Fréttablaðið - 12.04.2011, Qupperneq 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
Sími: 512 5000
STJÓRNSÝSLA Unnið var að því af
krafti í öllu íslenska stjórnkerfinu
í gær, jafnt innan lands sem utan,
að milda áhrifin af niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslunnar um
Icesave-málið á laugardag.
Viðbrögðin voru af ýmsum toga.
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri hóf daginn á að ráðfæra sig
við nokkra ráðherra ríkisstjórnar-
innar og í kjölfarið tók hann, líkt
og undirmenn hans og starfsmenn
ráðuneytanna, til við að reyna að
tala um fyrir lánshæfismatsfyrir-
tækjunum og sannfæra þau um að
lækka ekki lánshæfiseinkunn rík-
isins.
Már var spurður að því í frétt-
um Stöðvar 2 í gær hvort hann
væri vongóður um að það tækist.
„Það er mjög erfitt að meta líkurn-
ar á þessum tímapunkti. Ég reyni
að byggja mitt mat ekki á einhverj-
um tilfinningum, varðandi vonir
eða ótta, heldur áhættumati,“
sagði hann. Betri mynd fengist af
málum eftir nokkra daga.
Utanríkisráðherra fundaði í
gærmorgun með sendifulltrúum
erlendra ríkja og skýrði fyrir þeim
stöðuna sem upp væri komin. Jafn-
framt verða íslensku sendiráðin
erlendis nýtt til að koma skila-
boðum áleiðis til þarlendra stjórn-
valda.
Í efnahags- og viðskiptaráðu-
neytinu er verið að undirbúa svar
við áminningarbréfi Eftirlits-
stofnunar EFTA (ESA) frá því á
síðasta ári. Í áminningarbréfinu
lýsir ESA því mati að Ísland beri
ótvíræða skyldu til að ábyrgjast
innistæður breskra og hollenskra
sparifjáreigenda á Icesave-reikn-
ingunum.
Drög að svari hafa legið fyrir í
ráðuneytinu svo mánuðum skipti.
Farið verður yfir þau drög, lögð
á þau lokahönd og svarið sent á
næstunni.
Þá verður valinn lögfræðingur
til að reka málið fyrir Íslands hönd
fyrir EFTA-dómstólnum. Líkast til
verður alþjóðlegur sérfræðingur
fenginn til starfans.
Fljótlega fara í hönd viðræður
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um
breytta stöðu og möguleg áhrif
hennar á framvindu efnahags-
áætlunar Íslands og sjóðsins.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær ræður afstaða Svía miklu
um framhaldið, en stjórnvöld þar
hafa verið varfærin í yfirlýsingum
sínum um málið en ríkisstjórnir
hinna Norðurlandanna hafa sýnt
málinu meiri skilning. Því verður
lögð sérstök áhersla á samskipti
við sænsk stjórnvöld næstu daga.
Enn fremur stendur mögulega
fyrir dyrum endurmat á forsend-
um efnahags- og ríkisfjármála.
- sh / sjá síður 4 og 6
Þriðjudagur
skoðun 14
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
12. apríl 2011
85. tölublað 11. árgangur
Ég reyni að byggja
mitt mat ekki á ein-
hverjum tilfinningum, varð-
andi vonir eða ótta, heldur
áhættumati.
MÁR GUÐMUNDSSON
SEÐLABANKASTJÓRI
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Hjörtu kvenna slá hraðar en karlmannshjörtu. Meg-
inástæða þess er sú að kvenlíkaminn er oftast smærri
en líkami karls og þarf því ekki að pumpa blóði út í
jafn mikinn líkamsmassa.
Kristín Bergsdóttir tónlistarkona elskar brasilíska tónlist og kennir brasilískt samba í Kramhúsinu.Samsuða gleði og orku
É g hef haft áhuga á Brasilíu frá unga aldri en mamma hlust-aði mikið á Stan Getz sem var í samstarfi við brasilíska lista-menn. Svo hefur áhuginn bara aukist með árunum,“ segir Kristín Bergsdóttir tónlistarkona sem kenna mun grunn-sporin í brasilísku samba í Kramhúsinu á þriðjudögum.„Í Brasilíu mætast ólíkir menningar-heimar og bæði tónlistin og dansinn suðu-pottur gleði og orku,“ segir Kristín. Hún dvaldi þrjá fyrstu mánuði ársins 2010 í Rio de Janeiro til þess að kynna sér brasil-íska tónlist og menningu enn frekar. „Þar dansaði maður samba á nánast hverjum degi. Tónlistin er enda samtvinnuð dansinum ogþví komst maður ekki hjáð
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓTBITAFISKUR-næring fyrir líkama og sál
Betra brauð í
saumaklúbbinn!
www.listahatid.is
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA! AUKASÝNINGAR!
