Fréttablaðið - 02.04.2011, Síða 90

Fréttablaðið - 02.04.2011, Síða 90
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR58 folk@frettabladid.is Heilsuferð til Spánar með Heilsuborg, Sirrý og VITA Komdu léttari heim VITA er lífið VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is VITA er í eigu Icelandair Group. GROUP Verð frá 159.900 kr. * og 15.000 Vildarpunktar Orihuela Costa Resort 12. – 19. maí á mann m.v. 2 í tvíbýli Innifalið: Flug til Alicante, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli, gisting með hálfu fæði og íslensk fararstjórn. * Verð án Vildarpunkta 169.900 kr. Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum. Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins. Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur Skemmtileg vikuferð í sólina á Spáni þar sem fléttað er saman hreyfingu, gleði, dekri og fræðslu. Heilsukokkur matreiðir kræsingar fyrir hópinn. Hentar fyrir einstaklinga og hópa, konur og karla á öllum aldri. Gist er á litlu, fallegu hóteli sem er eingöngu fyrir Heilsuborgarhópinn. Sirrý og Anna Borg sjúkra- og einkaþjálfari sjá um fararstjórn og námskeið á Spáni. Hin árlega Tom Selleck- mottukeppni var haldin á skemmtistaðnum Boston á miðvikudaginn var. Sam- keppnin var hörð en Friðrik Ingvar Ingimundarson bar sigur úr býtum en Styrmir Guðmundsson hreppti annað sætið. Útvarpsmað- urinn knái, Andri Freyr Viðarsson, var kynnir kvöldsins og sá um að halda uppi fjörinu á milli atriða. MOTTUR Í MASSAVÍS Á BOSTON SIGURVEGARI KVÖLDSINS Friðrik Ingvar Ingimundarson skartaði stórkostlegri mottu og var kosinn sigurvegari kvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Styrmir Guðmundsson þótti vera með næstbestu mottu kvöldsins. Hér er hlýtur hann verðlaun sín. Valdi Garðars mætti í líki varðstjóra í villta vestrinu. Eins og sjá má var fjölmennt á Boston á miðvikudaginn. Leikkonan María Birta Björnsdóttir var á meðal áhorfenda. Ægir Ingimundarson var vígalegur á að líta er ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. Þeir Ragnar Guðmundsson og Hilmar Friðrik Árnason voru flottir að sjá. Leikkonan Kate Hudson segist varla eiga orð yfir ágæti móður sinnar, Goldie Hawn, í viðtali við Daily Express. „Móðir mín lítur frábærlega út og er í rosalega formi miðað við aldur. Hún er að verða 65 ára og samt í betra formi en ég,“ segir Hudson en hún á von á sínu öðru barni með söngvara Muse, Matt Bellamy. „Ég er viss um að mamma á eftir að lifa lengur en við öll með þessu áframhaldi enda lítur hún betur út með hverju árinu.“ Hrósar mömmu MÖMMUSTELPA Kate Hudson segir móður sína, leikkonuna Goldie Hawn, yngjast með árunum. NORDICPHOTOS/GETTY Leikararnir Sean Penn og Scar- lett Johansson hafa verið að stinga saman nefjum um nokkurt skeið. Tímaritið The Enquirer heldur því fram að Penn sé þó orðinn svo stjórnsamur að Johansson þoli ekki lengur við. Penn er sagður heimsækja Johansson á tökustað kvikmyndar- innar We Bought a Zoo daglega og fellur hegðun hans ekki í kramið hjá samstarfsfélögum Johansson. „Hann verður fúll út í hvern þann mann sem svo mikið sem horfir í áttina að Scarlett og heimt- ar að starfsfólkið sinni öllum hennar þörfum. Ef Scarlett er svöng þá sendir Penn ein- hvern á næsta veitingastað til að ná í mat handa henni. Ef honum finnst eitt- hvað að förðuninni fær hann sminkurnar til að laga það. Þetta er allt mjög einkennilegt,“ var haft eftir innan- búðarmanni. Sambandið er ekki talið eiga eftir að verða langlíft enda er Johansson nýskilin við leikar- ann Ryan Reynolds. „Scarlett hélt að það yrði gaman að eyða stund með Sean eftir skilnaðinn en hún vill ekki eyða tíma með einhverjum sem hagar sér eins og faðir hennar.“ Brestir í sambandinu SAMBANDSSLIT Í AÐSIGI Samband Scarlett Johans- son og Seans Penn gengur ekki vel. Hann þykir með eindæmum stjórnsamur. Robby Krieger og Ray Manza- rek, fyrrverandi liðsmenn hljómsveitarinnar The Doors, halda tónleika í júlí í tilefni þess að þrjátíu ár verða liðin síðan Jim Morrison dó. Tónleik- arnir verða haldnir í París þar sem söngvarinn lést í baðkari 3. júlí 1971. Krieger og Manzarek eru á leiðinni í tónleikaferð í sumar þar sem þeir ferðast einnig til Ísraels, Rússlands og Hollands. The Doors hefur selt yfir áttatíu milljónir platna um heim allan. Árið 1991 leikstýrði Oliver Stone myndinni The Doors þar sem Val Kilmer lék Jim Morrison. Minnast Morrison JIM MORRISON Þrjátíu ár verða liðin frá dauða goðsagnarinnar í júlí næst- komandi. 15 Bassaleikarinn Árni Hjörvar og félagar í bresku hljómsveitinni The Vaccines eru í 15. sæti breska breiðskífulistans þessa vikuna með plötuna What Did You Expect from The Vaccines.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.