Fréttablaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 70
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR38
Óvinafagnaður
Einar Kárason
2001
Árið 1238 snýr Þórður kakali
aftur til Íslands til að hefna föður
síns og bróður sem voru felldir í
Örlygsstaðabardaga. Óvígur her
undir forystu Kolbeins unga og
Gissurar Þorvaldssonar hefur þar
með hnekkt veldi Sturlunga og
lagt landið undir sig.
Ofsi
Einar Kárason
2008
Sjálfstætt framhald Óvinafagn-
aðar. Gissur Þorvaldsson snýr
heim úr Noregsför, fús til sátta
við Sturlungana. Fjölmenn
brúðkaupsveisla til að innsigla
friðinn er haldin á Flugumýri en
ekki mæta allir sem boðið var;
nýsaminn friður er ekki allra.
Sveigur
Thor Vilhjálmsson
2002
Óbeint framhald Morgunþulu í
stráum frá 1998. Guðmundur
skáldi elst upp við kröpp kjör á
róstusömum tímum 13. aldar en
kemst í vist með munkum þar
sem hann lærir til bókar. Fulltíða
lendir hann í slagtogi með helstu
höfðingjum aldarinnar, þar á
meðal Sturlu Sighvatssyni.
■ 15. ÖLD
Vélar tímans
Pétur Gunnarsson
2004
Þriðji hlutinn í sagnabálknum
Skáldsaga Íslands. Í byrjun 15.
aldar hefur Svarti dauði kvistað
niður landslýðinn. Unglings-
pilturinn Natan er einn eftir af
munkum Þykkvabæjarklausturs.
Hann slæst í fræga för með Birni
Jórsalafara til Jerúsalem. Jafn-
framt er dvalið við nútímann og
hann skoðaður í aldarspegli hins
liðna, og öfugt.
Hrafninn
Vilborg Davíðsdóttir
2005
Naaja er ung kona sem elst upp
meðal Inuíta á Grænlandi en er
gerð brottræk úr samfélaginu
ásamt sérvitrum föður sínum. Þá
eiga sér stað voveiflegir atburðir
sem reyna á styrk hennar.
■ 16. ÖLD
Maríumessa
Ragnar Arnalds
2004
Saga Þórdísar í Sólheimum,
heimasætu í Skagafirði, sem
Herluf Daa höfuðsmaður sótti til
saka snemma á 16. öld.
Öxin og jörðin
Ólafur Gunnarsson
2003
Skáldsaga um Jón biskup Arason
og syni hans, sem voru háls-
höggnir árið 1550. Bókin hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin.
■ 17. ÖLD
Reisubók Guðríðar Símonar-
dóttur
Steinunn Jóhannesdóttir
2001
Árið 1627 hertóku ofbeldismenn
frá Alsír um fjögur hundruð
Íslendinga og fluttu til þrældóms
í Barbaríinu. Ein þeirra var Guð-
ríður Símonardóttir, tilvonandi
eiginkona Hallgríms Péturssonar.
Steinunn fylgir Guðríði á hennar
löngu reisu í þrælakistuna í Alsír.
Hrapandi jörð
Úlfar Þormóðsson
2003
Skáldsaga um Tyrkjaránið. Fylgst
er með afdrifum nokkurra
sögupersóna sem kippt er út úr
íslensku brauðstriti og kastað inn
í óvissu, myrkur og þjáningar við
sunnanvert Miðjarðarhaf.
Heimanfylgja
Steinunn Jóhannesdóttir
2010
Skáldsaga um uppvöxt Hallgríms
Péturssonar byggð á heimildum
um ættfólk hans og samtíð.
Hallgrímur
Úlfar Þormóðsson
2008
Skáldsaga um ævi Hallgríms
Péturssonar. Hér er fjallað um
baráttu hans við Guð, ástir hans
og Guðríðar, sáran dótturmissi
og tilurð Passíusálmanna.
Rökkurbýsnir
Sjón
2008
Árið er 1635 og rithöfundurinn
og myndasmiðurinn Jónas
lærði Pálmason er dæmdur fyrir
útbreiðslu galdra og sendur í
útlegð í Gullbjarnarey. Skáldsagan
Rökkurbýsnir byggist á lífi og
hugarheimi þessa sjálfmenntaða
Íslendings.