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX 568 8000 | borgarleikhus.is
FÓLK Bandaríski stórleikarinn Jake Gyllenhaal
eyddi stærstum hluta helgarinnar í tökum uppi
á Eyjafjallajökli og Fimmvörðuhálsi fyrir raun-
veruleikaþáttaröðina Man vs. Wild sem sjónvarps-
maðurinn Bear Grylls stjórnar. Um er að ræða
svokallaða frægðarfólks-útgáfu af þáttaröðinni en
þættirnir sýna með nokkuð hispurslausum hætti
hvernig á að lifa af í harðneskjulegum aðstæðum.
Tökulið frá True North sá um að þjónusta stór-
stjörnuna sem fékk sitthvað að reyna því aftaka-
veður var uppi á jökli alla helgina. „Ég get stað-
fest að þeir voru hérna en vil ekki tjá mig neitt
meira um málið. Þeir fengu allavega allt það besta
og villtasta í íslenskri náttúru,“ segir Þór Kjart-
ansson, framleiðandi hjá True North, í samtali við
Fréttablaðið.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stóð til að
tökum lyki í gærkvöldi en ekki liggur fyrir hvort
Gyllenhaal ætli að teygja úr sér í Reykjavík eftir
svaðilfarirnar uppi á íslenskum jökli. Man vs.
Wild-sjónvarpsþættirnir njóta mikilla vinsælda
úti í heimi og er talið að rúmlega milljarður áhorf-
enda horfi á þættina hverju sinni.
- fgg / sjá síðu 30
Hollywood-stjarna reynir á eigin þolmörk í raunveruleikaþættinum Man vs. Wild:
Jake Gyllenhaal á Eyjafjallajökli
Dásamleg tilfinning
Sigríður Þorvaldsdóttir
leikkona fagnar 70 ára
afmæli sínu.
tímamót 16
Nýr maður
Jóhannes Haukur breytti sér
í vöðvatröll fyrir hlutverk
sitt í myndinni Svartur á
leik.
fólk 30
LITLAR BREYTINGAR Í dag ríkja
áfram SV-áttir, 5-10 m/s norðan til
en 10-15 m/s víða annars staðar.
Áfram skúrir eða él sunnan- og
vestanlands en úrkomulítið og bjart
með köflum allra austast.
VEÐUR 4
6
3
4
8
5
Varist á öllum vígstöðvum
Ráðuneyti, Seðlabankinn og utanríkisþjónustan hafa í nægu að snúast við að tala máli Íslands vegna
Icesave. Matsfyrirtæki og sendiherrar eru meðal þeirra sem við reynum nú að sannfæra um rétt okkar.
Flenging í Frostaskjóli
KR fór illa með Stjörnuna
í fyrsta leik liðanna um
Íslandsmeistaratitilinn í
körfubolta.
sport 26
KÖNNUN Rúmlega þriðjungur
landsmanna er hlynntur hern-
aðaraðgerðum aðildarríkja
Atlantshafsríkjanna (NATO)
í Líbíu. Svipað hlutfall lands-
manna er andvígt aðgerðun-
um, samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Alls sögðust 38,8
prósent mjög eða frekar hlynnt
hernaði en 36,5 prósent segjast
vera mjög eða frekar andvíg.
Um 24,7 prósent segjast hvorki
hlynnt né andvíg.
Karlar virðast vera mun her-
skárri en konur því alls sögðust
44,8 prósent þeirra vera mjög
eða frekar hlynntir hernaði í
landinu. 32,3 prósent kvenna
gáfu sömu svör.
Talsverður munur var á
afstöðu fólks til hernaðaraðgerð-
anna eftir því hvaða stjórnmála-
flokk viðkomandi sagðist myndu
kjósa yrði gengið til þingkosn-
inga nú. - shá / sjá síðu 8
Afstaða til hernaðar í Líbíu:
Svipaður hópur
með og á móti
ÁSÝND BORGARINNAR AÐ BREYTAST Umhverfi miðborgarinnar hefur breyst mikið
með tilkomu tónlistarhússins Hörpunnar og turnsins við Höfðatorg. Nú hillir undir að ferðamenn geti notið þess
til fullnustu að heimsækja höfuðborgina því í næsta mánuði lýkur framkvæmdum við höfnina sem og í miðbæ
borgarinnar eftir brunann vorið 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA