Fréttablaðið - 08.04.2011, Page 30
4 föstudagur 8. apríl
V
iðburðurinn Reykjavík
Fashion Festival fór fram
í annað sinn um helgina.
Tuttugu og tveir hönn-
uðir tóku þátt í ár og fór sýningin
fram í Hafnarhúsinu.
Á föstudagskvöldinu sýndu alls
tíu hönnuðir haust- og vetrarlínur
sínar og stóðu línur Eyglóar, Sruli
Recht, Sonju Bent og Spaks manns
spjara upp úr. Allar þessar línur
innihéldu fallegar buxur og er því
óhætt að spá því að síðbuxur verði
vinsælar hér á landi næsta haust.
Lína Sonju Bent var áberandi
glaðleg og falleg og mætti kannski
kalla þennan efnilega hönnuð
okkar eigin Soniu Rykiel. Báðar
vinna þær mikið með prjónaflík-
ur og á meðan rendur einkenna
gjarnan fatnað Rykiel vinnur Sonja
Bent að mestu með doppur. Lína
Spaks manns spjara virtist þó vera
sú eina, fyrir utan línu Sruli, sem
var greinileg haustlína og innihélt
jakka, notalegar fóðraðar hett-
ur og prjónaðar ermar. Hönnun
Sruli Recht var fallega sniðin og
skemmtileg og fatnaðurinn unninn
úr náttúrulegum
efnum eins og
ull. Eygló var
söm við sig
og sýndi flott-
ar flíkur með
skemmtilegu
beinamynstri
sem kom mjög
vel út. - sm
RFF-tískuhátíðin var haldin hátíðleg síðustu helgi:
GLEÐI OG
náttúruleg efni
Náttúruleg efni Hönnun Sruli var úr
náttúrulegum efnum eins og ull, bómull
og gæru. Fötin voru fallega sniðin eins og
Sruli er einum lagið.
Kátir karlar Sýning Sruli Recht var lauf-
létt og skemmtileg. Fyrirsæturnar voru
kátir karlar sem stóðu sig afskaplega vel.
Notalegur fatnaður Loðfóðruðu hett-
urnar frá Spaks manns spjörum væru
góð eign fyrir næsta vetur.
Flott haustlína Spaks manns spjarir sýndu heilsteypta og flotta haustlínu. Rauðu
buxurnar voru einstaklega fallegar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON
Litagleði Sonja Bent sýndi skemmtileg-
ar buxur í ýmsum litum og sokka skreytta
slaufum.
Jarðliti Brúnir tónar voru ríkjandi í línu Spaks manns spjara.
Flottur Sýning Sruli Recht var flott og
lífleg.
Doppur og slaufur
Falleg herrapeysa frá
hönnuðinum Sonju Bent.
Prufið litina á
opi.com
INNIHELDUR ENGIN DBP, TOLOURENE EÐA FORMALDEHYDE
OPI Nail Lacquers eru öll með hinum einstaka Pro Wide™ Bursta
(einkaleyfi)
Lakkið eina umferð af
Black Shatter
yfir þurrar neglur
þannig færðu fullkomið
Katy útlit!
Kringlunni
INNIHELDUR EKKI DBP, TOLUENE, EÐA FORMALDEHYDE
LITIR HÆGRI TIL VINSTRI:
Austin-tatious Turquoise,
Don’t Mess with OPI
It’s Totally Fort Worth It,
I Vant to Be A-Lone Star
Suzi Loves Cowboys, San Tan-tonio
Houston We Have A Purple,
Do You Think I’m Tex-y?
Too Hot Pink to Hold ’Em,
Guy Meets Gal-veston
Big Hair...Big Nails,
Y’all Come Back Ya Hear?