Fréttablaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 6
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR6
Hafðu samband. Við hjálpum þér að velja rétta kortið.
MASTERCARD
KREDITKORTA
BJÓÐUM ALLAR TEGUNDIR
kreditkort.is | Ármúla 28
Best væri vitaskuld
að þurfa ekki að
greiða neitt en
frekar kýs ég það
næstbesta en það
versta. Þess vegna
segi ég já.
Gerður Kristný,
rithöfundur
„
“
Já er leiðin áfram!
Áfram-hópurinn eru þverpólitísk grasrótarsamtök fólks
sem telur að best sé fyrir okkur að ljúka Icesave málinu með samþykkt fyrir-
liggjandi samnings í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl nk. Starf hópsins byggir
á frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja og sjálfboðavinnu fjölda fólks.
www.afram.is
NOREGUR Norska olíufélagið
Statoil tilkynnti í gær að gríðar-
stór olíulind hefði fundist í Bar-
entshafi, um 200 kílómetra norð-
vestur af Hammerfest.
Þetta er mesti olíufundur Norð-
manna í meira en áratug. Talið er
að olíulindin geymi á bilinu 150-
250 milljónir fata af olíu.
Norskir fjölmiðlar áætla að
verðmæti olíunnar þar sé á
bilinu 100-165 milljarðar norskra
króna, eða sem svarar 2.000
til 3.400 milljörðum íslenskra
króna. - kmu
Statoil fann stóra olíulind:
Stærsti olíu-
fundur í áratug
DÓMSMÁL Ákæra var þingfest í
gær á hendur þjófagengi sem ber
ábyrgð á einni mestu innbrotaöldu
sem um getur á Íslandi.
Þrír mannanna hafa við skýrslu-
tökur hjá lögreglu játað á sig 75
innbrot á höfuðborgarsvæðinu
síðastliðið haust, frá september
og fram að áramótum. Í öllum til-
vikum var farið inn í heimahús
og ýmsum munum stolið. Tjónið
nemur tugum og jafnvel á annað
hundrað milljónum.
Fjórði maðurinn er grunaður
um að hafa keypt allt þýfið af þeim
og selt með hagnaði. Sá fimmti er
talinn eiga minni hlut að máli.
Þjófarnir þrír og kaupandinn
tóku sér frest til að taka afstöðu
til ákærunnar fyrir dómi í gær.
Fimmti maðurinn sagði við
þingfestinguna að hann hefði ein-
ungis talið sig vera að hjálpa vini
sínum að flytja, eins og hann hefði
gert áður, en að hann hafi ekki
vitað að hann væri að meðhöndla
þýfi.
Verjendur mannanna fengu hver
um sig í hendur fullan pappakassa
af málsskjölum í héraðsdómi, enda
er málið gríðarlega umfangsmikið.
Lögregla telur mennina fjóra
hluta af skipulögðu glæpagengi
Pólverja og Litháa hérlendis, einu
fjögurra gengja sem nú skipti með
sér íslenskum undirheimum. - sh
Fullir kassar af málsskjölum afhentir verjendum í risavöxnu þjófnaðarmáli:
Stórtæku þjófagengi birt ákæra
STÁLU ÖLLU STEINI LÉTTARA Enginn
mannanna gekkst við sök fyrir dómi í
gær. Þrír þeirra tóku sér frest til að taka
afstöðu til ákærunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
UMHVERFISMÁL Umhverfisátakið
Grænn apríl, sem stendur allan
aprílmánuð, var sett af stað í gær.
Tilgangur átaksins er að vekja
Íslendinga til umhugsunar um
umhverfismál og kynna grænar og
umhverfisvænar vörur og þjónustu.
„Hugmyndin að baki átakinu
er að nota aprílmánuð til þess að
skoða stöðuna í umhverfismálum
hér á landi. Svona mánaðarátak er
einstakt á heimsvísu en 22. apríl er
alþjóðlegur dagur umhverfisins,“
segir Valgerður Matthíasdóttir,
meðlimur í samtökunum Grænum
apríl sem nýverið voru stofnuð.
„Við hér á Íslandi erum að mörgu
leyti langt á eftir nágrannaþjóðum
okkar hvað varðar meðvitund um
umhverfismál. Við erum svo vön
því að vera í svo mikilli nálægð við
hreina og villta náttúru og vatnið
okkar er svo gott. En við erum mjög
slæm í öllu sem tengist úrgangi og
rusli sem fylgir nútímaþjóðfélagi.“
Samtökin Grænn apríl hafa það
að markmiði að hvetja ríkisstjórn-
ina, sveitarstjórnir, fyrirtæki,
félagasamtök og einstaklinga til að
vinna saman að því að gera apríl að
grænum mánuði. Munu samtökin
á næstu vikum standa fyrir fjölda
fjölbreytilegra viðburða er varða
umhverfismál. - mþl
Samtökin Grænn apríl vilja vekja landsmenn til umhugsunar um umhverfismál:
Umhverfisátak í aprílmánuði
GRÆNN APRÍL Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra setti átakið af stað í
ráðhúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Heldurðu að það sé langt í
kjarasamninga?
