Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1917, Blaðsíða 32

Sameiningin - 01.12.1917, Blaðsíða 32
320 Þýður málrómur ber vott um prúðmensku, hógværð og blíðlyndi. Hann lýsir góðu hjartalagi, ekki síður cn orðin sjálf, sem töluð eru. Röddin segir fljótt eftir, ef harka, kuldi og eigingirni ráða lögum og lofum í hjartanu. ------o------ Elzti maður Argyle-bygðar látinn. Mánudaginn 22. Október síðastlðinn, andaðist öldungurinn Jón Jónsson, er fyrrum var bóndi á Gilsá og síðar á Gilsárstekk í Suður- Múlasýslu, 96 ára að aldri. — Hann var fæddur í apríl mánuði 1821 að Kelduskógum I Suður-Múlasýslu. Árið 1876 fluttist hann hingað vestur um haf og settist að í Nýja Islandi, ásamt konu sinni, Guðnýju Sigurðardóttur, Antónktssonar, frá Skála í Berufirði; hana misti hann árið 1880 'eftir 37 ára sambúð. Ári síðar gekk hann að eiga Arnfríði Pétursdóttur, ættuð úr Skagafirði, og lifir hún mann sinn. Börn hans af fyrra hjónabandi eru: Guðjón, bóndi í Argyle-bygð, á áttræðisaldri, og Guðrún Helga, kona Árna Sveinssonar; ennfremur Sigurborg, er dó í Duluth um 1878, og Signý, sem dó á unga aldri heima á Islandi; en af síðara hjónabandi: Ingibjörg, kona Guð- mundar Johnson, sem nú er í 'herþjónustu í Norðurálfunni, og Guðný, kona Páls bónda Guðna-sonar i Argyle-<bygð. Jón sál. flutti sig til Argyle^bygðar 1886 og átti þar heima síðan. Hann var karlmenni og stór í lund og starfsmaður hinn mesti. Síð- ustu árin stóð hann ekki fyrir búi, en var hjá börnum sínum. Hann var trúmaður mikill og hafði unun af því æfiárin síðustu, að tala við aðra um sannindi trúarinnar. Bausnarstund sína þráði hann með heilagri tilhlökkun. Blessuð sé minning hans. F. H. Islenzka mánaðardaga, tneð myndum merkra íslendinga, hefir séna Rögnvaldur Pétursson sent Sameiningunni, og kunnum vér honum þakkir fyrir. “EIMREIÐIjV,” eitt fjölbreyttasta islenzka tímar'itiiS. Kemur út I Kaupmannahöfn. Ritstjðri dr. Valtýr GuÍSmundsson. 3 hefti á ári, hvert 40 ct. Fæst hjá F. Johnson I Winnipeg. Jðnasi S. Bergmann á Garöar o. fl. “BJARMI”, kristilegt heimilisblaiS, kemur út í Reykjavik tvisvar á mánuöi. R'itstjðri cand. S. Á. Gislason. Kostar hér 1 álfu 85 ct. árgangurinn. Fæst í bókaverzlun Finns Jðnssonar i Winnipeg. “SAMEININGIN” kemur út mánatSarlega. Hvert númer tvær arkir heilar. VeriS einn dollar um árið. Ritstjðri: Björn B. Jónsson, 659 William Ave., Winnipeg, Canada. — Hr. Jón J. A7opni er féhirðir og ráðsmaður “Sam."—Addr.: Sameiningin, P. O. Box 3144, Winnipeg, Jlanitoba.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.