Fréttablaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 85
LAUGARDAGUR 2. apríl 2011 53
Tónlistarhópurinn REYK VEEK
og hönnuðurnir Bóas Kristjáns-
son og Mundi standa fyrir
skemmtikvöldinu Ultra Violence
sem fram fer á Faktorý í kvöld.
Að sögn Heimis Héðinssonar
tónlistarmanns var ákveðið að
setja saman teiti til að fagna
útgáfu nýs disks frá REYK
VEEK og nýjum haustlínum
þeirra Bóasar og Munda. „Við
í REYK VEEK erum að gefa út
safndisk með íslenskri neðan-
jarðartónlist sem aldrei hefur
heyrst áður. Þetta er allt frum-
samið efni sem við ákváðum að
safna saman á einn disk. Það
er svo planið að halda fleiri
partí í framtíðinni þar sem við
munum halda áfram að blanda
saman tónlist, tísku og hönnun,“
útskýrir Heimir.
Tónleikarnir hefjast á mið-
nætti og fyrir 1.000 krónur fæst
aðgangur að skemmtuninni og
diskurinn í kaupbæti.
Koma saman
og fagna
FAGNA SAMAN Tónlistarhópurinn REYK
VEEK fagnar nýrri plötuútgáfu ásamt
hönnuðunum Bóasi Kristjánssyni og
Munda.
Tímaritið In Touch Weekly
greindi frá því nýverið að leikar-
inn Ashton Kutcher hafi farið og
birgt sig upp af ýmsum neyðar-
búnaði ef vera skyldi að hamfarir
myndu skella á Los Angeles.
„Hann er sannfærður um að
annaðhvort jarðskjálfti eða ein-
hvers konar uppþot eigi eftir að
eiga sér stað innan skamms og
hann vill vera við öllu búinn.
Hann birgði sig upp í versluninni
Surplus Value Center sem sér-
hæfir sig í ýmsum útivistar-
útbúnaði,“ sagði innanbúðar-
maður. Leikarinn mun hafa fest
kaup á handknúnum útvarpstækj-
um, neyðarteppum, vasaljósum
og þurrmat.
Kutcher við
öllu búinn
ÓTTAST HAMFARIR Ashton Kutcher er
hræddur um að einhvers konar hamfarir
muni skella á Los Angeles.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ljósmyndarinn Terry Richar-
dson hefur aftur verið sakaður
um kynferðislegt áreiti af ungri
fyrirsætu. Vefsíðan Fashionista.
com greinir frá því að fyrirsætan
Felice Fawn hafi fengið ósiðsam-
legt boð frá Richardson í gegnum
spjallþráð. Stúlkan birti samtalið á
bloggsíðu sinni fyrir stuttu en tók
hana niður stuttu síðar. Samtal-
ið má þó finna í heild sinni á síðu
Fashionista.com.
Svo virðist sem Richardson hafi
haft frumkvæðið að samskiptum
þeirra og byrjar á því að hrósa
stúlkunni fyrir unglegt útlit. Hann
segist svo vera tilbúinn til að gera
hana að stjörnu gegn því að hún
sofi hjá honum. „Fyrirsætubrans-
inn er kynlíf, fíkniefni og rokk
og ról. Ekki segja mér að þú vitir
það ekki?“ spyr ljósmyndarinn og
Fawn svarar; „Ég er meðvituð um
það. En ég neyti ekki fíkniefna og
mun alls ekki sofa hjá til að öðlast
frægð.“ Richardson þakkar Fawn
þá fyrir samtalið og óskar henni
góðs gengis í framtíðinni.
Árið 2010 ásakaði danska fyrir-
sætan Rie Rasmussen ljósmynd-
arann um að misnota aðstöðu sína
gangvart ungum og óreyndum
fyrirsætum. Fyrirsætan Jamie
Peck kom fram stuttu síðar og
sagði Richardson hafa hegðað sér
mjög ósæmilega gagnvart henni.
Sakar Richardson um ósiðsamlegt boð
AFTUR Á KREIK? Fyrirsætan Felice Fawn segir ljósmyndarann Terry Richardson hafa
lofað henni frægð og frama gegn því að sofa hjá honum. NORDICPHOTOS/GETTY
MEIRA Á urvalutsyn.isÚRVAL ÚTSÝN - LÁGMÚLA 4 108 REYKJAVÍK - S. 585 4000