Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 18
18 8. apríl 2011 FÖSTUDAGUR Innistæðueigendur eru í senn mikilvægustu og minnst upp- lýstu viðskiptavinir fjármála- kerfisins hverju sinni og enn fremur fjölmennasti hópurinn. Reglur um vernd innistæðna eru til staðar í nánast öllum ríkjum með þróað fjármálakerfi og miða bæði að því að tryggja öryggi fjármálakerfisins, sem inni- stæðueigendur eiga alla jafna erfitt með að kynna sér, og leggja mat á upplýsingar um viðskipta- banka sinn. Bandaríkin voru eitt fyrsta ríkið til að koma á fót opinberri vernd fyrir innistæðutrygging- ar í kjölfar kreppunnar miklu. Á níunda og tíunda áratug síðustu aldar urðu til reglur hjá ESB (þá EB) sem skylduðu aðildarríki til að taka upp eða aðlaga reglur um innistæðuvernd. Þetta tók til Íslands í kjölfar inngöngu í EES og uppfylltum við þessa skyldu með því að setja ákvæði í lög nr. 113/1996 og síðar í lög nr. 98/1999. Á móti hafa innistæður verið settar aftarlega í réttindaröð samkvæmt lögum um gjaldþrot fjármálafyrirtækja þannig að ólíklegt gat talist að innistæðu- eigendur fengju eitthvað upp í sínar kröfur. Þarna á milli var augljóst samhengi, þ.e. tilvist Tryggingarsjóðsins og vernd innistæðueigendanna gerði það að verkum að unnt var að hafa kröfuna aftar í réttindaröðinni án þess að draga úr þeirri vernd sem innistæður áttu að njóta. Sjóðirnir þoldu lítið Lykilspurningunni var þó ósvar- að, þ.e. hve víðtæk var ábyrgðin fyrir aðildarríkin? Kerfið virtist byggja á því að vona það besta, þannig að á þetta myndi aðeins reyna í þeim tilfellum ef litlar einingar, t.d. sparisjóðir, færu á hausinn. Í umfjöllun í Peninga- málum 2005 kemur fram að sam- kvæmt grófum útreikningum hafi heildareignir Tryggingar- sjóðsins verið um 4,5 milljarðar en upphæð innistæðna á bilinu 145-252 milljarðar króna og er þetta áður en hin mikla inn- lánasöfnun bankakerfisins hófst á árunum 2006-8. Sama staða var uppi í Evrópu en í skýrslu á vegum framkvæmdastjórnar ESB frá maí 2008 kom einnig fram að tryggingarkerfin eink- um við afmörkuð áföll minni fjár- málastofnana. Þegar það svo gerðist sem eng- inn átti von á, að fjármálakerfið fór nánast í heild sinni á nokkr- um dögum, vaknaði spurningin um umfang ábyrgðarinnar. Ábyrgð ríkisins Orðalag tilskipunar ESB og lag- anna sem sett voru hér á landi má túlka á ýmsa vegu. Í aðfaraorðum tilskipunarinnar segir að hún geti ekki gert aðildarríkin eða lögbær yfirvöld þeirra ábyrg gagnvart innistæðueigendum ef þau hafi séð til þess að koma á einu eða fleiri kerfum viðurkenndum af stjórnvöldum sem ábyrgjast inn- lán eða lánastofnanirnar sjálfar og tryggja að innistæðueigend- ur fái bætur og tryggingu í sam- ræmi við skilmálana í þessari til- skipun. Því hefur verið haldið fram að íslenska ríkið hafi fullnægt skyldu sinni gagnvart tilskipun- inni með því einu að setja upp slíkt tryggingarkerfi. Þá má hins vegar velta því upp hvort aðildar- ríkjunum sé í sjálfsvald sett hve lágt hlutfall innistæðna hverju sinni sé tryggt samkvæmt þessu kerfi. Hefði það getað verið enn lægra en raunin var? Lán ef eignir hrökkva ekki til Augljóslega gátu aðildarríkin ekki útfært sín tryggingarkerfi hvernig sem er, enda hefðu þau þar með verið að brjóta gegn þeim markmiðum tilskipunarinn- ar að veita innistæðueigendum vernd. Aðfaraorð tilskipunarinn- ar fela í sér að tryggingarkerf- ið verður að standa undir þeim bótum sem kveðið er á um. Álykt- unin um að tómur tryggingarsjóð- ur þýði enga ábyrgð stenst líka illa ákvæði laga nr. 98/1999, sem kveða á um hvernig fara skuli með ef eignir sjóðsins hrökkva ekki til en sjóðnum er veitt heim- ild til lántöku. Því var ítrekað lýst yfir af sjóðnum sjálfum og stjórn- völdum í aðdraganda hrunsins að þessi heimild yrði nýtt og gaf ríkisstjórnin út sérstaka yfirlýs- ingu þess efnis. Því er sú túlkun að mínu mati hæpin að á íslenska ríkinu hvíli ekki lagaskylda umfram það að setja upp trygg- ingarsjóð. Þegar