Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1918, Side 19

Sameiningin - 01.05.1918, Side 19
81 í sögu kristninnar. Nýr kapítuli er að byrja, kapítuli sem hefir að fyrirsögn: Lifandi, heilög, guðiþóknanleg fórn. Lloyd George, stjórnarformaðurinn enski, gat þess í ræðu, er hann flutti, eftir er hann var nýkominn heim úr kynnisför til vígvallanna, að hann hafi verið sjónarvottur að því, að þýzkur liðsforingi var handtekinn af Bretum og með hann farið aftur fyrir skotgrafirnar. par tóku enskir foringjar við honum. Mr. George segir, að það hafi ekki leynt sér, að þýzki foringinn hafi búist við illri meðferð eða bana. Hann hafði sár og hann mæddi blóðrás. “Kom þú ókvíðinn”, sögðu þeir ensku, “við skulum flytja þig á spítaia okkar og græða sár þín, og ekkert skal þig skorta, er þér megi verða til hjúkrunar”. Lloyd George segist hafa horft og hlustað undrandi á þennan mannúðarvott og miskunsemi við óvininn. “En mér rann upp ljós”, segir hann, “er eg leit í kring um mig og sá hvervetna rauða krossa. Allir mintu þeir á krossinn á Golgata og mér skildist það þá, að þrátt fyrir alt, sem enn stendur í vegi, kemur sú stund, að allir munu sigrast láta af miskunnar-anda mannsins frá Nazaret”. Á margan hátt hefir miskunnar-andi mannsins frá Nazaret búið um sig á þessum yfirstandandi mótlætis-tím- um, en hvergi betur en í félagi því og starfi því, sem kennir sig við krossinn rauða. pegar stríð þetta er búið og rituð verður saga þessara dimmu ára, mun sá kapítuli sögunnar, er segir frá “Krossinum rauða”, reynast mesta hugðmál les- andi kynslóða um margar aldir. Saga “Krossins rauða” var fögur orðin á undan þessu stríði, nú er hún orðin dýrleg. Af afspurn, lestri og frásögn heimkominna hermanna, er oss flestum eitthvað kunnugt orðið það dásamlega líknar- verk, sem félagið með rauða krossinn vinnur um þetta leyti. Eg vil leyfa mér að lesa hér kafla úr bréfi, er eg hefi nýlega fengið frá einni hjúkrunarkonu þessa safnaðar á Frakklandi. “Verk það, sem unnið er heima, á einn eður annan hátt, er sannarlega aðdáunarvert. Og eg verð að segja það, að eg er upp með mér af því, að vita að okkar eigið fólk gerir sinn skerf fullkomlega. Canada Red Cross félagið er til ómetanlegrar blessunar fyrir spítalana á Frakklandi. pað er alls ekkert, sem við þörfnumst sjúklingunum til hjúkrun- ar, sem félagið ekki lætur okkur í té. Canada spítalarnir allir hafa sérstakt Red-Cross-herbergi, þar sem geymdar eru vistir, og hjúkrunarkonurnar leita daglega þangað um

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.