Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 6
8. apríl 2011 FÖSTUDAGUR6
ICESAVE: Umræður forystumanna flokkanna
Málstofa um mótun peningastefnu
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið, í samvinnu við
Seðlabanka Íslands og Háskóla Íslands, efnir til
málstofu um mótun framtíðarstefnu í peningamálum.
Málstofan fer fram í Háskóla Íslands, sal HT-102,
þriðjudaginn 12. apríl kl. 15-17, og er öllum opin.
Dagskrá:
15:00 Þórólfur Matthíasson prófessor, forseti Hagfræðideildar,
setur málstofuna
15:05 Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur SÍ:
Peningastefna eftir höft
15:30 Friðrik Már Baldursson prófessor:
Valkostir í peningamálum
15:45 Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur:
Þjóðhagsvarúð, er það lausnarorðið?
16:00 Almennar umræður
Fundarstjóri: Björn Rúnar Guðmundsson,
skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneyti
Þótt forystumenn stjórn-
málaflokkanna séu ekki
allir sammála um ágæti Ice-
save-samninganna og þrír
ætli að segja já og tveir
nei eru þeir sammála um
að sólin muni áfram koma
upp, hvernig sem atkvæða-
greiðslan á morgun fer.
Efnt var til opins fundar um Ice-
save með forystumönnum flokk-
anna í Háskóla Íslands í gær.
Jóhanna Sigurðardóttir, for-
sætisráðherra og formaður Sam-
fylkingarinnar, tók fyrst til máls.
Sagði hún að í sínum huga hefði
málið frá upphafi snúist um að
finna skástu lausnina fyrir land
og þjóð út úr þessu erfiða máli.
Kvaðst hún sammála þeim sem
teldu að þeim mun lengur sem það
væri óleyst, þeim mun dýrara og
skaðlegra yrði það fyrir þjóðina.
Sagði hún að vegna lánshæfismats
hefðu erlendar lántökur og endur-
fjármögnun sveitarfélaga, orku-
fyrirtækja og ríkissjóðs verið
nær ómöguleg en við blasti að úr
muni rætast með samþykkt máls-
ins. Nefndi hún sem dæmi að fjár-
magnskostnaður af 1.350 millj-
arða skuldum sem ríkið þurfi að
endurfjármagna á næstunni gæti
hækkað um allt að 216 milljarða
yrði málið fellt. „Menn verða að
hafa kjark til að horfast í augu
við þær efnahagslegu afleiðing-
ar sem blasa við ef ekki tekst að
ljúka Icesave-deilunni með sátt,“
sagði Jóhanna. Hún kvað atvkæða-
greiðsluna aðeins snúast um lífs-
kjör, ekki ríkisstjórnina, ekki ein-
staka flokka eða forystumenn
þeirra, ekki um ESB, ekki um EES
og ekki um AGS.
Ekkert nýtt komið fram
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagðist frá
fyrsta degi hafa staðið frammi
fyrir mikilli óvissu um málið og
því talið að rétt væri að leita samn-
inga. Hann hafi verið óánægður
með fyrri samninga en með nýrri
nálgun hefði náðst niðurstaða sem
hann teldi viðunandi. Fjármögn-
unarkostnaðurinn við núgildandi
samning væri miklum mun minni
en í fyrri samningum.
Bjarni upplýsti að oft í samn-
ingaferlinu sem stóð allt síðasta ár
hefði legið við að upp úr slitnaði.
Hann sagðist ekki halda að það
yrðu ragnarök þó málið yrði fellt
en því fylgdi hins vegar mikil
óvissa. Hún væri úr sögunni með
samningi.
Sagði hann ekkert nýtt hafa
komið fram í málinu frá því að
það var samþykkt á Alþingi sem
breytti afstöðu hans til þess. Hann
ætlaði að greiða því atkvæði sitt í
þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Gætum fengið allt til baka
Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra og formaður VG,
lagði áherslu á að málið hyrfi ekki
með nei-i. Nú ætti þjóðin kost á að
ljúka þessu ólánsmáli með viðráð-
anlegum hætti. Vaxtakjör samn-
inganna væru allt önnur og betri
en öðrum ríkjum byðist núna.
Hann sagði flesta sammála um
að þetta væri síðasta tækifærið til
að ljúka málinu með samkomulagi.
