Fréttablaðið - 08.04.2011, Side 8
8. apríl 2011 FÖSTUDAGUR8
DÓMSMÁL Þorvarður Davíð Ólafs-
son hefur verið dæmdur í fjórtán ára
fangelsi fyrir tilraun til manndráps.
Hann réðst á föður sinn, Ólaf Þórð-
arson, og veitti honum lífshættulega
áverka. Ólafur hlaut alvarlegan heila-
skaða og hefur dvalið á Grensásdeild.
Ákæruvaldið segist ekki vita til þess að
þyngri dómur hafi fallið fyrir tilraun
til manndráps. Slíkir dómar hafa verið
í kringum fimm ár.
Þorvarður játaði sök fyrir dómi.
Hann kvaðst hafa verið að drekka og
neyta fíkniefna með konu sama dag
og atlagan átti sér stað. Konan hefði
borið sakir á föður hans, sem hann
hefði þá trúað. Eftir þetta hélt Þor-
varður á heimili föður síns til að ræða
þetta við hann. Hann kvaðst hafa misst
stjórn á sér og meðal annars kýlt föður
sinn tvisvar af afli í höfuðið með hnúa-
járni, auk þess að sparka ítrekað í hann.
Konan sem bar sakirnar á Ólaf sagði
síðar við skýrslutökur að hún hefði
aldrei hitt hann né haft nokkur sam-
skipti við hann.
Þorvarður bar fyrir dómi að hann
hefði áður ráðist á föður sinn, þá einnig
vegna upplýsinga sem hann hefði trúað.
Auk fjórtán ára fangelsis var Þor-
varður dæmdur bótaskyldur vegna lík-
amstjóns föður hans. - jss
Þyngsti dómur sögunnar vegna tilraunar til manndráps:
Fjórtán ár fyrir árás á föður sinn
VARÐ FYRIR ÁRÁS Ólafur
Þórðarson hlaut lífshættu-
lega áverka og alvarlegan
heilaskaða í árás sonar hans.
MYND/SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
DÝRAHALD Framleiðandi gælu-
dýrafóðursins Icelandpet hefur
ákveðið að innkalla það úr versl-
unum. Ástæðan er sú að við eftir-
lit Matvælastofnunar kom í ljós að
í sumum tegundum fóðursins er
cyanuric-sýra sem veldur krist-
allamyndun í þvagi dýra.
Kristallarnir eru torleysanlegir
og leiða til sjúkleika hjá gæludýr-
um. Í kjölfar ábendingar MAST
um mælingu á þessum óæskilegu
efnum í fóðrinu og kvartana sem
hafa borist hefur Ifex innkallað
fóðrið úr verslunum. - jss
Óæskileg efni fundust:
Gæludýrafóður
var innkallað
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
Kjúklingapylsur
Kjúklingapylsurnar frá Holtakjúklingi eru framleiddar úr besta hráefni
sem völ er á. Því geta þeir sem hugsa um hollustuna nú gætt sér á þjóðarrétti
okkar Íslendinga með góðri samvisku. Hvort sem þeir vilja hann með hráum,
steiktum, tómat, sinnepi eða bara beint af grillinu.
DÓMSMÁL Hæstiréttur sýknaði í
gær karlmann af ákæru um kyn-
ferðisbrot gegn ungri þroska-
skertri sonardóttur sinni. Héraðs-
dómur Reykjaness hafði áður
dæmt manninn í tíu mánaða fang-
elsi og til að greiða henni 600 þús-
und í miskabætur.
Í dómnum segir að frásögn
stúlkunnar af háttsemi afans hafi
verið á reiki og framburður henn-
ar hafi tekið talsverðum breyting-
um frá einni skýrslu til annarrar
og ekki verið stöðugur innbyrðis í
skýrslutökunum, einkum við aðal-
meðferð málsins.
