Fréttablaðið - 02.04.2011, Side 102
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR70
PERSÓNAN
Baldur
Borgþórsson
Aldur: 47 ára
Starf: Einka-
þjálfari í World
Class.
Fjölskylda:
Konan heitir
Linda Jónsdóttir,
einkaþjálfari
í World Class, og börn þeirra eru
Úrsúla Karen, Alexander Jón og
Baldur Páll.
Foreldrar: Karen I. Jónsdóttir og
Borgþór Guðmundsson, sem er
látinn.
Búseta: Jöklafold í Grafarvogi.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Baldur hefur vakið athygli fyrir leik sinn í
sjónvarpsþáttunum Pressa á Stöð 2.
„Ég hef lengi ætlað að selja fötin mín
og gefa ágóðann en aldrei komið mér
í það enda tímafrekt að fara í gegnum
fataskápinn,“ segir Manúela Ósk Harð-
ardóttir, fyrrverandi Ungfrú Ísland, en
hún hefur nú opnað fataskáp sinni fyrir
landsmönnum og er að selja þær flíkur
sem hún er hætt að nota á síðunni Fata-
skápur Manúelu á Facebook.
„Ég mun gefa þá peninga sem ég fæ
fyrir söluna plús jafnháa upphæð til
góðgerðarmála“ segir Manúela en hún
hefur ekki ákveðið hvaða málefni mun
njóta góðs af fatasölunni. „Úti í Eng-
landi eru allir að gefa til styrktar fórn-
arlömbunum í Japan, svo það er líklegt
að ég geri slíkt hið sama en svo væri
ég einnig til í að finna eitthvað gott
hér heima,“ segir Manúela en salan
hefur gengið framar björtustu vonum
og hefur hún ekki undan að bæta inn
nýjum klæðum. „Þetta gengur mjög vel
og fólk getur búist við fleiri fötum inn á
síðuna bráðlega,“ segir Manúela en hún
er að selja margar gersemar frá Júni-
form, 66North, Hugo Boss og Alexander
McQueen. Spurð hvort hinn frægi Tyson
kjóll muni rata inn á síðuna svarar hún
neitandi „Nei, ég held að ég selji hann
aldrei.“
Manúela er stödd hér á landi í kær-
komnu fríi og tekur ekki fyrir að verða
með annan fótinn á Íslandi í framtíðinni.
- áp
Manúela selur gersemar á netinu
Gísli Örn Garðarsson leikstýrir
jólasýningu Konunglega Shake-
speare-leikhússins, eins virtasta
og stærsta leikhúss Bretlands, á
þessu ári. Sýningin verður leikgerð
Davids Farr eftir sögu Hróa hattar,
einnar þekktustu þjóðsagnapers-
ónu Englands, sem rændi frá þeim
ríku og gaf hinum fátæka.
„Ég hugsaði mig auðvitað
tvisvar um, það er margt á döfinni
hjá okkur í Vesturporti og maður
leiddi hugann að því. Þetta er
síðan auðvitað eitt af virtustu leik-
húsum í heimi,“ segir Gísli þegar
Fréttablaðið nær tali af honum
á miðri æfingu Húsmóðurinnar,
leikverks Vesturports sem frum-
sýnt verður í Borgarleikhúsinu
hinn 27. apríl. Gísli hefur þegar
fengið Börk Jónsson til að gera
leikmynd sýningarinnar og hann
útilokar ekki að fleiri íslenskir
listamenn komi við sögu. „Maður
verður að nýta svona tækifæri til
að gefa fólki færi erlendis og prófa
nýja hluti.“
Um er ræða gríðarlega stóra
sýningu með tólf leikurum plús
hljómsveit. Leikhúsið leggur mikið
í hana enda verður þetta fyrsta
sýningin eftir gagngerar endur-
bætur á leikhúsinu sjálfu sem gera
það að tæknilega best útbúna leik-
húsi Bretlands. „Þetta býður upp á
heilan leikvöll fyrir mig að leika
mér með.“
Leikverkið er hugsað sem fjöl-
skyldusýning og Gísli segir hand-
rit Farrs vera þrususkemmtilegt.
„Við unnum auðvitað saman að
Hamskiptunum. Hróa er stillt upp
sem þjófi, það fá hausar að fjúka og
þetta gæti orðið svolítið groddara-
legt.“ Undirbúningur hefst strax að
lokinni frumsýningu á Húsmóður-
inni og verkið verður síðan frum-
sýnt hinn 1. desember. - fgg
Gísli Örn leikstýrir Hróa hetti
TEKST Á VIÐ ÞJÓÐSÖGU Gísli Örn leik-
stýrir Hróa hetti í jólasýningu Konung-
lega Shakespeare-leikhússins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Athyglin var slæm á marga vegu
en hún kom mér á kortið þannig
að nú get ég einbeitt mér að þeirri
tónlist sem mig langar til að gera,“
segir Júlí Heiðar. Spóla tilbaka, nýtt
lag söngvarans, verður sett í spilun
á mánudag. Lagið skartar rappar-
anum Óskari Axel í gestahlutverki
og er um að ræða þvottekta sykur-
sætan poppsmell. Texti lagsins er
hins vegar í dramatískari kantin-
um, hann er uppgjör Júlí Heiðars,
hinnar átján ára gömlu poppstjörnu
frá Þorlákshöfn, við fortíðina.
