Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 28
2 föstudagur 8. apríl núna ✽Ekki missa af augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 blogg vikunnar Ítölsk veisla Bloggarinn Angelica Ardasheva varð umtöluð eftir að The Sartorial- ist myndaði hana á götum Mílanó og lýsti henni sem þéttri konu. Við- brögðin létu ekki á sér standa og í kjölfarið var þessi unga mær umtöluð meðal net- verja. Stúlkan held- ur úti eigin bloggi sem má finna á slóðinni www.angystearo- om.com. Þar fjallar hún um tísku og myndar og skrá- setur eigin fata- stíl reglulega. Blogg sem er þess virði að heimsækja og skoða. Götuglamúr Götubloggið www.glamcanyon. blogspot.com er stút- fullt af götutískumynd- um héðan og þaðan. Frísklegt blogg með skemmtilegum myndum sem gaman er að renna í gegnum. N ýtt vefrit, Bast Magaz- ine, fer í loftið um há- degisbil á morgun. Á bak við ritið standa Hafrún Alda Karlsdóttir, Íris Dögg Einarsdóttir og Sif Kröyer. Að sögn Sifjar, ritstjóra vefrits- ins, höfðu allar stúlkurnar geng- ið með þessa hugmynd í magan- um í nokkra stund en hjólin fóru fyrst að snúast þegar þær hlutu peningastyrk frá Dansk Islandsk Fond. „Styrkurinn gerði það að verkum að við gátum leigt at- vinnuhúsnæði og komið undir okkur fótunum. Þetta gerði það einnig að verkum að við fengum aukið sjálfstraust því styrkveit- ingin sýndi að fleiri höfðu trú á þessu verkefni með okkur,“ út- skýrir hún. Meðal þess efnis sem fjallað verður um í Bast Magazine er tíska, tónlist, menning, hönnun og kvikmyndir og verður megin- áhersla lögð á viðburði sem fram fara á Íslandi og í Danmörku. Auk þess að gefa út vefritið annan hvern mánuð munu stúlkurnar halda úti bloggi og birta vídeó- klippur á Bast-TV. Sif segir mikla vinnu liggja að baki fyrstu út- gáfunni og hlakkar mikið til að sjá viðbrögð fólks. „Við erum allar í námi og með fjölskyld- ur þannig að það liggur mikil en skemmtileg vinna að baki þessu. Við höfum þó verið svo heppn- ar að fá utanaðkomandi aðstoð með skrifin og fólk hefur almennt verið mjög hjálpsamt,“ segir Sif og þvertekur fyrir að þær muni slá slöku við eftir útgáfu fyrsta tölublaðs. „Vinnan heldur áfram. Við erum ekkert að fara að skála í kokteilum og slappa af heldur erum strax farnar að vinna efni í næsta tölublað.“ Hægt verður að nálgast fyrsta tölublað Bast Ma- gazine á slóðinni www.bast-ma- gazine.com. - sm NÝTT VEFTÍMARIT KEMUR ÚT Í FYRSTA SINN Á MORGUN: ÆTLA EKKI AÐ SLAPPA AF Gefa út blað Hafrún Alda, Sif og Íris Dögg standa á bak við vefritið Bast Magazine sem kemur út í fyrsta sinn á morgun. MYND/ÍRIS DÖGG == SALON REYKJAVÍK VERTU VELKOMMINN Á SALON REYKJAVÍK GRANDAGARÐUR 5 101 REYKJAVÍK SÍMI: 56 85 305 SALON REYKJAVÍK BÝÐUR UPP Á NÝJA NATURA KERATIN SLÉTTUNARMEÐFERÐ SEM GEFUR MJÚKT, SLÉTT, HEILBRIGÐT, FALLEGT OG GLANSANDI HÁR. g g SUMARLEGAR Leikkonan Emma Roberts og fatahönnuðurinn Mary- Kate Olsen voru báðar gestir í veislu sem haldin var í Beverly Hills síðustu helgi. NORDICPHOTOS/GETTY NÁTTÚRULEGA MJÚK HÚÐ Skin Energetic-húðvörurnar frá Biotherm endurnæra þreytta húð. Þetta orkugefandi serum inniheld- ur kraft frá brokkólíi sem endurnærir og styrkir húðina. Yndislegt krem sem ilmar einnig dásamlega og gerir húðina silkimjúka og endurnærða. S equences-listahátíðin var sett í sjötta sinn síðastliðinn föstudag og lýkur henni nú um helgina. Fjöldi erlendra og íslenskra lista- manna tekur þátt í hátíðinni í ár eins og fyrri ár. Meðal þess sem hægt verður að sjá um helgina eru athyglisverðir gjörningar sem fram fara í Útgerðinni við Grandagarð 16 á milli 14 og 18. Að auki er opið í galleríi Kling og Bang alla helgina. Listamaður- inn Friðgeir Ein- a r s s o n s ý n i r einleikinn Ekk- ert í Norræna húsinu klukkan 15 á laugardag. Allar nánari upplýsingar um þá atburði sem eiga sér stað um helgina má finna á heima- s íðu hát íðar- innar á slóðinni www.sequences. is. - sm Sequences-listahátíðinni lýkur um helgina: List í fullu fjöri Sequences Listahátíðin Sequences er í fullu fjöri. Hátíðinni lýkur nú á sunnudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.