- jss
Frásögn fórnarlambs á reiki:
Sýknaður af
kynferðisbroti
VIÐSKIPTI Skipt verður um nafn
á MP banka og hann verður eini
bankinn á Íslandi sem ekki verð-
ur í eigu erlendra kröfuhafa eða
ríkisins. Afar fjölbreyttur hópur
fjárfesta tekur við, meðal annars
breskir auðkýfingar með lög-
heimili á aflandseyjum og Skúli
Mogensen. Þetta kom fram í frétt-
um Stöðvar 2 í gær.
MP banki uppfyllti ekki skil-
yrði Fjármálaeftirlitsins (FME)
um eigið fé um síðustu áramót
og gaf FME bankanum tímafrest
til að bregðast við. Eitt af úrræð-
unum sem voru í boði til að bæta
úr því var að fá nýja fjárfesta að
borðinu.
Fyrirtækinu verður skipt upp
og Margeir Pétursson, stofnandi
bankans, hverfur úr hluthafa-
hópnum en mun halda áfram utan
um félag bankans í Úkraínu.
Fram kom í Viðskiptablaðinu í
gær að meðal nýrra eigenda MP
banka yrði Rowland-fjölskyldan
breska sem keypti Kaupþing í
Lúxemborg.
Skipt verður um nafn og nýir hluthafar í MP-banka:
Breskir aðkýfingar
meðal nýrra eigenda
BANDARÍKIN, AP Leiðtogar demó-
krata og repúblikana á Bandaríkja-
þingi hafa fram á síðustu stundu
ekki náð samkomulagi um fjárlög
ársins.
Þeir hafa því verið á stöðug-
um fundum síðustu daga, því tak-
ist ekki samkomulag áður en fjár-
heimildir ríkissjóðs renna út, sem
er í dag, þá yrðu margir ríkisstarfs-
menn sendir heim og þjónusta rík-
isins myndi versna til muna, þótt
ekki muni starfsemi ríkisins stöðv-
ast alveg.
„Nú þegar efnahagslífið er enn að
komast út úr óvenju djúpri kreppu,
þá væri það óafsakanlegt – að teknu
tilliti til þess hve litlu munar á milli
flokkanna þegar að tölum kemur –
að við gætum ekki gert þetta,“ sagði
Barack Obama Bandaríkjaforseta
seint á miðvikudagskvöld.
Repúblikanar vilja helst 73
milljarða dala niðurskurð í ríkis-
fjármálum, en hafa þó fallist á 40
milljarða. Demókratar vilja hins
vegar ekki skera meira niður en 33
milljarða dala. Það sem á milli ber
eru því sjö milljarðar dala.
Síðast kom álíka staða upp í lok
árs 1995 þar sem Bill Clinton for-
seti neitaði að skrifa undir fjárlög
frá repúblikönum á þingi. Þá voru
ríkisstarfsmenn, aðrir en þeir sem
sinna bráðnauðsynlegum störf-
um, sendir heim fyrst í eina viku
í nóvember og svo í þrjár vikur í
desember og fram yfir áramót.
Málið þótti koma Clinton afar
vel og telja stjórnmálaskýrendur
að þar hafi hann unnið sig upp í
áliti þjóðarinnar í aðdraganda
kosninga sama ár.
- gb, þj
Send heim í
fjárlagadeilu
Möguleiki er á að ríkisstarfsmenn í Bandaríkjunum
verði sendir heim vegna fjárskorts á meðan demó-
kratar og repúblikanar deila um fjárlög ársins.
HARRY REID OG JOHN BOEHNER Leiðtogarnir á Bandaríkjaþingi hafa verið á stöð-
ugum fundum undanfarið til að leysa deilu um fjárlög ársins. Hluti ríkisstarfsmanna
verður mögulega sendur heim vegna fjárskorts á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Horfir þú á íslenska sakamála-
þætti í sjónvarpinu?
Já 66,9%
Nei 33,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hafa skoðanakannanir áhrif
á skoðun þína í Icesave-málinu?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN