Sameiningin - 01.05.1918, Page 12
74
Væri þá sjálí'sagt að láta hugarfar almennings á öðrum
eins geðæsinga-tímum skera úr um það, livað sé í kristn-
um kenningum orðið úrelt og hvað skuli standa? Hefir
þá kirkjan guðlegt erindi að flytja, eða hefir liún það
ekki ? Ef náðarerindið er frá Guði, þá hlýtur hún að
flytja það ómengað, jafnt í óvinsældum sem vinsældum,
ef ekki, þá hefir kirkjan alls engan tilverurétt.
Hugsum oss að Móse hefði gefist upp í eyðimörkinni
af því mannfjöldinn “gaf ekki túskilding” fvrir Kanaan;
eða að Elía hefði lagt niður spámanns-einbætti sitt og
gjörst Baals-dýrkari, af því meiri liluti Israels liafði á
hans dögum ratað í þá villu; eða að Páll hefði hafnað
kristinni trú og aðhylst lieiðna heimspeki eftir dvölina í
Aþenuborg, ]>egar auðsætt var að allur þorri grískra
fræðimaima “gaf ekki túskilding fyrir þá spurning”,
hvort Kristur væri upprisinn frá dauðum eða ekki. Sé
málstaður dr. Odells á góðum rökum bygður, þá hefði
þessir þjónar Drottins og þeirra líkar átt að fara ]>annig
að ráði sínu — og þá hefði sannleikanum orðið lítið
ágengt.
“Sál hermannsins” heitir bók, sein herprestur í liði
Englendinga liefir nýlega látið útgefna. Bókin er lýsing,
all-ítarleg og óefað sönn, á sálarlífi þeirra manna, sem
mest liafa af stríðinu að segja. Sé dæmt eftir reynslu
þessa manns, þá er ,hinn evangelíski kristindómur alls
ekki úreltur eða að þrotum kominn á þeim stöðvum, þar
sem mest hefir reynt á gagn lmns og gildi. Þetta má ráða
meðal annars af sálmasöngnum í herbúðunum. “Her-
mönnunum þykir frábærlega vænt um sálmasönginn í
guðsþjónustum sínum”, segir höf. “Aldrei finst þeim
of mikið af sálmunum. Þeir verða aldrei leiðir á að
syngja ‘Kock of Ages’, ‘.Jesus, Lover of my Soul’, ‘Figlit
the Good Figlit’, ‘There’s a Green Hill’, ‘At Even Ere
the Suu Was Set’, ‘0 God, Our Help in Ages Past’,
‘Eternal Father, Strong to Save’. En tveir sálmar hafa
þó verið teknir fram yfir alla aðra; það eru þessir:
‘Abide witli Me’ og ‘When I Survey the Wondrous Cross’
“Ekkert, sem mannshöndin hefir ritað, þolir sam-