Fréttablaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 2. apríl 2011 11
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf á sviði viðskipta og reikningsskila
• Reynsla af sambærilegu starfi
• Reynsla af reikningsskilum fjármálafyrirtækja æskileg
• Þekking á IFRS reikningsskilareglum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Nákvæm, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Góðir samskiptahæfileikar
Starfssvið
• Reikningsskil
• Umsjón með bókhaldi
• Skýrslugerð
• Samskipti við endurskoðendur
• Önnur tilfallandi verkefni í samráði
við sviðsstjóra
Íbúðalánasjóður óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf verkefnastjóra
á sviði reikningsskila og bókhalds. Verkefnastjóri heyrir undir sviðsstjóra
fjármálasviðs. Verkefnastjóri ber ábyrgð á framgangi og eftirfylgni verkefna
í reikningsskilum og bókhaldi.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur.bjarnadottir@capacent.is) og Sigríður Pétursdóttir
(sigridur.petursdottir@capacent) hjá Capacent Ráðningum.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl næstkomandi.
Verkefnastjóri
Reikningsskil og bókhald
Tilgangur Íbúðalánasjóðs er að stuðla að því
með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála
að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti
í húsnæðismálum og að f jármunum verði
sérstaklega varið til þess að auka möguleika
fólks til að eignast og leigja húsnæði á við-
ráðanlegum kjörum.
Starfsmannastefna Íbúðalánasjóðs tekur mið
af jafnréttisáætlun. Umsóknir gilda í 6 mánuði
ef ráðið verður í önnur störf á þeim tíma.
ATVINNA
Starfssvið skólastjóra:
• Skipulagning og þróun nýrrar skólastofnunar.
• Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
• Stjórnun og ábyrgð á rekstri skólans og gerð
fjárhagsáætlunar.
• Leiða samstarf nemenda, starfsmanna, foreldra og
skólasamfélagsins í heild.
Leitað er að metnaðarfullum, hugmyndaríkum og fram-
sýnum einstaklingi til að samþætta og leiða skólastarfið.
Menntun og hæfniskröfur:
• Kennsluréttindi og kennslureynsla á leik- og/eða
grunnskólastigi.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis-
og kennslufræði æskileg.
• Umsækjandi hafi sótt sér upplýsingar um nýjustu
áherslur og leiðir í kennslu- og uppeldismálum.
• Reynsla af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.
Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. Öllum umsóknum
verður svarað.
Umsóknir skal senda til sveitarstjóra Húnavatnshrepps,
Húnavöllum 541, Blönduós.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun júlí.
Nánari upplýsingar veitir Jens P. Jensen, sveitarstjóri í
síma 452-4661, 863-3610, jens@emax.is
Húnavatnshreppur - Húnavöllum - 541 Blönduós -
hunavatnshreppur.is - s. 452-4660
Skólastjóri við sameinaða skólastofnun Húnavatnshrepps
Húnavallaskóli og leikskólinn Vallaból á Húnavöllum verða
sameinaðir í eina skólastofnun frá og með 1. ágúst n.k.
Óskað er eftir umsækjendum um stöðu skólastjóra við nýjan
sameinaðan skóla.
Húnavatnshreppur er landstórt og víðfemt sveitarfélag á Norðurlandi-vestra með 420 íbúa. Í skólunum á
Húnavöllum eru 75 nemendur. Húnavallaskóli hefur verið starfræktur síðan 1969 en leikskólinn Vallaból er
nýlegur og tók til starfa sumarið 2008. Góð aðstaða er til kennslu, íþrótta og tómstundastarfs í vistlegu og
öruggu umhverfi. Við skólana er starfrækt mötuneyti. Húsnæði fyrir skólastjóra er til staðar. Næsta þéttbýli
við Húnavelli er Blönduós í um 17 km. fjarlægð.