Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 4
8. apríl 2011 FÖSTUDAGUR4 KJARAMÁL Jóhanna Sigurðardótt- ir forsætisráðherra sló sáttatil- lögu Samtaka atvinnulífsins um lausn í sjávarútvegsmálum út af borðinu með afgerandi hætti á aðalfundi samtakanna í gær. Vil- mundur Jósefsson, formaður SA, lýsti furðu sinni á afstöðu ráðherra en samtökin hafa sett niðurstöðu í sjávarútvegsmálum sem skilyrði fyrir gerð kjarasamninga. Jóhanna sagði í ávarpi sínu að krafa SA um að stjórnvöld leystu áratuga langan ágreining um sjáv- arútvegsmál óbilgjarnar og sagði grundvallaratriði að „festa ekki í sessi forgang núverandi kvótahafa í lokuðu kerfi næstu áratugina og koma í veg fyrir að þeir geti fénýtt sér þessa sameign landsmanna sem fiskimiðin eru“. Hún sagði að útspil SA í málinu, sáttatillöguna, staðfesta að „himinn og haf“ séu á milli stjórnvalda og LÍÚ. „Því verður vart trúað að samstaða sé um það milli allra aðildarfélaga SA að setja það sem skilyrði og hótun fyrir því að kjarasamningar náist að þetta áratuga deilumál verði leyst meira og minna á forsend- um LÍÚ, annars gangi menn frá borði,“ bætti Jóhanna við. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, brást illa við ræðu Jóhönnu í viðtali við Fréttablaðið og sagði samtökin ekki hvika frá þeirri kröfu að sjávarútvegsmálin yrðu leyst áður en skrifað væri undir kjarasamningana. Vilmundur viðurkenndi að ræða Jóhönnu væri köld kveðja inn í yfirstandandi kjaraviðræður og henni fylgdi mikil óvissa og sagð- ist efast um að Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráð- herra, valdi málinu. „Ég segi það í því ljósi að hann hefur verið með málið í fanginu frá því í septem- ber 2010 og ekkert hefur gerst. Við höfum ekki fengið að sjá frum- varpið eða beina aðkomu að mál- inu, sem er einfaldlega fáránlegt,“ segir Vilmundur. svavar@frettabladid.is ALÞINGI Tólf þingmenn, að undir- lagi Lilju Mósesdóttur, hafa lagt fram tillögu til þingsályktun- ar um að settar verði reglur um störf pólitískt ráðinna starfs- manna í stjórn- sýslunni. Vilja þau að skýr skil séu milli stjórnsýslu- legra starfa viðkomandi og starfa pólitísks eðlis. Reglunum er einnig ætlað að tryggja að póli- tískar skamm- tímaráðningar verði ekki grund- völlur fastráðningar. Þá er lagt til að gerð verði úttekt á störfum, starfssviði og ábyrgð pólitískt ráðinna starfs- manna í stjórnsýslunni. - bþs LILJA MÓSESDÓTTIR Lilja og ellefu aðrir þingmenn: Vilja skýr mörk milli pólitíkur og stjórnsýslu DÓMSMÁL Fyrrverandi fram-kvæmdastjóri og þjálfari íþrótta- félags hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sextán ára stúlku. Maðurinn var með hópi ung- menna í keppnisferðalagi erlendis þegar hann braut gegn stúlkunni. Á gististað hópsins fékk hann betri og breiðari dýnu en aðrir. Hann bauð stúlkunni að sofa hjá sér á dýnunni, sem hún þáði, og tók síðan að þukla á henni innanklæða. Maðurinn neitaði sök en dóm- urinn taldi framburð stúlkunnar trúverðugan. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða henni 400 þúsund í skaðabætur. - jss Fékk sex mánaða fangelsi: Þjálfari þuklaði á stúlku í ferð HEILBRIGÐISMÁL Ákveðið hefur verið að innkalla af markaði blandaða ávexti í poka frá Hagveri þar sem lifandi smádýr, svokallað- ir mítlar, fundust í einum poka. Vegna þessa telst varan óhæf til neyslu og því ákváðu Nathan & Olsen í samráði við matvælaeftir- lit Heilbrigðiseftirlits Reykjavík- ur að innkalla alla þá vöru sem er með lotunúmerið LO246. Þeir sem kunna að eiga umrædda vöru í fórum sínum eru beðnir um að farga henni eða skila til Nathan & Olsen hf. - jss Hagversávextir innkallaðir: Smádýr fund- ust í ávöxtum Sáttatillaga SA í sjávarútvegsmálum var sett fram 5. apríl. Eftirfarandi texti fylgdi yfirlýsingu samtakanna: Samtök atvinnulífsins hafa kynnt ríkisstjórninni og sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra tillögu til sátta um efnislega útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi. Tillagan felur í sér grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða frá því sem nú er og komið er verulega til móts við sjónarmið stjórnarflokkanna í þessum efnum. SA telja að nú sé einstakt tækifæri til að ná nauðsynlegri sátt um málefni sjávarútvegsins. Samtök atvinnulífsins hafa fulla trú á að ríkisstjórnin muni taka í útrétta sáttahönd atvinnulífsins í þessum efnum. Sáttatillaga SA sett fram þann 5. apríl KALDAR KVEÐJUR Jóhanna var afdráttarlaus í sinni ræðu og hafnar sáttatillögu SA í sjávarútvegsmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÉLAGSMÁL Dvalarrýmum á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum verður ekki fækkað eins og boðað hafði verið. Ríkisstjórnin ákvað þetta á fundi sínum á Ísafirði á þriðju- dag. Þetta er eitt sextán verkefna um verndun og eflingu byggðar og atvinnusköpunar á Vestfjörð- um. Velferðarráðuneytið hafði til- kynnt hjúkrunarforstjóra heim- ilisins í febrúar að fækka yrði öldrunarrýmum úr fjórtán í tólf á árinu. Reykhólahreppur sagði að rekstrargrundvöllur heimilisins myndi með því bresta. - þeb Hætt við niðurskurð: Ekki fækkað á dvalarheimili HAITI, AP René Préval, fráfar- andi forseti Haítí, segir Öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna einblína allt of mikið á hernaðaraðgerðir í stað þróunar og uppbyggingar í þeim samfélög- um sem hafa þurft á alþjóð- legri friðar- gæslu að halda. Á fundi með ráðinu í fyrra- dag sagðist hann hafa lagt áherslu á það strax árið 2006 að í stað skriðdreka og hermanna sendu Sameinuðu þjóðirnar skurð- gröfur, verkfræðinga, lögreglu- kennara og lögfræðinga. Á það hafi samt ekki verið hlust- að og nú hafi erlent herlið verið í landinu í ellefu ár, þótt ekkert stríð hafi geisað þar þennan tíma. - gb Gagnrýnir Öryggisráðið: Forseti Haíti segir einblínt um of á hernað RENÉ PRÉVAL Jóhanna sló á „sátta- hönd atvinnulífsins“ Forsætisráðherra hafnaði sáttatillögu Samtaka atvinnulífsins í sjávarútvegs- málum með afgerandi hætti í gær. Formaður SA undrast málflutning ráðherra. DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir mjög gróf kynferðisbrot gegn fötluðum bróðurbörnum sínum. Þá var hann dæmdur til að greiða stúlkunni sem hann braut gegn eina milljón króna í miskabætur og bróður hennar hálfa milljón. Auk þessa var maðurinn sakfelld- ur fyrir vörslu á miklum fjölda af grófum myndum sem sýndu börn á klámfenginn og kynferðislegan hátt. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður dæmt manninn í fjögurra ára fangelsi og til þess að greiða stúlkunni 1,5 milljónir og bróður hennar eina milljón. Manninum var gefið að sök að hafa haft í frammi kynferðislegar athafnir gagnvart stúlkunni, látið piltinn horfa á og síðan neytt systk- inin til að endurtaka athafnirnar. Í dómi Hæstaréttar segir að maðurinn eigi sér engar máls- bætur. Hann hafi brotið gegn fötl- uðum bróðurbörnum sínum sem báru traust til hans og honum hafði verið trúað fyrir. Jafnframt hafi brot hans verið til þess fallin að hafa slæm áhrif á geðheilsu stúlk- unnar. - jss Hæstiréttur dæmdi mann í þriggja ára fangelsi og til greiðslu miskabóta: Braut gegn fötluðum bróðurbörnum HÆSTIRÉTTUR Stytti fangelsirefsingu manns sem misnotaði fötluð bróður- börn sín. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 23° 21° 16° 10° 19° 21° 9° 9° 21° 20° 24° 12° 31° 13° 20° 14° 11° Á MORGUN 8-15 m/s, hvassast V-til. SUNNUDAGUR 8-18 m/s. 5 8 7 2 6 9 5 5 6 7 8 6 7 7 7 9 8 7 8 8 4 9 8 14 12 8 9 8 10 7 7 6 HITABYLGJA Á MORGUN? Það lítur út fyrir allt að 18 stiga hita á Norðausturlandi á morgun í þurru og nokkuð björtu veðri. Heldur síðra veður suðvestan til um helgina með stífri sunnanátt, vætu og 8-12 stiga hita. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður GENGIÐ 07.04.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 215,9296 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,28 113,82 184,98 185,88 161,56 162,46 21,663 21,789 20,629 20,751 17,844 17,948 1,3325 1,3403 179,69 180,77 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.