efnahagshrunið dundi yfir í októberbyrjun 2008 var staðan sem sagt sú að ef ekkert hefði verið að gert hefði vernd innistæðueigenda verið sama og engin. Kröfur þeirra, jafnt í íslenskum sem erlendum útibú- um, hefðu endað aftarlega í skiptameðferð bankanna og lítið sem ekkert fengist úr Trygging- arsjóðnum. Viðbrögð fólu í sér mismunun Viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru þau að tryggja innistæður í útibú- um á Íslandi en ekki erlendis og að færa íslenskar innistæður yfir í nýja banka. Íslenskir innistæðu- eigendur voru með öðrum orðum ekki settir í þá stöðu að þurfa að sækja innistæður sínar í skipta- meðferð gömlu bankanna eða til tryggingarsjóðsins. Því má velta fyrir sér hvaða pólitísku afleið- ingar hin leiðin hefði haft, þ.e. að láta íslenska innistæðueigendur taka höggið, og hvort ákallið um að almenningur borgi ekki skuld- ir einkaaðila hefði fengið mikinn hljómgrunn í því tilfelli. Aðgerð- irnar fólu í sér mismunun gagn- vart reglum EES-réttarins. Erfitt dómsmál Ýmsir telja það ekkert vandamál þótt dómstóll kæmist að þeirri niðurstöðu að mismunun hefði átt sér stað. Það er sérkennileg niðurstaða þar sem slíkur dómur, t.d. fyrir EFTA-dómstólnum, gæti verið grundvöllur að skaðabóta- máli gagnvart íslenska ríkinu. Þegar allt þetta er tekið saman, þ.e. þær skyldur sem hvíldu á íslenska ríkinu samkvæmt Evr- óputilskipuninni og sú mismun- un sem fólst í aðgerðum íslenska ríkisins við að verja innistæður í október 2008, er hæpið að tala á þann veg að við séum með unnið mál fyrir dómstólum. Miklu nær er að telja að við ættum mjög á brattann að sækja. Samningurinn sem er á borð- inu er betri en sá fyrri en þó ekki eins og best verður á kosið, enda eru töluverðir áhættuþætt- ir innbyggðir í samninginn. Allar horfur með þessi atriði eru þó jákvæðar og í öllum samning- um felst að báðir aðilar gefa eftir af sínum ítrustu kröfum. Þá eru vitaskuld hagsmunir í því fólgnir fyrir Ísland að klára þetta mál. Ég ætla því að segja já í þjóðar- atkvæðagreiðslunni. Skynsamlegast að semja Í þeirri umræðu, sem fram hefur farið undanfarna mánuði hefur Icesave-málið orðið æ flóknara með hverri vikunni sem liðið hefur. Því er stór hætta á því að aukaatriðin muni þvælast fyrir mörgum sem aldrei fyrr þegar menn gera upp hug sinn varðandi þetta afdrifaríka mál fyrir þjóðar- atkvæðagreiðsluna næstkomandi laugardag. Í huga þess sem þetta ritar er málið hins vegar ekki flókið og er þessi grein rituð til að velta upp hlið málsins, sem ekki hefur fengið mikla umfjöllun. Þegar breskir og hollenskir sparifjáreigendur lögðu fjár- muni inn á Icesave-innstæðu- reikninga á sínum tíma höfðu þeir fulla ástæðu til að ætla að þessar innstæður væru tryggðar með sama hætti og væru þær á banka- reikningum í breskum og hol- lenskum bönkum. Slíkt var mjög eðlilegt út frá almennum reglum, sem gilda um bankastarfsemi í siðuðum þjóðfélögum. Auk þess kepptust stjórnendur Landsbank- ans og jafnvel íslenskir embættis- menn við að sannfæra markað- inn um að ekkert væri að óttast í þessum efnum. Ljóst má vera að hefði þessum væntanlegu inn- stæðueigendum verið skýrt frá því, að hinn íslenski Tryggingar- sjóður innstæðueigenda og fjár- festa (TIF) væri fjárvana og að íslensk stjórnvöld mundu ekki ábyrgjast skuldbindingar hans gagnvart innstæðueigendum þá hefði lítið orðið um innlán á Ice- save-reikningana. Mundir þú les- andi góður leggja fjárupphæð inn á bankareikning, sem nyti engrar innstæðutryggingar og þar sem eina úrræðið væri að gera kröfu í þrotabú bankans ef hann félli? Það sem verst er í þessu máli öllu er að Icesave-innstæðueigend- urnir voru vísvitandi blekktir. Stjórnendum Landsbankans og stjórnvöldum mátti vera fullljóst að íslenski tryggingarsjóðurinn, TIF, var einskis máttugur. Árið 2007 uppfyllti hann ekki einu sinni lágmarkskröfuna um að hafa til ráðstöfunar sem næmi 1% af innstæðum bankakerfisins (sbr. ársreikning sjóðsins 2007) enda var heildareign sjóðsins aðeins 8,4 milljarðar kr. í lok þess árs. Sam- kvæmt niðurstöðu Rannsóknar- nefndar Alþingis var höfuðstóll hans 0,41% af heildarinnstæðum við fall bankanna. Jafnframt lá ekki fyrir nein formleg yfirlýs- ing stjórnvalda hvað þá heldur lagaleg ákvæði um að ríkissjóður mundi ábyrgjast skuldbindingar TIF. Enda komst seðlabankastjóri svo að orði í samtali við breska sjónvarpsstöð í byrjun mars 2008 að ríkissjóður hefði getu til að ábyrgjast innstæðurnar ef íslenska ríkið kysi að takast slíka ábyrgð á hendur. Með því að samþykkja fyrir- liggjandi Icesave-samning eru Íslendingar einfaldlega að standa við fyrirheit, sem breskum og hol- lenskum innstæðueigendur höfðu verið gefin án nokkurra athuga- semda íslenskra stjórnvalda; það er að segja að sömu ábyrgðir giltu varðandi Icesave-reikningana og sams konar innlánsreikninga annarra banka í þessum tveimur löndum. Samþykkt Icesave-samn- ingsins nú er skýr yfirlýsing um að Ísland ætli ekki að láta trygg- ingarsjóð innstæðueigenda, TIF, verða gjaldþrota. Slíkt hefur ekki gerst hjá neinum þeirra þjóða, sem við berum okkur gjarnan saman við á tyllidögum. Jafn- framt værum við að viðurkenna þá ábyrgð sem við berum sameig- inlega á athöfnum óreiðumann- anna, sem unnu að uppbyggingu Icesave með vitund og jafnvel stuðningi stjórnvalda og reyndar stórs hluta þjóðarinnar. Eða vilja landsmenn heldur hafna Icesave- samningnum og taka þá áhættu að vera léttvægir fundnir af dóm- stólum erlendis eða hérlendis og vera hengdir upp á vegg sem óreiðumenn allir sem einn? Svar- ið fæst í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni næstkomandi laugardag, hinn 9. apríl. Við berum ábyrgð á okkar óreiðumönnumIcesave Árni Helgason lögmaður Icesave Þorgeir Pálsson prófessor við Tækni- og verkfræðideild HR Þegar breskir og hollenskir sparifjáreig- endur lögðu fjármuni inn á Icesave-inn- stæðureikninga á sínum tíma höfðu þeir fulla ástæðu til að ætla að þessar innstæður væru tryggðar með sama hætti og væru þær á bankareikn- ingum í breskum og hollenskum bönkum. Undanfarna daga hef ég skrif-að nokkrar greinar um hag- fræðilega afleiðingar þess að segja Nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Það er mín staðfasta trú að efnahagslegar afleiðingar þess geti orðið skelfilegar. Í dag ætla ég að skrifa um pólitíkina í því að segja nei. Svo virðist vera sem margir Íslendingar ætli sér á kjörstað á morgun til að fella ríkisstjórnina. Það virðist sveima yfir vötnunum sá grundvallarmisskilningur að með því að kjósa á móti Icesave- samningnum sé verið að veikja ríkisstjórnina – hún muni hrekj- ast frá völdum. Stjórnin hefur nú um tveggja ára skeið reynt að breiða yfir van- mátt sinn gagnvart því verkefni að koma efnahagslífinu af stað, vinna bug á atvinnuleysinu og ná stjórn á ríkisfjármálum með því að benda á að Icesave-málið sé óleyst. Framan af féllu margir stuðningsmenn rík- isstjórnarinnar í þá gryfju að trúa þessum áróðri og sættu sig við aðgerðaleysið. Margir hafa þó náð áttum eins og marka má af dvín- andi stuðningi við ríkisstjórnina. Ef Icesave-samningurinn verð- ur felldur á morgun mun það þjappa stjórnarflokkunum saman og þeir munu áfram nota Icea- save sem fjarvistarsönnun fyrir því aðgerðaleysi sínu. Ef við vilj- um losna við ríkisstjórnina látum þá kné fylgja kviði og segjum já í kosningunum á morgun. Þá stendur ríkisstjórnin á berangri – hún hefur þá ekki lengur skjól af óleystu Icesave-máli. Nei á morgun framlengir líf ríkisstjórnarinnar Icesave Tryggvi Þór Herbertsson prófessor í hagfræði og alþingismaður Ef við viljum losna við ríkis- stjórnina látum þá kné fylgja kviði og segjum já Ýmsir telja það ekkert vandamál þótt dómstóll kæmist að þeirri niðurstöðu að mismunun hefði átt sér stað. Það er sérkennileg niðurstaða þar sem slíkur dómur, t.d. fyrir EFTA-dómstólnum, gæti verið grundvöllur að skaðabótamáli gagnvart íslenska ríkinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.