Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 62
8. apríl 2011 FÖSTUDAGUR46
„Það er engin kreppa í söngkeppn-
inni. Kreppan er bara búin,“ segir
Tindur Jensson, verkefnisstjóri hjá
viðburðafyrirtækinu AM Events.
Fyrirtækið heldur utan um Söng-
keppni framhaldsskólanna sem fer
fram á laugardaginn. Sigurvegar-
inn fer ekki heim með tvær hendur
tómar þegar úrslitin verða kunn-
gjörð í beinni útsendingu á Stöð 2
því hann fær verðlaun sem nema
um hálfri milljón íslenskra króna.
Meðal þess er ferð fyrir einn til
Ibiza með öllu tilheyrandi, iPhone
4 sími, árskort í Hreyfingu og 60
þúsund króna úttekt frá Cintamani
auk tveggja daga í Stúdíó Sýrlandi.
„Tímarnir breytast, þetta eru
allsvakaleg verðlaun. Ætli skólinn
min, Margmiðlunarskólinn, geti
tekið þátt?“ spyr Sverrir Berg-
mann, sem vann þessa keppni árið
2000 þegar hann söng Bon Jovi
slagarann Always við íslenskan
texta Auðuns Blöndal. Verðlaun-
in þá voru ekkert í líkingu við það
sem tíðkast nú. „Ég man mjög vel
að ég fékk farandbikar en ekki
eignarbikar, sem var mjög súrt,
og svo einhverja tíma í hljóðveri,“
rifjar Sverrir upp. Hann fékk
reyndar líka síma eins og sigur-
vegarinn í ár; bláan Sony Erics-
son og honum fylgdi símanúmer.
„Hann þótti mjög flottur á sínum
tíma og hefur örugglega kostað
fimmtán þúsund krónur.“ Sverrir
fékk einnig út að borða fyrir tvo en
man ómögulega á hvaða veitinga-
stað það var. „Ég man bara að ég
fékk mér pitsu.“
Alls keppir 31 atriði um
þennan eftirsóknarverða
titil en við sögu kemur 71
keppandi frá öllu landinu.
Keppnin fer að venju fram
í Íþróttahöllinni á Akur-
eyri, sem tekur tvö þúsund
gesti í sæti, og munu Mið-
Íslands félagarnir Jóhann Alfreð
og Bergur Ebbi kynna keppnina í
FÖSTUDAGSLAGIÐ
TINDUR JENSSON: ÞETTA ERU VEGLEGIR VINNINGAR
Menntskælingar keppa um
hálfa milljón í söngkeppni
Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri RFF,
leitar nú logandi ljósi að ungum manni sem sótti
tónleika rapparans Ghostface Killah síðasta laug-
ardag. Pilturinn sóttist eftir eiginhandaráritun
rapparans á geisladisk og tóku aðstandendur RFF-
hátíðarinnar það að sér að útvega honum hana.
Geisladiskurinn hefur þó ekki enn komist í hendur
eiganda síns.
„Starfsmaður RFF sá strákinn standa í þvögunni
og veifa geisladiski og penna. Hún ákvað að athuga
hvað væri í gangi og hann segir henni að hann sé að
reyna að verða sér úti um eiginhandaráritun Ghost-
face Killah. Starfsmaðurinn ákvað að aðstoða strák-
inn og tekur að sér að fá diskinn áritaðan,“ útskýr-
ir Ingibjörg. Diskurinn komst í hendur rapparans
daginn eftir tónleikana og tók Ingibjörg svo aftur
við honum með það að markmiði að skila honum til
eiganda síns. „Við höfum ekki fundið strákinn ennþá
og auglýsum því eftir honum hér,“ segir Ingibjörg.
Kveðjan sem rapparinn skrifaði til hins unga manns
var að sögn Ingibjargar mjög hlýleg og skrifaði
hann meðal annars „Thanks for everything. Stay
strong. Warm love, Ghostface“. Eigandi disksins
getur nálgast hann í móttöku Fréttablaðsins. - sm
Leita aðdáanda Ghostface Killah
EIGANDA LEITAÐ Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri
RFF, leitar að eiganda geisladisks sem rapparinn Ghostface
Killah áritaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Við erum ekki alveg búnir að negla
hvernig við ætlum að gera atriðið,
en þetta er kynlífsatriði sem gerist
í partíi með mörgum þátttakend-
um,“ segir Óskar Þór Axelsson, leik-
stjóri kvikmyndarinnar Svartur á
leik. Tökur á myndinni hefjast í lok
þessa mánaðar og eru þeir Jóhannes
Haukur Jóhannesson og Þorvaldur
Davíð Kristjánsson í aðalhlutverk-
um ásamt Maríu Birtu Bjarnadóttur
og Agli Einarssyni, betur þekktum
sem Gillz.
María Birta hefur lýst því yfir í
fjölmiðlum að í kvikmyndinni verði
djörf kynlífssena og nú er komið
í ljós að það er Egill Einarsson,
sjálfur Gillz, sem mun leika á móti
henni í senunni. Óskar Axel vildi
ekki gefa upp nein smáatriði í sam-
bandi við það, sagði það þó eiga sér
stað í kringum einn af hápunktum
kvikmyndarinnar. „Þetta er ekkert
„full monty“-atriði en það er svolít-
ið djarft og krefjandi fyrir leikar-
ana.“ Hann upplýsir að Egill hafi
komið honum og öðrum sem standa
að myndinni á óvart í samlestri og
á æfingum. „Hann hefur staðið sig
alveg frábærlega, hann er mjög
„pró“ og það er ekki að sjá að hann
sé eitthvað óreyndur.“
Ekki náðist í Maríu Birtu í gær
en Egill var kokhraustur að vanda
þegar Fréttablaðið náði tali
af honum. Hann segist ekk-
ert vera óvanur því að skella
sér úr að ofan og raunar
heldur ekki að leika í ástar-
senu. Hann og Auðunn Blön-
dal voru auðvitað mjög
innilegir í stiklukeppni
Sveppa og Audda
fyr ir skemmstu.
Spurður hvað kær-
ustunni hans, Gurrý
Jónsdóttur, finnist
um þetta segir Egill
að hún skilji líf leikar-
ans. „Maður er jú bara
að leika.“ - fgg
María Birta og Gillz í djarfri kynlífssenu
SÖGULEGT María
Birta og Egill
Einarsson, Gillz,
leika í ástaratriði
í kvikmyndinni
Svartur á leik.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EKKERT SMÁRÆÐI
Sigurvegarinn í Söngkeppni framhaldsskól-
anna verður leystur út með glæsilegum
vinningum. Hann fær úttekt úr Cintamani,
iPhone 4 síma, ferð til Ibiza með öllu til-
heyrandi, árskort í Hreyfingu og tvo daga
í Stúdíó Sýrlandi. Sverrir Bergmann,
sem vann keppnina árið 2000,
fékk bláan Ericsson-síma,
farandbikar og út að borða
fyrir tvo.
ár. Öll gistihús og
hótel eru uppbók-
uð fyrir norðan enda fer
snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK
Extreme fram á sama tíma. Er því
búist við metfjölda menntskælinga
til bæjarins um helgina.
freyrgigja@frettabladid.is
„Ég er ekkert með neitt svaka-
lega mörg lög inni á iTunes en
þegar ég vil komast í fíling er
það Check It Out með Beastie
Boys.“
Þorsteinn Guðmundsson, grínisti og
leikari.
Tvær íslenskar kvikmyndir eru á
topp fimm listanum yfir mest sóttu
kvikmyndir landsins. Kurteist fólk
með Stefáni Karli Stefánssyni,
Eggert Þorleifssyni
og Ragnhildi
Steinunni í
helstu hlutverk-
um fer ágætlega
af stað en alls
sáu hana 2.200
um helgina.
Myndin segir frá
seinheppnum
verkfræðingi
sem missir
konu og
vinnu og
heldur
til
Búðardals og reynir að bjarga
Sláturfélaginu. Okkar eigin Osló
með Brynhildi Guðjónsdóttur og
Þorsteini Guðmundssyni situr síðan
makindalega í fimmta
sæti en yfir tuttugu
þúsund áhorfend-
ur hafa séð hana.
Því má síðan
halda til haga að
toppmyndin er
Sucker Punch,
en í þeirri
kvikmynd má
heyra tónlist
Bjarkar og
Emilíönu
Torrini.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Seljavegur 2 - 101 Reykjavík
www.jogastudio.is - jogastudio@hotmail.com
Hatha jóga
Hot power yoga
Hot jóga
Slökunarjóga
Chakradans
Hugleiðsla
Heilun
Ný námskeið að hefjast
Hot power yoga
– hefst þriðjudaginn 12. apríl.
Byrjendanámskeið
– hefst máudaginn 11. apríl.
Sun 10.4. Kl. 15:00 Sun 17.4. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Brák (Kúlan)
Fös 8.4. Kl. 20:00 Þri 12.4. Kl. 20:00 Fös 15.4. Kl. 20:00 síð.sýnU Ö
Lau 9.4. Kl. 20:00
Sun 10.4. Kl. 20:00
Lau 16.4. Kl. 20:00
Sun 17.4. Kl. 20:00
Lau 30.4. Kl. 20:00
Sun 1.5. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
Ö Ö
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Mið 13.4. Kl. 20:00
Fim 14.4. Kl. 20:00
Mið 27.4. Kl. 20:00
Lau 30.4. Kl. 20:00
Mið 4.5. Kl. 20:00
Fim 5.5. Kl. 20:00
Mið 11.5. Kl. 20:00
Fim 12.5. Kl. 20:00
Mið 18.5. Kl. 20:00
Ö U
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Sun 1.5. Kl. 14:00
Sun 1.5. Kl. 17:00
Sun 8.5. Kl. 14:00
Sun 8.5. Kl. 17:00
Sun 15.5. Kl. 14:00
Sun 22.5. Kl. 14:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Ö Ö
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 8.4. Kl. 20:00 Frums.
Lau 9.4. Kl. 20:00 2. sýn
Fös 15.4. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 16.4. Kl. 20:00 4. sýn
Fim 28.4. Kl. 20:00 5. sýn
Fös 29.4. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 6.5. Kl. 20:00 7. sýn
Lau 7.5. Kl. 20:00 8. sýn
Fös 13.5. Kl. 20:00
Lau 14.5. Kl. 16:00 br.sýn
Fim 19.5. Kl. 20:00
Ö Ö
Ö
U
Ö
U
U
U
U
Ö
Ö
Ö Ö
U
Ö Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
U
Ö
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki