Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 8. apríl 2011 Rispur á bresku parketi Þegar ég var nemandi á fyrsta ári í stærðfræði við Háskóla Íslands barst Félagi stærðfræði- og eðlisfræðinema stefna. Eigendur staðar sem félagið hafði leigt undir árshátíð sína mörgum mánuðum áður töldu að skemmdir hefðu orðið á dansgólfi umrætt kvöld. Þeir vildu fá hálfa milljón króna. Fjölmargt í þessari stefnu mátti setja spurningarmerki við, og er þá ekki aðeins átt við hina augljósu spurningu um lík- indi þess að raungreina nördar skemmi parket í trylltum dans- látum. Stefnan var birt ein- hverjum vesalings fyrsta árs nema, sem raunar hafði löngu verið búinn að skipta um náms- línu en var enn fremstur í staf- rófsröð félagatalsins. Árshátíðin hafði verið haldin ásamt nokkrum öðrum nem- endafélögum en einungis einu félagi, okkar, var stefnt, og nokkur önnur slík formsatriði mætti tiltaka. Hugsanlega hefði verið hægt að nota þetta til að reyna að vísa málinu frá dómi. Sú leið var þó á endanum ekki farin. Síðan var sjálf skaðabóta- ábyrgðin auðvitað vel loðin. Hvernig ætlaði staðarhaldari að sanna að umræddar skemmdir á parketi hefðu verið af völdum okkar félagsmanna? Hvernig átti að sanna að þær hefðu ekki verið áður? Er slit á dansgólfi síðan ekki eðlilegur hluti af við- haldskostnaði þess sem rekur stað sem þennan? Sumt fylgir bara rekstrinum. „Fjórhjólið sem ég lánaði þér er allt úti í drullu. Hvað varstu eiginlega að gera við það?“ Í fljótu bragði virtist sem réttarstaða okkar væri allt í lagi. Að því er ég best veit er engin EES-tilskipun númer neitt sem skyldar háskólanema til að bera fjárhagslega ábyrgð á dansi annarra háskólanema, einhvern tímann áður. En hvað veit ég þó. Þær eru jú ansi margar. Stefnan virtist félagsmönnum því hæpin. Þau ráð sem stjórn félagsins fékk frá lögfróðum mönnum voru hins vegar að semja. Það var auðvitað graut- fúlt en fyrir því voru ágætis rök. Málarekstur er dýr eins og andskoti og hefði orðið félaginu erfiður. Málsatvik voru óljós, fáir þeirra nemenda sem voru á umræddri árshátíð voru enn í skólanum, svo erfitt var að vita hvort staðarhaldari hefði ekki hugsanlega haft eitthvað til síns máls. Hann hafði allavega fyrir því að ráða sér lögmann sem kunni Word og stafrófið. Hefði málið tapast, eða jafnvel dreg- ist, hefði það gengið af félaginu dauðu, og kostnaðurinn hefði jafnvel getað lent á einhverjum almennum félagsmönnum. Það hefði verið bölvanlegt. Það mál sem kosið er um á morgun snýst tæplega lengur um vexti og afborgunartíma. Ég hef heyrt fáa halda því fram að þeir séu tilbúnir að semja um að ábyrgjast endurgreiðslur á lág- markstryggingum til breskra og hollenskra sparifjáreigenda, en bara undir öðrum skilmálum. Flestir þeirra sem tala fyrir höfnun samningsins vilja ein- faldlega ekki borga staka krónu. Það er afstaða sem bera má virðingu fyrir. En mér sýnist hún samt byggjast á tilfinn- ingum frekar en raunverulegu hagsmunamati. Hvers vegna þarf til dæmis alltaf að tengja leiðinleg útgjöld við afkvæmi? Allir vilja að ríkissjóður ábyrg- ist okkar eigin innistæður, afskrifi okkar lán og tvöfaldi vegina okkar. En þegar eyða á í eitthvað leiðinlegt, þá er það ekki lengur ríkissjóður sem borgar, heldur „börnin“. Grey börnin. Sama hve mikið við berjum okkur á brjóst og sannfærum okkur um ágæti eigin málstaðar styrkist sá málstaður ekki endi- lega við það. Allavega ekki frammi fyrir þeim erlendu og innlendu dóm- stólum sem um málið munu þurfa að fjalla. Margt bendir til að þeir dómstólar geti hæglega dæmt okkur í óhag. Við áttum að tryggja innistæður, við mátt- um ekki mismuna eftir þjóð- erni, fljótt á litið var hvorugu fylgt. Sameiginleg niðurstaða lík- indafræðinnar og lögfræðinn- ar í stóra parketmálinu var sú að ákveðið var að semja um að borga, að mig minnir, einhverj- ar 40 þúsund krónur. Kostnað- inum var skipt milli þeirra nemendafélaga sem komu að umræddri árshátíð, svo hlutur félags stærðfræði- og eðlis- fræðinema varð á endanum brot af því sem upphafleg krafa hljóðaði upp á. Það var samt fúlt, sjóðir slíkra félaga eru sjaldan digrir. Það er fúlt að borga fyrir rispur óreiðudans- ara. En ég held samt að það hafi verið skynsamlegt. Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG Við áttum að tryggja innistæður, við máttum ekki mismuna eftir þjóðerni, fljótt á litið var hvorugu fylgt. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN FÁÐU BEITTUSTU BRANDARANA Í SÍMANN m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi Mikið úrval af GRILLPRO grillfylgihlutum Vnr. 50630099 Gasgrill OUTBACK gasgrill, tvískiptur járnbrennari. 19.900 Vnr 5. 0630100 Gasgrill OUTBACK gasgrill, tvískiptur járnbrennari og grillflötur 48x36 cm. Efri grind og hitaplata yfir brennara, niðurfellanleg hliðarborð, neistakveikjari og þrýstijafnari fylgja. 6,2 kW. 25.900 BYKO blaðið er komið út með fullt af vörum fyrir vorið! Nýtt BYKO blað er komið út 2 brennarar Efri grind 2 brennarar Efri grind Vnr. 50630102 Gasgrill OUTBACK gasgrill, 2 járnbrennarar. 69.990 Gasgrill STERLING gasgrill með tvískiptum brennara. Vnr. 50630097 Gasgrill SONSET SOLO gasgrill, með 3 brennurum. 36.990 39.900 Vnr. 50657143 Gasgrill STERLING g asgrill með tvískiptum brennara. 46.900 2 brennarar Efri grind 2 brennarar Efri grind 2 brennarar Efri grind 3 brennarar Efri grind
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.