Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1917, Side 14

Sameiningin - 01.07.1917, Side 14
142 urinn þarf að gjöra, er að þiggja þennan úrskurð, þennan blessaða, náðarríka dóm. Sumir neita og halda þess vegna áfram að lifa undir fordæmingunni, og hún getur orðið hlutskifti þeirra til eilífðar. Á þeirri stundu, sem maðurinn þiggur náðina og fyrir- gefningu syndanna fyrir dauða Jesú Krists, auglýsir Guð hann réttlátan og breytir við hann eins og hann hefði aldrei syndgað. En Guð fer lengra- Hann gjörir meira en að gefa upp sökina og auglýsa manninn sýknan. Hann tileinkar manní réttlæti Krists. Sýknunin er neikvæð og getur ekki ein fullnægt manninum. pó að fangi sé sýknaður og látinn laus er hann ekki þá þegar búinn að vinna til baka álit sitt og stöðu sína í heiminum. Lög ná ekki yfir hann framar, en samt er hann ekki sami maðurinn og áður. En ef konung- urinn tekur hann að sér og gerir hann að syni sínum og erfingja ríkisins fær hann samstundis álit og stöðu, sem allir verða að viðurkenna. Jesús hlýðnaðist lögmálinu full- komlega, og réttlætið, sem byggist á þessari hlýðni, tileinkar Guð hverjum þeim manni, sem hann fyrirgefur syndirnar fyrir Jesúm Krist. petta er hin jákvæða hlið réttlæting- arinnar. Með öðrum orðum: Guð álítur mann réttlátan—full- komlega réttlátan—vegna Krists og breytir við mann á sama hátt og hann myndi gjöra ef maður lifði að öllu leyti eins og Jesús hér á jörðunni. En hvernig tekur maður á móti þessari gjöf Drottins og tileinkar sér hana? Hvaða hæfileiki kemur þar til greina? Trúin! Trúin ein! Hún er augað, sem sér Krist og náðargjöf hans. Hún er eyrað, sem heyrir raust Drott- ins, sem býður náðina. Hún er höndin, sem tekur við rétt- lætingunni. pannig sjáum vér, að réttlætingin er eingöngu athöfn Guðs. Maðurinn einungis þiggur, spyrnir ekki á móti áhrif- unum guðlegu, sem hvetja hann til að rétta út hönd trú- arinnar. Trúin sjálf réttlætir ekki nokkurn mann, heldur það, sem hún tileinkar sér, nefnil. Krist, líf hans og dauða. Yæri trúin svo sterk hjá manni, að hún gæti læknað allar mein- semdir og gjört allar dygðir fullkomnar, myndi hún réttlæta mann. En þetta hefir aldrei skeð í mannkynssögunni og það er ætíð verra en gagnslaust að ræða hið ómögulega-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.