Já 77%
Nei 23%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að mæta og greiða at-
kvæði um Icesave-samninginn?
Segðu skoðun þína á Visir.is.
FÓLK Velunnarar Priyönku Thapa
hyggjast gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að halda henni
hér á landi. Útlendingastofnun
synjaði henni um dvalarleyfi í
vikunni. Priyanka er 23 ára gömul
nepölsk stúlka
en í Nepal bíður
hennar ókunn-
ur fer tugur
karlmaður sem
hefur keypt
hönd hen n -
ar af fátækri
fjölskyldunni.
Ákveðið hefur
verið að sækja
um íslenskan
ríkisborgararétt fyrir hana.
„Við ætlum að leita allra leiða til
að gera henni kleift að vera hér á
landi áfram,“ segir Sigurður Örn
Hilmarsson, lögmaður Priyönku.
„Við teljum aðstæður hennar vera
svo sérstakar að hún eigi í fyrsta
lagi rétt á því að fá dvalarleyfi
hér en jafnframt að þær rétt-
læti það að hún fái einfaldlega
ríkisborgararétt frá Alþingi.“
Almennt er gerð krafa um að
umsækjendur um ríkisborgararétt
hafi búið hér á landi í sjö ár og hafi
dvalarleyfi frá Útlendingastofn-
un. Ljóst er að Priyanka uppfyllir
ekki þau skilyrði en fólk í hennar
stöðu getur komist hjá þeim með
því að sækja um ríkisborgararétt
til Alþingis. „Þá setur Alþingi ein-
faldlega lög um að einhverjir til-
teknir einstaklingar hljóti ríkis-
fang en það hefur Alþingi gert
tvisvar á ári undanfarna áratugi,“
segir Sigurður Örn.
Priyanka hefur starfað sem
barnfóstra hjá fjölskyldu á Suður-
nesjum undanfarin misseri. Fjöl-
skyldan hefur tekið ástfóstri við
Priyönku og boðið henni að búa
áfram hjá sér. Priyanka hefur auk
þess stundað nám við háskólabrú
Keilismeð mjög góðum árangri,
en hún útskrifast þaðan í maí.
Priyanka er óttaslegin um
framtíðina en að öllu óbreyttu
verður henni gert að yfir-
gefa Ísland á næstu mánuðum.
Útlendingastofnun úrskurðaði
að Priyanka uppfyllti ekki skil-
yrði um dvalarleyfi á grundvelli
mannúðarsjónarmiða og taldi
ekki sannað að hennar biði hjóna-
band sem hún yrði neydd í.
Priyanka, fjölskylda hennar og
lögmaður afla nú frekari sönnun-
argagna um stöðu hennar í Nepal.
Líklegast verður farið fram á að
málið verði tekið upp aftur af
hálfu Útlendingastofnunar.
Ása Guðný Ásgeirsdóttir
mannfræðingur hefur rannsakað
stöðu kvenna í Nepal. Hún segir
að Pryönku gæti beðið erfitt líf
í Nepal. Landið sé meðal þeirra
fátækustu í heimi og þar njóti
konur almennt lítilla réttinda.
Á fimmtudag var stofnaður
hópur á Facebook til stuðnings
Pryönku en á tíunda tímanum í
gærkvöldi höfðu rúmlega 6.000
manns gengið í hópinn.
magnusl@frettabladid.is
Priyanka sækir um
ríkisfang hér á landi
Priyanka Thapa hyggst sækja um íslenskan ríkisborgararétt til að koma í veg
fyrir að hún verði send aftur til Nepals þar sem hennar bíður nauðungarhjóna-
band. Mannfræðingur segir að erfitt líf gæti beðið Priyönku í Nepal.
PRIYANKA THAPA Að öðru óbreyttu verður Priyönku gert að yfirgefa Ísland á næstu
mánuðum. Hennar gæti beðið erfitt líf í Nepal. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SIGURÐUR ÖRN
HILMARSSON
Við ætlum að leita
allra leið til að gera
henni kleift að vera hér á
landi áfram.
SIGURÐUR ÖRN HILMARSSON
LÖGMAÐUR PRIYÖNKU THAPA
KJÖRKASSINN