyrir skakkaföll ÓRAFMAGNAÐIR Rafmagnið fór tvívegis af hljóðkerfinu á tónleikum Hurts í Vodafone-höllinni. Þrátt fyrir að hafa verið eilítið fúlir þá var fýlan ekki lengi að renna af þeim þegar þeir fóru á skemmtistaðinn Austur og slettu rækilega úr klaufunum. Tónleika- haldarinn Róbert Aron segir þá hins vegar vera að kafa ofan í rafmagnsleysið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI félagar skemmtu sér konunglega innan um fagurt kvenfólk. Miðað við Twitter-síðu söngvarans Theos Hutchcraft var nóttin í Reykja- vík viðburðarík. „Fjórtán villtar klukkustundir á Íslandi þar sem lögreglan kom við sögu, sprenging- ar, brennivín og ótrúlegar stelpur,“ skrifaði hann greinilega sáttur við kvöldið. Hann bætti þó við að ekki hafi allt gengið að óskum. „Sigrar og skelfing á Íslandi. Afsakið og takk fyrir. Áttum villtar og yndis- legar stundir á Íslandi eins og allt- af. Einn yndislegasti staður jarðar. Ást!“ freyr@frettabladid.is „Þessi Knútur ísbjörn sem allir eru að syrgja … fyrir hverju spáði hann aftur? Fótboltaúrs- litum? Evrovisionsigurvegurum? Veðri?“ Stefán Pálsson, spurningahöfundur Ha?, grætur augljóslega ekki andlát ísbjarnarins Knúts. „Þessi leiksýning hefur allt sem þarf til að skapa vel heppnað og eftirminnilegt leikverk.“ I.Þ., Mbl. „Critics choice“ Time Out, London Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX fim. 12/5 kl. 20 – lau. 21/5 kl. 20 – fös. 27/5 kl. 20

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.