Steingrímur gerði fréttir af sölu
Iceland-verslanakeðjunnar að
umtalsefni og benti á að ef allt þró-
aðist á besta veg gætu Íslendingar
ekki aðeins fengið allan höfuðstól-
inn til baka heldur líka vaxta-
kostnaðinn. „Hvað er þá unnið
með nei-i?“ spurði hann. Nei, væri
vissulega tjáning en fólk þyrfti að
hugleiða vel hvort sú tjáning væri
þess virði að leggja út í nýjan
óvissuleiðangur.
Steingrímur sagði að Ísland
myndi ekki sökkva þó málið yrði
fellt en allt yrði erfiðara enda allir
í vandræðum og háðir þeim kjör-
um sem bjóðast á lánsfjármörk-
uðum. Boðaði hann jafnframt
að ríkið myndi sækja á alþjóð-
lega skuldabréfamarkaði á næstu
vikum ef lögin verða samþykkt á
morgun.
Áhrifin ofmetin
Birkir Jón Jónsson, varaformaður
Framsóknarflokksins, sagðist ekki
fella sig við að Íslendingar bæru
einir alla efnahagslega áhættu ef
illa færi. Að því leyti væri samn-
ingurinn óhagstæður. Alltof mikil
einföldun væri að tala um að
samningarnir kostuðu 30 millj-
arða, óvissan væri mikil og kostn-
aðurinn gæti á endanum numið
um 200 milljörðum króna. Engu
yrði lokið við atkvæðagreiðsluna,
óvíst væri um heimtur úr búinu,
greiðslur úr því og gengisþróun.
Birkir Jón sagði líka að áhrif
Icesave-málsins á efnahagsum-
hverfið væru ofmetin, skulda-
tryggingaálagið hefði til dæmis
lækkað frá því að forsetinn synj-
aði lögunum staðfestingar. Þá
sagði hann fólk sem hann hitti á
erlendri grund ekki kannast við
þetta mál. Að endingu kvaðst Birk-
ir hafna málflutningi þeirra sem
segi sólina ekki koma upp verði
málið fellt.
Opinn tékki
Þór Saari, þingmaður Hreyfingar-
innar, sagði Íslendingum ekki bera
lagaleg skylda til að borga og að
ósanngjarnt væri að velta kostnað-
inum á fólkið í landinu. Samning-
urinn væri í raun opinn tékki inn í
framtíðina og þó að nú um stund-
ir benti til að hann yrði ekki mjög
hár gæti hann farið í rúma 230
milljarða króna á endanum.
Þór sagði að ef málið yrði sam-
þykkt þyrfti ríkið strax á mánu-
dag að borga 26 milljarða vaxta-
greiðslu. Sú fjárhæð væri ekki til
og því þyrfti að skera niður ríkis-
útgjöld til að standa undir henni.
„Ef það verður sagt nei þá verð-
ur bara samið um þetta með sann-
gjörnum hætti,“ sagði Þór.
Sólin kemur áfram upp
ÍBYGGNIR Forystumenn flokkanna voru alvörugefnir á fundi um Icesave í Háskóla Íslands. Fjöldi fólks, nemendur og kennarar,
hlýddi á mál þeirra og spurði margs. Jóhanna, Steingrímur og Bjarni ætla að segja já en Þór og Birkir nei. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kostnaður Íslands af gerð nýjustu
Icesave-samninganna er yfir 300
milljónir króna. Mikill meirihluti
þeirrar fjárhæðar er tilkominn
vegna ráðgjafar og vinnu erlendra
sérfræðinga en innlendi kostnaður-
inn nemur fáeinum tugum milljóna.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra upplýsti þetta á
Alþingi í gær. Ráðherrann hefur
fram til þessa verið ófáanlegur til
að svara fyrirspurnum fjölmiðla um
málið og meðal annars borið fyrir
sig að fram hafi komið fyrirspurn
um efnið í þinginu sem beri að
svara áður en
fjölmiðlum sé
svarað.
Sigmundur
Davíð Gunn-
laugsson,
formaður
Framsóknar-
flokksins, spurði
Steingrím út í
málið á þingi
í gær. Furðaði
hann sig á að kostnaðurinn væri
ekki opinberaður, ekki síst þar
sem samninganefndin hefði
lokið störfum í desember. Vildi
hann jafnframt vita hvort einhver
kostnaður hefði bæst við eftir
að samningarnir voru frágengnir.
