Fréttablaðið - 02.04.2011, Page 10

Fréttablaðið - 02.04.2011, Page 10
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR STJÓRNMÁL Landssamtök landeig- enda telja enga þörf á endurskoðun jarðalaga og vara við að eigendur bújarða verði settir á klafa átthaga- fjötra með því að verðgildi jarða þeirra verði rýrt með vanhugsaðri lagasetningu. Tilefni ályktunar landssamtak- anna í þessa veru er ræða Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, á Búnaðarþingi. Í henni boðaði hann frumvarp til breytinga á jarðalögum, „einkum til að formfesta skynsamlega land- nýtingu með tilliti til fæðuöryggis þjóðarinnar“. Í tilefni þessara orða Jóns benda landssamtökin á að nóg er til af ræktanlegu landi á Íslandi og engin ástæða til að óttast um að fæðuöryggi sé stefnt í hættu vegna þess að skortur sé á land- rými til landbúnaðar. Minna sam- tökin á að stutt sé síðan jarðalögin voru endurskoðuð og að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn til breyt- inga. „Vonandi kemur aldrei sá tími aftur, þegar bændur vilja bregða búi, að þeir geti einungis selt eign- arjörð sína fyrir sambærilegt verð og tveggja herbergja íbúð í Reykja- vík kostar,“ segir í ályktuninni. Jafnframt segir að verði ábúðarskylda á jörðum lögfest muni bújarðir vafalaust falla í verði. Lagabreyting í þá veru sé því bein aðför að bændum og jarðeigendum. - bþs Boðuð breyting á jarðalögum sögð aðför að bændum og öðrum landeigendum: Nóg til af ræktanlegu landi Í SVEITINNI Myndin er tekin undir Eyja- fjöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ADVICE hópurinn telur hagsmunum Íslands best borgið með því að fella Icesave-lögin þann 9. apríl. Auglýsingar og annað starf hópsins er greitt með frjálsum framlögum og vinnuframlagi sjálfboðaliða. Tölvupóstur: advice@advice.is www.advice.is Dómur væri skárr en þessi samningur Dómur: endurheimtur úr búinu niðurstöðu Samningur: úr þrotabúinu milljarðar Við höfum mjög sterka réttarstöðu í Icesave. En jafnvel þó við töpum er staðreyndin sú að: Í byrjun apríl munu MFM miðstöðin, meðferða- og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar og átraskana og ACORN, Food Dependency Recovery Services standa að eftirfarandi viðburðum: Þann 8. - 13. apríl verður haldið 6 daga dvalarnámskeið fyrir þá sem glíma við matar/sykurfíkn eða þá sem þekkja vandann af eigin raun og hafa áhuga á að læra að vinna með þeim sem eiga við þennan vanda að stríða. Fyrirlesarar: Dr. Vera Tarman MD., FCFP, CASAM, MSc. er yfirlæknir Renascent, sem er stærsta meðferðastöð við vímuefna- og áfengisfíkn í Kanada. Phil Werdell MA. er stofnandi ACORN. Hann hefur sjálfur strítt við matarfíkn og anorexíu, en viðhaldið bata frá hvorutveggja í yfir 20 ár. Phil Werdell er þekktur og viðurkenndur sem leiðtogi og brautryðjandi í meðferðum vegna matarfíknar og átraskana í heimalandi sínu, Bandaríkjunum. Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá MFM miðstöðinni í síma 568 3868 og matarfikn@matarfikn.is eða hjá Esther Helgu 699 2676 og esther@matarfikn.is www.matarfikn.is Matar/sykurfíkn Meðferðalausnir og vísindin! Fyrirlestur: Matar/sykurfíkn, meðferðalausnir og vísindin! Miðvikudaginn 6. apríl - kl. 20-22 í Háskólanum í Reykjavík Fyrirlesarar: Dr. Vera Tarman MD., Phil Werdell MA. Kynnir: Esther Helga Guðmundsdóttir MSc. Verð: Kr. 2.000.- ( Kr. 1.000.- fyrir nema, öryrkja og eldri borgara ) Fyrirlesturinn er öllum opinn Málþing: Matar/sykurfíkn, meðferðalausnir og vísindin! Fimmtudaginn 7. apríl - kl. 8.30 - 17.00 Hótel Loftleiðum Fyrirlesarar: Dr. Vera Tarman MD., Phil Werdell MA., Esther Helga Guðmundsdóttir MSc. Kynnir: Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi. Verð: Kr. 12.900.- ( Nemar: Kr. 5.000.