Fréttablaðið - 08.04.2011, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 8. apríl 2011
Rispur á
bresku parketi
Þegar ég var nemandi á fyrsta ári í stærðfræði við
Háskóla Íslands barst Félagi
stærðfræði- og eðlisfræðinema
stefna. Eigendur staðar sem
félagið hafði leigt undir árshátíð
sína mörgum mánuðum áður
töldu að skemmdir hefðu orðið
á dansgólfi umrætt kvöld. Þeir
vildu fá hálfa milljón króna.
Fjölmargt í þessari stefnu
mátti setja spurningarmerki
við, og er þá ekki aðeins átt við
hina augljósu spurningu um lík-
indi þess að raungreina nördar
skemmi parket í trylltum dans-
látum. Stefnan var birt ein-
hverjum vesalings fyrsta árs
nema, sem raunar hafði löngu
verið búinn að skipta um náms-
línu en var enn fremstur í staf-
rófsröð félagatalsins.
Árshátíðin hafði verið haldin
ásamt nokkrum öðrum nem-
endafélögum en einungis einu
félagi, okkar, var stefnt, og
nokkur önnur slík formsatriði
mætti tiltaka. Hugsanlega hefði
verið hægt að nota þetta til að
reyna að vísa málinu frá dómi.
Sú leið var þó á endanum ekki
farin.
Síðan var sjálf skaðabóta-
ábyrgðin auðvitað vel loðin.
Hvernig ætlaði staðarhaldari að
sanna að umræddar skemmdir
á parketi hefðu verið af völdum
okkar félagsmanna? Hvernig
átti að sanna að þær hefðu ekki
verið áður? Er slit á dansgólfi
síðan ekki eðlilegur hluti af við-
haldskostnaði þess sem rekur
stað sem þennan? Sumt fylgir
bara rekstrinum. „Fjórhjólið
sem ég lánaði þér er allt úti í
drullu. Hvað varstu eiginlega að
gera við það?“
Í fljótu bragði virtist sem
réttarstaða okkar væri allt í
lagi. Að því er ég best veit er
engin EES-tilskipun númer
neitt sem skyldar háskólanema
til að bera fjárhagslega ábyrgð
á dansi annarra háskólanema,
einhvern tímann áður. En hvað
veit ég þó. Þær eru jú ansi
margar.
Stefnan virtist félagsmönnum
því hæpin. Þau ráð sem stjórn
félagsins fékk frá lögfróðum
mönnum voru hins vegar að
semja. Það var auðvitað graut-
fúlt en fyrir því voru ágætis
rök. Málarekstur er dýr eins og
andskoti og hefði orðið félaginu
erfiður. Málsatvik voru óljós,
fáir þeirra nemenda sem voru
á umræddri árshátíð voru enn í
skólanum, svo erfitt var að vita
hvort staðarhaldari hefði ekki
hugsanlega haft eitthvað til síns
máls. Hann hafði allavega fyrir
því að ráða sér lögmann sem
kunni Word og stafrófið. Hefði
málið tapast, eða jafnvel dreg-
ist, hefði það gengið af félaginu
dauðu, og kostnaðurinn hefði
jafnvel getað lent á einhverjum
almennum félagsmönnum. Það
hefði verið bölvanlegt.
Það mál sem kosið er um á
morgun snýst tæplega lengur
um vexti og afborgunartíma. Ég
hef heyrt fáa halda því fram að
þeir séu tilbúnir að semja um að
ábyrgjast endurgreiðslur á lág-
markstryggingum til breskra og
hollenskra sparifjáreigenda, en
bara undir öðrum skilmálum.
Flestir þeirra sem tala fyrir
höfnun samningsins vilja ein-
faldlega ekki borga staka krónu.
Það er afstaða sem bera má
virðingu fyrir. En mér sýnist
hún samt byggjast á tilfinn-
ingum frekar en raunverulegu
hagsmunamati. Hvers vegna
þarf til dæmis alltaf að tengja
leiðinleg útgjöld við afkvæmi?
Allir vilja að ríkissjóður ábyrg-
ist okkar eigin innistæður,
afskrifi okkar lán og tvöfaldi
vegina okkar.
En þegar eyða á í eitthvað
leiðinlegt, þá er það ekki lengur
ríkissjóður sem borgar, heldur
„börnin“. Grey börnin.
Sama hve mikið við berjum
okkur á brjóst og sannfærum
okkur um ágæti eigin málstaðar
styrkist sá málstaður ekki endi-
lega við það.
Allavega ekki frammi fyrir
þeim erlendu og innlendu dóm-
stólum sem um málið munu
þurfa að fjalla. Margt bendir til
að þeir dómstólar geti hæglega
dæmt okkur í óhag. Við áttum
að tryggja innistæður, við mátt-
um ekki mismuna eftir þjóð-
erni, fljótt á litið var hvorugu
fylgt.
Sameiginleg niðurstaða lík-
indafræðinnar og lögfræðinn-
ar í stóra parketmálinu var sú
að ákveðið var að semja um að
borga, að mig minnir, einhverj-
ar 40 þúsund krónur. Kostnað-
inum var skipt milli þeirra
nemendafélaga sem komu að
umræddri árshátíð, svo hlutur
félags stærðfræði- og eðlis-
fræðinema varð á endanum
brot af því sem upphafleg krafa
hljóðaði upp á. Það var samt
fúlt, sjóðir slíkra félaga eru
sjaldan digrir. Það er fúlt að
borga fyrir rispur óreiðudans-
ara. En ég held samt að það hafi
verið skynsamlegt.
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Við áttum að tryggja innistæður, við
máttum ekki mismuna eftir þjóðerni,
fljótt á litið var hvorugu fylgt.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
FÁÐU BEITTUSTU
BRANDARANA Í SÍMANN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi
Mikið úrval
af GRILLPRO
grillfylgihlutum
Vnr. 50630099
Gasgrill
OUTBACK gasgrill, tvískiptur járnbrennari.
19.900
Vnr 5. 0630100
Gasgrill
OUTBACK gasgrill, tvískiptur járnbrennari og
grillflötur 48x36 cm. Efri grind og hitaplata yfir
brennara, niðurfellanleg hliðarborð, neistakveikjari
og þrýstijafnari fylgja. 6,2 kW.
25.900
BYKO blaðið er komið út með
fullt af vörum fyrir vorið!
Nýtt
BYKO blað
er komið út
2 brennarar
Efri grind
2 brennarar
Efri grind
Vnr. 50630102
Gasgrill
OUTBACK gasgrill, 2 járnbrennarar.
69.990
Gasgrill
STERLING gasgrill með tvískiptum brennara.
Vnr. 50630097
Gasgrill
SONSET SOLO gasgrill, með 3 brennurum.
36.990 39.900
Vnr. 50657143
Gasgrill
STERLING g asgrill með tvískiptum brennara.
46.900
2 brennarar
Efri grind
2 brennarar
Efri grind
2 brennarar
Efri grind
3 brennarar
Efri grind