Steingrímur kvað svo ekki vera,
samninganefndarmenn fengju ekki
greitt fyrir það sem þeir legðu til
umræðunnar um málið í aðdrag-
anda þjóðaratkvæðagreiðslunnar
á morgun. Sagði hann langhæstu
reikningana frá lögfræði- og ráð-
gjafarstofunum Hawkpoint og
Ashurst, Lee C. Buchheit aðalsamn-
ingamanni og Don Johnston, fyrr-
verandi framkvæmdastjóra OECD.
Samningagerðin kostaði yfir 300 milljónir króna
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að ef Icesave
yrði fellt og lánshæfismat Íslands færi í ruslflokk myndi það þýða aukinn
kostnað upp á allt að 210 milljörðum. Spurði hann Birki Jón því hvers vegna
hann teldi minni áhættu af því að segja nei en já. Svaraði Birkir því til að
samþykkt gæti kostað 300 milljarða fari allt á versta veg en hann haldi því
hins vegar ekki fram að nei-ið sé áhættulaust. Tryggvi sagði jafnframt að Þór
Saari færi vísvitandi með rangt mál þegar hann segði ríkissjóð þurfa að borga
26 milljarða króna vaxtagreiðslu. Peningarnir kæmu úr Tryggingarsjóði inn-
stæðueigenda, þar sem til væru 20 milljarðar en ríkið lánaði sjóðnum þá sex
sem upp á vantaði. Þór sagði þetta sama vasann og bað vinsamlegast um
spurningar frá öðrum en þingmönnum. Hlaut hann gott klapp fyrir.
Þór sagði síðar Hreyfinguna alltaf hafa verið þeirrar skoðunar að ábyrgð á
Icesave yrði skipt milli ríkjanna og að Hollendingar og Bretar fengju þrotabú
Landsbankans til umráða. Bjarni sagði það ekki vera hægt þar sem íslenska
ríkið ætti ekki búið heldur kröfuhafar. Því gæti ríkið ekki ráðstafað því að vild.
Birkir Jón furðaði sig á að áhættan væri öll Íslendinga. Steingrímur sagði
það rangt, Bretar og Hollendingar borguðu næstum jafn mikið og Íslendingar
þar sem þeir borguðu reikningshöfum umfram trygginguna.
Steingrímur var spurður að því úr sal hvort stefna ríkisstjórnarinnar í
ýmsum málum væri ekki mun skaðlegri efnahagslífinu heldur en Icesave og
hefði skapað meiri óvissu. Hann svaraði því til að mikil óvissa hefði skapast
við hrunið en hún hefði minnkað stig af stigi. Hann vildi halda áfram að eyða
óvissu.
Bjarni sagði mikilvægt að í samningunum segðu Bretar og Hollendingar
sig frá öðrum hugsanlegum kröfum sem þeir gætu haft uppi gegn Íslend-
ingum vegna málsins.
Birkir Jón sagði að yrðu lögin samþykkt þýddi það skattahækkanir og
niðurskurð þar sem ríkið væri að taka á sig milljarða skuldbindingu.
Spurt var hvort rétt væri að til hafi staðið að greiða Bretum og Hollend-
ingum í einni greiðslu. Steingrímur sagði það rangt, hins vegar hafi um tíma
verið rætt um að greiða áætlaðan vaxtakostnað í einni greiðslu til að ná
honum niður. Á endingu hefði verið samið um mjög lága vexti og því horfið
frá þeirri hugmynd.
Spurt var líka – og vitnað í samninginn – hvort rétt væri að ensk lög giltu
um málið og að Íslendingar hefðu afsalað sér lögsögu í því. Bjarni sagði það
rangt, kæmi til málshöfðunar yrði stefnt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Hins
vegar væri kveðið á um að ef ágreiningur risi um túlkun á samningnum yrði
farið með hann fyrir alþjóðlega dómstóla og dæmt eftir enskum lögum.
Steingrímur bentu á að þau væru jafnan notuð í samningum milli ríkja og
alþjóðlegra fyrirtækja.
Jóhanna sagðist óttast að fari málið fyrir dóm yrði mismunun á jafnræðis-
reglunni tekin upp. Íslendingar hafi fengið allt sitt en Bretar og Hollendingar
ekki. Hún og Steingrímur sögðu pólitísku stöðuna metna á sunnudag, eftir
atkvæðagreiðsluna. Stjórnmálaleiðtogarnir fimm ætla allir að greiða atkvæði
og upplýstu Steingrímur og Birkir að þeir væru þegar búnir að því.
Úr umræðum og svörum við fyrirspurnum
Björn Þór
Sigbjörnsson
bjorn@frettabladid.is