Fréttablaðið - 08.04.2011, Page 33
8. apríl föstudagur 7
✽
m
yn
da
la
bú
m
iðhefur þó breyst mikið og þá sér-staklega með komu Listaháskól-
ans sem hefur útskrifað fjölda
hæfileikaríkra hönnuða sem
víla ekki fyrir sér að stofna eigið
merki. Núna eru til íslensk fyrir-
tæki sem eru virkilega að hanna
og framleiða föt í einhverjum
mæli og það finnst mér frábær
þróun enda hefur allt tískuum-
hverfið hér gjörbreyst á undan-
förnum árum.“
HEILLAÐIST AF HÆLUNUM
Bergþóra og Jóel kynntust árið
1991 þegar þau voru bæði við nám
í Menntaskólanum í Hamrahlíð og
segist Bergþóra hafa fallið fyrir
Jóel þegar hún sá hann á sviði í
uppsetningu skólans á söngleikn-
um Rocky Horror Picture Show.
„Ég horfði á hann spila á sviðinu
í háum hælum og sokkaböndum
og maður náttúrulega kolféll fyrir
því,“ segir hún brosandi. Parið á
saman tvo syni sem Bergþóra
lýsir sem yndislegum.
Það liggur beinast við að spyrja
Bergþóru hvernig gangi að vinna
svo náið með maka sínum?
„Við erum oft spurð að þessu,“
segir hún og hlær. „Það gerist
oft að samstarf tveggja einstak-
linga springur á einhverju tíma-
bili vegna ósættis en í okkar til-
felli er svolítið meira í húfi og
þess vegna verðum við einfald-
lega að láta þetta ganga upp. Við
eigum jafn mikið í þessu og hing-
að til hefur þetta gengið ofsalega
vel. Það skemmir heldur ekki
fyrir að við erum stanslaust um-
kringd skemmtilegu og hæfileika-
ríku fólki sem gerir vinnuna þeim
mun skemmtilegri.“
FALDI SIG Á BAK VIÐ HILLU
Að sögn Bergþóru hafa þau
leyft fyrirtækinu að vaxa svolít-
ið eins og plöntu og verða til af
sjálfu sér. Þau vinna nú að því
að stækka línuna töluvert og eru
til að mynda að hanna fyrstu
heilsteyptu sumarlínu sína. Þau
hafa reglulega sótt sölusýningu
í tengslum við tískuvikuna í
Kaupmannahöfn og viðurkennir
Bergþóra að þar hafi þau kynnst
ýmsum kynlegum kvistum. „Það
er svolítið gaman að upplifa
þetta allt í gegnum Jóel því hann
er svo innilega ekki úr þessum
bransa og finnst alltaf jafn skrít-
ið að hitta suma þessa léttfreðnu
tískuspekúlanta á sölusýningum
í Danmörku. En svo gæti verið
að við séum bara skrítna fólkið
á þessum sýningum, ég veit það
ekki,“ segir hún glaðlega.
Þótt það sé ávallt fagnaðarefni
að gera nýja sölusamninga eftir
slíkar sýningar segir Bergþóra
það skipta mestu að fá pant-
anir aftur frá kaupendum. „Það
þýðir að fólk er ánægt og vill
meira. Það er alltaf góð tilfinn-
ing,“ segir hún. Íslendingar hafa
tekið sérstaklega vel í hönnun
Farmers Market og segir Bergþóra
það vera skrítið að mæta fólki á
götum úti íklætt hönnun henn-
ar. „Fyrst þegar ég rakst á mann
í peysu frá okkur var ég stödd úti
í búð og ég varð svo hrikalega
feimin að ég faldi mig á bak við
hillu. En núna finnst mér þetta
bara skemmtilegt,“ segir hún
og bætir við; „Ég fæ alltaf svo-
litla þráhyggju fyrir því sem ég
er að hanna hverju sinni og það
tók mig til dæmis rúm tvö ár
að hanna herrabuxurnar okkar.
Mér finnst því sérstaklega gaman
þegar ég rekst á menn sem eru
í þeim.“
Ég sjö ára gömul í heimsókn í
sveitinni hjá frændfólki mínu
Dísu og Denda á Kópsvatni.
Þarna er ég heima hjá mér með
drengjunum mínum.
Hér er ein af mínum uppá-
halds: Dorrit kíkir stundum
inn á vinnustofuna mína.
Dálítið stressuð baksviðs korteri fyrir sýningu
Farmers Market og Andersen & Lauth á Hönnun-
armars 2011. Á myndinni eru Gunnar Hilmars-
son, Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, ég og Jóel.
Kringlunni
Snyrtivörudeild Lyfja & heilsu Kringlunni
veitir 20% afslátt af öllum Bobbi Brown
snyrtivörum dagana 7. – 13. apríl.