■ 18. ÖLD
Skáldsaga um Jón ...
Ófeigur Sigurðsson
2010
Skáldsaga um eldklerkinn Jón
Steingrímsson sem ungan
mann. Árið 1755 hrekst hann
úr Skagafirði suður í Mýrdal, þar
sem Katla gýs eldi og eimyrju.
Jón sest að í helli við Reynisfjöru
og skrifar konu sinni bréf um
fortíðina, gestakomur í hellinn og
daglegt líf.
Allt hold er hey
Þorgrímur Þráinsson
2004
Árið 1992 fékk Þorgrímur Þráins-
son rithöfundur símtal frá ókunn-
ugri konu kunnri af skyggnihæfi-
leikum, sem vildi segja honum
sögu af ungri konu sem dó 200
árum fyrr. Allt hold er hey er saga
hennar.
■ 19. ÖLD
Eldhuginn
Ragnar Arnalds
2005
Skáldsaga um Jörund hunda-
dagakonung og byltingu hans á
Íslandi.
■ 9. ÖLD
Auður
Vilborg Davíðsdóttir
2009
Auður djúpúðga er í hópi
þekktustu landnema Íslands. Hér
kynnast lesendur henni á unga
aldri og fylgja henni inn í storma-
samt hjónaband með Ólafi hvíta
Dyflinnarkonungi.
■ 12. ÖLD
Leiðin til Rómar
Pétur Gunnarsson
2002
Annar hluti í sagnaflokki Péturs,
Skáldsaga Íslands. Sú fyrsta,
Myndin af heiminum, kom út
2000. Á 12. öld leituðu menn
til Rómar í leit að sáluhjálp
og freista þess að greiða götu
hennar til himna. Á 21. öld fer
Máni þangað á puttanum.
■ 13. ÖLD
Drottning rís upp frá dauðum
Ragnar Arnalds
2010
Þýskur kaupmaður siglir til Íslands
á 13. öld. Þar hittir hann klerk
sem verið hafði verið kenn-
ari Margrétar konungsdóttur í
Noregi, sem sögð var hafa dáið í
Orkneyjum áratug fyrr og hulunni
er svipt af leyndarmálinu um
hvarf hennar.
A lls kom út 41 söguleg skáld-saga á Íslandi á árun-
um 2001 til 2010, sem gerir
um fjórar á ári að meðaltali.
Flestar sögulegar skáldsögur
komu út árið 2004, alls átta, en
fæstar árið 2006, aðeins ein.
Tuttugasta öldin var vinsælasti
sarpurinn sem leitað var í.
Sautján bækur gerðust á fyrri
hluta 20. aldar og fram á 7. ára-
tuginn. Þar á eftir kom 19. öldin
en alls sjö bækur gerast á henni.
Engin skáldsaga gerðist á 10.
eða 14. öld.
Athygli vekur að flestir rit-
höfundanna sem á annað borð
fengust við sögulegan skáld-
skap á áratugnum sem leið
hafa skrifað fleiri en eina. Að
baki titlunum 41 eru 27 höf-
undar. Flestar skrifaði Ragnar
Arnalds, alls þrjár. Allmargir
skrifuðu tvær sögulegar skáld-
sögur á árbilinu sem um ræðir,
þar á meðal Pétur Gunnarsson
en þess má geta að fyrsti hluti
í þríleik hans um Skáldsögu
Íslands kom út árið 2000 og er
því ekki talinn með.
Talsvert fleiri karlar fengust
við sögulegan skáldskap á ára-
tugnum sem leið, alls 22 á móti
fimm konum.
Sagan í skáldskap
síðasta áratugar
Haft er fyrir satt að bókaárið sem leið hafi öðru fremur einkennst af sögu-
legum skáldskap og glímu rithöfunda við menningararfinn. Hvað sem því
líður hefur sögulegur skáldskapur lengi átt upp á pallborðið á Íslandi.
Bergsteinn Sigurðsson rýndi í Bókatíðindi undanfarinna tíu ára og komst að
því hvaða rithöfundar gerðu sér mat úr sögunni á fyrsta áratug 21. aldar.
SAGAN Í HNOTSKURN