Fréttablaðið - 02.04.2011, Page 76
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR44
KANKVÍS Í KRIKANUM Forsetahjónin Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson voru heiðursgestir á granna-
slag FH og Hauka í handboltanum í Kaplakrika á fimmtudagskvöld. Þau létu sér ekki nægja að heilsa upp á leik-
menn og þjálfara liðanna heldur líka lukkudýr FH-inga, og vakti gjörningurinn mikla kátínu hjá viðstöddum.
Sjónarhorn
Ljósmynd: Vilhelm Gunnarsson
Við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands er boðið upp á óvenju fjölbreytt og skemmtilegt framhaldsnám þar sem nemendur
þjálfast í að vinna sjálfstætt, tileinka sér sjálfstæða, gagnrýna hugsun, viðsýni og frumleika sem nýtist í fjölbreytilegum störfum.
Meistara- og doktorsnám í Félags- og mannvísindadeild:
Blaða- og fréttamennska (MA nám) Bókasafns- og upplýsingafræði (MA, MLIS og Ph.D. nám)
Félagsfræði (MA og Ph.D. nám) Fötlunarfræði (MA og Ph.D. nám)
Hagnýt þjóðfræði (MA nám) Hnattræn tengsl, fólksflutningar og fjölmenningarfræði (MA nám)
Mannfræði (MA og Ph.D. nám) Náms- og starfsráðgjöf (MA og Ph.D. nám)
Norræn trú (MA nám) Safnafræði (MA og Ph.D.nám)
Þjóðfræði (MA og Ph.D. nám) Þróunarfræði (MA og Ph.D.nám)
Nemendur deildarinnar eiga möguleika á að taka þátt í rannsóknum á vegum kennara og
framhaldsnemar starfa jafnvel sem aðstoðarkennarar.
Góð aðstaða er fyrir nemendur sem stunda nám í deildinni.
Kynning á framhaldsnámi deildarinnar og fræðasviðsins verður
þriðjudaginn 5. apríl nk. kl. 15:30-18:00 Í Odda.
Nánari upplýsingar um námsgreinar deildarinnar er að finna á heimasíðu deildar:
www.felagsogmannvis.hi.is eða á deildarskrifstofu í síma 525-5444. Jafnframt má finna
upplýsingar um hvaða námsleiðir bjóða upp á fjarnám.
Frestur til að sækja um framhaldsnám er til 15. apríl nk.
Rafrænt umsóknareyðublað er á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is.
ERT ÞÚ AÐ HUGSA UM AÐ FARA Í FRAMHALDSNÁM
EN ÁTT EFTIR AÐ ÁKVEÐA ÞIG?
FÉLAGS- OG MANNVÍSINDADEILD
FÉLAGSVÍSINDASVIÐ