„Málið var að ég gerði alveg
svakaleg mistök, ég fór á bakvið
kærustuna mína. Og þegar maður
gerir eitthvað sem maður sér jafn-
mikið eftir þá vill maður fá að spóla
til baka. Lagið fjallar því ekki beint
um hana, kærustuna mína, held-
ur um þá sem vilja fá að spóla til
baka.“ Júlí bætir því við að hann
og kærastan hafi gert upp sín mál,
hreinsað andrúmsloftið og að þau
hafi aldrei verið jafn hamingjusöm
og í dag. „Hún er búin að taka mig
í sátt.“
Júlí Heiðar var á allra vörum á
síðasta ári þegar lagið Blautt dans-
gólf tröllreið útvarpsstöðvunum og
unglingar kyrjuðu lagið við hvert
tækifæri. Texti lagsins fór fyrir
brjóstið á forráðamönnum ungra
aðdáenda poppstjörnunnar og eins
og Fréttablaðið greindi frá voru
barnaverndaryfirvöld farin að
fylgjast með því að allt færi sóma-
samlega fram á dansleikjum þar
sem Júlí var meðal flytjenda. „Ég
er búinn að þroskast mikið síðan
þetta var. Það sem við gerðum
þarna og mér fannst aldrei koma
nægjanlega fram var að lagið átti
að skapa mér nafn, þetta var grín.
Ég samdi hvorki textann né lagið en
núna sem ég allt sjálfur,“ segir Júlí
og upplýsir að plata sé í burðarliðn-
um. „Við ætlum samt að gera þetta
hægt og rólega og platan kemur
ekki út fyrr en við erum komnir
með nægilega gott efni.“
Tónlistarmaðurinn ungi hefur
því jafnað sig á þeim mikla brotsjó
sem yfir hann gekk og hann seg-
ist hlakka til að byrja feril sinn
upp á nýtt. „Ég og Óskar Axel
erum sannfærðir um að þetta verði
okkar sumar. Það er kominn tími
á að hvíla Friðrik Dór og Erp, nú
er komið að mér og Óskari,“ segir
Júlí, en þeir tveir verða í eldlínunni
á Söngvakeppni framhaldsskólanna
á Akureyri um næstu helgi þar sem
lagið verður frumflutt.
freyrgigja@frettabladid.is
JÚLÍ HEIÐAR: KOMINN TÍMI Á AÐ HVÍLA FRIÐRIK DÓR OG ERP
Gerir upp mistök í einkalífinu
ÆTLAR SÉR STÓRA HLUTI Júlí Heiðar hefur sagt skilið við fortíðina á blauta dansgólfinu og ætlar núna að gefa út lög eftir sjálfan
sig. Nýtt lag með þessari átján ára gömlu poppstjörnu verður sett í spilun á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TÆMIR FATASKÁPINN
Manúela Ósk Harðar-
dóttir selur fötin sín
á Facebook og ætlar
að gefa ágóðann til
góðgerðamála.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sun 3.4. Kl. 15:00 Sun 10.4. Kl. 15:00 Sun 17.4. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 3.4. Kl. 14:00
Sun 3.4. Kl. 17:00
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Sun 1.5. Kl. 14:00
Sun 1.5. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Lau 2.4. Kl. 20:00
Mið 13.4. Kl. 20:00
Fim 14.4. Kl. 20:00
Mið 27.4. Kl. 20:00
Lau 30.4. Kl. 20:00
Mið 4.5. Kl. 20:00
Fim 5.5. Kl. 20:00
Brák (Kúlan)
Ö
Lau 2.4. Kl. 20:00
Lau 9.4. Kl. 20:00
Sun 10.4. Kl. 20:00
Lau 16.4. Kl. 20:00
Sun 17.4. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
Ö
U
Fös 8.4. Kl. 20:00 Þri 12.4. Kl. 20:00 Fös 15.4. Kl. 20:00 síð.sýn
U
Ö
Ö
U
Ö Ö
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Mið 6.4. Kl. 20:00 Fors.
Fim 7.4. Kl. 20:00 Fors.
Fös 8.4. Kl. 20:00 Frums.
Lau 9.4. Kl. 20:00 2. sýn
Fös 15.4. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 16.4. Kl. 20:00 4. sýn
Fim 28.4. Kl. 20:00 5. sýn
Fös 29.4. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 6.5. Kl. 20:00 7. sýn
Lau 7.5. Kl. 20:00 8. sýnÖ Ö
Ö
Ö
Ö Ö
U
Ö
Ö
U
Ö
Ö
U
Ö
Ö
U
U
U
Ö
Ö
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing