Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 44
8. apríl 2011 FÖSTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. uss, 6. eftir hádegi, 8. skammst.,
9. fæðu, 11. tveir eins, 12. óláns, 14.
mont, 16. hvað, 17. stilla, 18. hylli, 20.
íþróttafélag, 21. viðlag.
LÓÐRÉTT
1. tilraunaupptaka, 3. kringum, 4.
skáldsaga, 5. dæling, 7. hreyfast, 10.
skír, 13. drulla, 15. bakki, 16. rámur,
19. drykkur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. suss, 6. eh, 8. möo, 9.
mat, 11. gg, 12. ógæfu, 14. grobb, 16.
ha, 17. róa, 18. ást, 20. kr, 21. stef.
LÓÐRÉTT: 1. demó, 3. um, 4.
sögubók, 5. sog, 7. haggast, 10. tær,
13. for, 15. barð, 16. hás, 19. te.
Nær þessi
trygging yfir
„verk guðs“?
Ó almáttugur! Hvernig
gastu þetta Jói?! Ég
hélt að þú hefðir ein-
hverja sjálfsstjórn! En
nei, það er bara öllum
hleypt upp í rúm!
ALDREI aftur!
Hér eftir hugsa ég
ekki um kvenfólk.
Það fær að vera í friði
fyrir mér!
Hæ
hæ!
En á hinn bóg-
inn … ég má ekki
heldur breytast í
homma!
Ég held að þú komist ekkert
lengra núna.
Að hurðinni?
Meinarðu ekki
inn í herbergið?
Hentu henni bara
að hurðinni að
herberginu mínu,
ókei?
Takk fyrir að lána mér
orðabókina
þína Palli.
Ég ætla að vera heima í dag og
reyna að losna við þetta kvef.
En þú verður að lofa mér því að
hafa ekki áhyggjur af mér.
Ég hef þá ekki
frekari áhyggjur
af því.
HA! HA! HA!
HA! HA! HA!
HO! HÍ! HÍ!
HA! HA! HA!
Trygg-
ingasölu-
maður
„Nei eða já, nú eða þá, aldrei mér tekst að taka af skarið, vakin og sofin
er, velti þér endalaust fyrir mér ...“ Hvern
hefði grunað að þessir þankar sem Stjórnin
kastaði á níunda áratugnum fram fyrir
Evrópu í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva ættu eftir að vera slík áhríns-
orð fyrir íslenska þjóð.
OG NÚ, sem þá, bíður Evrópa af samsvar-
andi ákafa eftir því að niðurstaða komist í
Nei eða já Íslendinga. Sem sagt: ekkert sér-
staklega miklum. Það er örugglega ofmetið
að ætla að allir helstu fjármálamenn, hag-
fræðingar og siðspekingar Evrópu og
heimsins alls bíði með öndina í hálsin-
um eftir niðurstöðu í kosningum morg-
undagsins. Njá eða jei er örugglega
ekki mesta hitamálið á kaffistofum í
Finnlandi eða Madríd; jafnvel í Eng-
landi og Amsterdam eru fótbolti og
veðrið margfalt líklegri umræðuefni
en niðurstöður kosninganna á Íslandi
á morgun.
SAMT er ekki þar með sagt að
þetta séu ekki mikilvægar kosn-
ingar. Á morgun er kosið um
stríð eða frið, lög eða sið, og
þjóðin skiptist í tvær fylk-
ingar, eða eins og segir í lagi
með Evrópuförunum í hljóm-
sveitinni Módel: „Andstæður –
þú og ég“. Og niðurstöður þessara kosn-
inga eiga mögulega eftir að vekja athygli út
fyrir landsteinana og hafa einhver áhrif á
stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna.
„HVERT mannsbarn skuldar heila milljón,“
segir í lagi af Hrekkjusvínaplötunni frá
1977. Það er ekkert nýtt að skuldir lands-
feðranna komi niður á börnum. Fyrir nú
utan það að íslensk börn skulda svo miklu
meira en milljón nú þegar. Hvort það er
réttlátt er álitamál. Aðallega eru þetta þó
skuldir sem stofnað var til í nafni okkar
sem þjóðar og í því nafni þarf að greiða
þær. Við erum ekki andstæður, við erum
samstæður og samábyrg þegar yfirvöld
sem við kjósum yfir okkur gera skuldbind-
ingar. Meira að segja þótt við höfum ekk-
ert kosið þau sjálf. Ef formaður húsfélags-
ins dettur í það fyrir peningana sem átti að
nota til að borga iðnaðarmönnunum situr
húsfélagið uppi með skuldina. Ekki iðnað-
armennirnir. Jafnvel þótt fólkið á fyrstu
hæðinni hafi ekkert fengið í sitt glas nema
kannski flatskjá.
EN HVAÐ um allt þetta. Á morgun kemst
loksins einhver niðurstaða í þetta blessaða
mál og kannski ræður sú niðurstaða ein-
hverju um það hvort við lendum í sjötta eða
sextánda sæti í Evrópu. Eða dettum hrein-
lega úr keppni. Er það ekki annars það sem
málið snýst um?
Nei eða já
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
sameiginlegt mat framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
umhverfisáhrif eftirtalinna framkvæmda skuli ekki meta
sameiginlega samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum. nr. 106/2000 m.s.br.
Hólmsárvirkjun (allt að 80 MW), Búlandsvirkjun (allt
að 150 MW) og flutningskerfi raforku frá þeim að
byggðalínu, Skaftárhreppi.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Lauga-
vegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á
heimasíðu Skipulagsstofnunar:
www.skipulagsstofnun.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráð-
herra og er kærufrestur til 9. maí 2011.
Skipulagsstofnun