Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1917, Síða 2

Sameiningin - 01.07.1917, Síða 2
130 fullráðin höfðu menn komið sér saman um öll atriði. Að l>ví höfðu unnið sameiginlegar nefndir allra félaganna. Hafði svo hvert félag á ársþingi samþykt samsteypuna. Öll félögin komu saman á síðasta ársþing sitt á sama stað og sama tíma í öndverðum Júní mánuði. Áttu þau þar lokafundi hvert í sínu lagi. Héldu svo prestar og safnaða fulltrúar hvers félags af stað frá hinum sér- stöku þingstöðum árla dags 9. Júní og gengu með fylktu liði á liinn sameiginlega þingstað, Auditorium í St. Paul, sem er stærsti samkomusalur þeirrar borgar, og mælt er að rúmi 12,000 manns. Hver flokkur lét bera merki fyrir sér og gengu átta menn samsíða. Fyrst kom Hauge Sýnodan og voru í þeirri sveit 207 fulltrúar og 119 prestar, en merkisberinn var ríkisstjórinn í Suður- Dakota, Gov. Peter Norbeck. Þá kom Norska Sýnodan, 472 fulltrúar og 207 prestar, og var þeirra fánaberi I. A. Berg, bankastjóri í Galesville, Wisconsin. Síðast kom Sameinaða kirkjan og var sú sveit fjölmennust, 802 full- trúar og 492 prestar, og bar merkið Hon. Oley Nelson. Alls var í skrúðgöngunni nærri hálft þriðja þúsund manns, og auk þess streymdi fleira fólk á samkomuStað- inn en húsið fékk rúmað. Kl. 10 hófst hið nýja þing með því að allur skarinn söng sálminn: “Ó Guð, þér hrós og heiður ber”. Þá las dr. T. H. Dahl, sá er verið hafði formaður Sameinuðu kirkjunnar, 103. Sálm Davíðs, sem byrjar með þessum alkunnu orðum: “Lofa þú Drottin, sála mín og alt sem í mér er, hans heilaga nafn”. Þá bar dr. H. G. Stub fram hjartnæma bæn, og presturinn C. I. Eastvold liélt ræðu út af orðunum: “Blessaður sé sá, sem kemur í nafni Drottins”. Yar þá þingið sett og bráðabirgða þing- stjórn kosin. Kom þá fram ríkisstjórinn í Minnesota, Gov. Burnquist, og árnaði hinu nýja kirkjufélagi bless- unar og vitnaði það, að heill ríkisins væri undir því komin að kirkjan — frjáls og ríkinu óháð — blómgaðist sem bezt, því kristindómurinn væri lífsandi mannanna. T. O’Brien dómari mælti fyrir hönd kaupmanna-sam- kundunnar í St. Paul og flutti félaginu árnaðar-óskir meðborgaranna. Þá voru lesin mörg skeyti og lieilla- ósMr frá einstökum mönnum og félögum, þar á meðal frá prestafélagi í Kristjaníu, biskupunum og Mrkjumála- ráðherranum í Noregi og dönsku kirkjunni í Ameríku. Þar næst var borin upp þingtillaga, er samþykt var

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.