- ) Málþingið er öllum opið, en sérsniðið að fagfólki í heilbrigðisgeiranum Esther Helga Guðmundsdóttir MSc. stofnaði MFM miðstöðina vorið 2006. Þar er boðið uppá einstaklingsmiðaða meðferð við matarfíkn og átröskun, ásamt fræðslu um málefnið fyrir fagaðila og almenning. Borgartúni 3, 105 Rvk, sími 568 3868 www.matarfikn.is ÍRLAND, AP Írska stjórnin vill enn fá því framgengt að erlend- ir kröfuhafar taki að hluta á sig skellinn af gjaldþroti írsku bankanna. Seðlabanki Evrópu, sem hefur höfuðstöðvar í Frank- furt, hefur hins vegar staðið í veginum. Á fimmtudag leiddi nýtt álags- próf í ljós að björgunarféð sem írska ríkið þarf að útvega bönk- unum er 70,5 milljarðar evra, eða um það bil 11.500 milljarð- ar króna. Þetta er 24 milljörðum evra eða nærri 4.000 milljörðum króna hærri upphæð en áður var gert ráð fyrir. Í framhaldi af þessum upp- lýsingum kynnti írska stjórnin áform sín um uppstokkun á bankakerfinu: Ákvörðun hefur verið tekin um að einungis tveir af stóru bönkunum sex sem komnir eru í ríkiseigu fái að lifa áfram: Anglo-Irish Bank og Bank of Ireland. Írska stjórnin hefur fengið samþykki hjá Seðlabanka Evr- ópu til þess að láta eigendur veðtryggðra skuldabréfa taka á sig fimm milljarða evra tap, en það samsvarar ríflega 800 milljörðum króna. Michael Noonan, fjármálaráð- herra Írlands, segir Seðlabank- ann hins vegar ekki fáanlegan til að samþykkja að forgangskröfu- hafar, sem einkum eru breskir, þýskir og bandarískir bankar með óveðbundnar kröfur, taki á sig neitt tap. Noonan sagði þetta þveröfugt við þá leið sem farin hefði verið í Bandaríkjunum, þar sem kröfu- hafar fengu á sig skellinn fljót- lega eftir að bankakreppan þar skall á. „Bandaríska leiðin við að gera hlutina er að deila byrðunum og láta lánardrottna taka á sig hluta sársaukans. Evrópska leiðin er önnur,“ segir Noonan. Hann var ósáttur við áform Evrópusambandsins um að breyta þessu með nýjum reglum, sem eiga ekki að taka gildi fyrr en árið 2013, en þá yrði það orðið of seint fyrir Írland. Noonan segir írsku stjórnina ekki ætla að ganga gegn vilja Evrópska seðlabankans í þessum efnum, en gerir sér þó vonir um að bankinn verði fáanlegur til að skipta um skoðun, enda sé ekki einhugur meðal bankastjóra hans um málið. „Bankinn í Frankfurt er að útvega nærri 200 milljarða evrur í lausafé fyrir írska bankakerfið. Við sögðumst vilja deila byrðun- um en við myndum ekki gera það einhliða,“ sagði hann. gudsteinn@frettabladid.is Aðeins tveir af bönkunum sex fá að lifa Seðlabanki Evrópu kemur í veg fyrir að írsk stjórn- völd láti erlenda lánardrottna taka á sig hluta banka- tapsins. Írska bankakerfið þarf meiri aðstoð en talið var. Aðeins tveir þjóðnýttu bankanna fá að lifa. ANGLO-IRISH BANK Viðskiptavinir í biðröð við hraðbanka annars tveggja stóru bankanna sem ákveðið hefur verið að lifi af þjóðnýtingu bankakerfisins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Bandaríska leiðin við að gera hlutina er að deila byrðunum og láta lánardrottna taka á sig hluta sársaukans. Evrópska leiðin er önnur. MICHAEL NOONAN FJÁRMÁLARÁÐHERRA ÍRLANDS Þrír á slysadeild Þrír voru fluttir á slysadeild með minni háttar áverka eftir árekstur strætisvagns og fólksbíls í Vesturbæ Reykjavíkur á fjórða tímanum í gær. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl þeirra voru. LÖGREGLUFRÉTTIR VIÐSKIPTI Þrjú hundruð starfs- menn Arion banka útskrifuðust á miðvikudag úr sérhæfðu námi frá háskólanum á Bifröst. Námið hófst í fyrra og er liður í aukinni menntun starfs- manna bankans og breytingum á honum sem staðið hafa yfir. Á meðal breytinganna er fækkun útibúa með sérhæfðu starfsfólki. Þar verða jafnframt sérstakir fjármálaráðgjafar, sem fara í sérstakt nám til þess. Í fyrsta hópnum sem fer í slíkt nám eru 47 af starfsmönn- um bankans, samkvæmt upplýs- ingum frá Arion banka. - jab Starfsmenn Arion í sérnámi: Boðar breytt vinnubrögð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.