Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 7
69
Fyrir milligöngu miðstjórnar allsherjar sambands-
ins í New York, voru forsetar lútersku kirkjufélaganna
allra í Canada boðaðir á fund í Ottawa, 22. Maí, með því
augnamiði að stofna samskonar bandalag í Canada.
Forsetar og fulltrúar allra deilda lútersku kirkjunnar í
Canada mættu á fundinum og auk þeirra tveir menn úr
stjórn Bandaríkja-bandalagsins og ennfremur fram-
kvæmdarstjóri þess félags, Rev. J. 0. A. Stub, sonur hins
góðkunna formanns norsku kirkjunnar í Ameríku.
A fundinum var stofnað og lögbnndið Bandalag
lúterskra manna í Canada t.il líknárstarfs meðal lier-
manna. A ensku heitir það: TJie Canadian Lutheran
Commission for Soldiers’ and Sailors’ Welfare. Það
stendur í nánu sambandi við félagið fyrir sunnan og
verða félögin í samvinnu hvort með öðru, þó þau sé hvort
öðru óháð.
Hermálastjórnin í Canada hefir þegar viðurkent hið
nýstofnaða Bandalag sem málsvara lúterskrar kirkju í
Canada og hefir það í ráðum með sér um jiau mál, sem
lvíta að siðferðilegu og trúarlegu eftirliti með hermönn-
um. Stjórnin í Ottawa hefir lofað að skipa nií þegar
lúter'skan herprest (chaplain), og skulu embættismenn
bandalagsins tilnefna hann og eins J)á, er síðar kunna að
verða skipaðir. Varð það að samkomulagi, að hinn nýi
lúterski herprestur skyldi koma á allar herstöðvar í
landinu, einkum spítala og stöðvar heimkominna her-
manna, og útvega, í samráði við Bandalagið, á hverjum
stað lúterskan prest, er þar væri búsettur, til að annast
Um lúterska hermenn, með sérstöku umhoði frá stjórninni.
Enn fremur hefir Bandalagið ákveðið, að ráða nú þegar
í sína þjónustu tvo menn, annan í Austur-Canada en
hinn í Vestur-Canada, til jtess að gefa sig að öllu levti
við ]>essu starfi, ferðast um, kvnna sér ástand og jtarfir
°g koma skipulagi á starfið.
Það verður meðal annars í verkahring Bandalagsins,
að safna nákvæmum skýrslum um lútérska menn í Can-
adahernum og sjá um, að hvar sem því verður við komið,
hafi þeir aðstoð sinnar eigin kirkju og eftirlit góðra
manna. Revnt verður að koma j)eim í kynni við gott