Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1918, Page 33

Sameiningin - 01.05.1918, Page 33
95 inn. Sérhver kristinn maSur á að vera nákunnugur píslarsögu frelsarans. Ágætt að kynna sér hana í passíusálmunum. — í hverjum skilningi er nú Jesús dáinn fyrir mennina? Til eftirdæmis, segja sumir; til þess að vekja hjá mönnum fórnfýsi og kristilegt hjartalag. Til að sætta mennina viö Guð, segja aðrir; til þess að láta hjörtu þeirra komast viS og iðrast og snúa sér til Drottins. Hann cr dáinn fyrir sannleikann, sem hann birti mönnunum, segja enn aðrir. ÞaS er sannleikur i öllum þessum svörum, en ekki allur sannleikurinn. Meginatriðið vantar. Væri Jesús aðeins í þessum skilningi frelsari mannanna, þá væri frelsararnir margir. Aðal-tilgangur píslardaúða frelsarans er þetta: Eilíft og óhagganlegt réttlætislögmál Guðs krefur hegningar fyrir alla synd. Ef þú, syndugur maðurinn, þarft að taka þá hegning alla út á sjálfum þér, þá losast þú aldrei. 'Þú ert þá eilíflega dæmdur. í persónu Jesú Krists hefir Guð sjálfur látið refsast fyrir synd þína, til þess að hann geti miskunnað þér. En þá kemur spurningin: Getur al-réttlátur Guð tekið refsing eins manns — þótt guðmaður sé — sem fullnægjandi refsing fyrir syndir annars manns? Já, ef þeir cru eitt fyrir Guði. Og einmitt i þessu er kristindómurinn fólginn. Þú ert kristinn, ef þú lifir í frelsaran- um og hann í þér. Ekki nóg, að þú trúir einhverju um hann; þú þarft að hafa gefið þig á vald hans með lífi og sál; það er kristna trúin. Hafir þú gjört þetta, þá gengur ekki dómur guðlegs réttlætis framar yfir þig einan, heldur yfir báða í sameining, þig og frelsar- ann; hann á með þér sekt þína; þú átt með honum fullnæginguna hans. Og sektin verður þá um leið að engu. Það er eins og auð- ugur maður taki að sér gjaldþrota fátækling, og gjöri hann að félaga sinum og láti alt vera sameiginlegt með 'báðum. Þá hverfa skuldir annars í eignum hins. Tvent kemur í ljós, þegar vér skoðurn frels- unina frá þessu sjónarmiði: hún fæst ekki fyrir IvÚAv-skoðun eina, heldur fyrir trúar-samfélag; hún er eigi frelsun frá hegningunni cinni, heldur frá synd og hegningu til samans. Verkefni: 1. Píslarsagan. 2. Friðþægingin. XII. IÆXÍA. — 23. JÚXf. Jesús sigrar dauðami.—Mark. 16, 1-11. Minnistexti;—Nú cr Kristur upþrisinn frá dauðwn.—-l.Kor.lö,2d. Umræðucfni:—Upfrisa Krists og fullvissa vor um ódauðleika. Les til hliðsjónar: Matt. 28, 1-20; Lúk. 23, 56-24, 12; Jóh. 20, 1-25; 1. Kor. 15; 1. Þess. 4, 13-18; Opb. 1, 17. 18. Auðugur maður úr öld- ungaráði Gyðinga, Jósef frá Arímaþeu, fékk leyfi Pílatusar til þess að jarða likama Jesú. Nikódemtis, Faríseinn, sem komið hafði til Jesú um nótt til að fræðast af honum, fékk nú djörfung til að taka þátt í útförinni. Óvinir Jesú fengu vörð settan um gröfina, til þess að líkinu yrði ekki stolið, þvi þeir mintust orða hans um upprisuna. í gröf þessari hvíldi svo líkami Jesú yfir Sabbatið. Þegar konurnar komu svo til grafarinnar árla morguns hinn fyrsta dag vikunnar, voru

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.