Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 42
12. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR26 sport@frettabladid.is GUÐJÓN SKÚLASON hætti í gær sem þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfubolta. Keflavík er því þjálfaralaust í karla- og kvennaflokki. Guðjón hætti þar sem hann sagðist ekki hafa náð markmiðum sínum með liðið. Gunnar Jóhannsson, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, sagði deildina stefna á að klára þjálfaramálin í vikunni. Sigurður Ingimundarson, fyrrum þjálfari Keflavíkur, er á meðal þeirra sem koma til greina í starf þjálfara karlaliðsins. THE GOLF CHANNEL EIN FLOTTASTA SJÓNVARPSSTÖÐ SINNAR TEGUNDAR Í HEIMINUM FYLGIR FRÍTT MEÐ ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT. VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 MAN. UTD. GEGN CHELSEA Í KVÖLD KL. 18:30 ÞAÐ ER ALLT EÐA EKKERT Á OLD TRAFFORD 18:00 Meistaradeildin – upphitun 18:30 Man. Utd. – Chelsea 18:30 Shakthar Donetsk – Barcelona 20:40 Meistaramörkin Í KVÖLD 18:00 Meistaradeildin – upphitun 18:30 Tottenham – Real Madrid 18:30 Schalke – Inter 20:40 Meistaramörkin Á MORGUN KÖRFUBOLTI Teitur Örlygsson, þjálf- ari Stjörnunnar, var svo undrandi á lélegri frammistöðu síns liðs í gær að hann hreinlega glotti er blaðamaður hitti á hann eftir leik. „Þetta var flenging. Það er ekki hægt að neita því. Við lentum líka á mjög góðu KR-liði sem var að hitta vel. Við áttum líka hlut að máli enda vorum við að hleypa þeim í auðveld skot. Þeir fengu að spila eins og þeim hentar best. Þetta var ekta KR-leikur en ekki ekta Stjörnuleikur. Það sem ég er svekktastur með er að mitt lið mætir ekki til leiks,“ sagði Teitur vonsvikinn. Hans lið hafði ekki spilað í ell- efu daga og var eðlilega nokkuð ryðgað. Teitur vildi þó ekki nota það sem afsökun. „Það væri rosalega gáfulegt hjá mér að hoppa á þetta og nota sem helvítis afsökun. Ég hef bara ekki geð í mér til þess að gera það. Með- alaldurinn í þessu liði er í kring- um 27 ár. Þetta eru engin börn. Þeir eiga að vita betur,“ sagði Teit- ur heiðarlegur og bætti við. „Það fór allt loft úr okkur of snemma og þá var þetta fljótt að fara upp í 30 stig. Þessi flenging hlýtur að brýna okkur fyrir næsta leik. Það kemur í ljós á fimmtudaginn hvort við höfum eitthvað í þetta einvígi að gera.“ Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, var rólegur og yfirvegaður eftir leik. „Enginn leikur er auð- veldur en vörnin sem við spilum í seinni hálfleik er afrakstur þrot- lausra æfinga,“ sagði Hrafn en hann var að vonum ánægður með strákana sína sem mættu algjör- lega tilbúnir til leiks. „Við keyrum allar æfingar á hröðu tempói og það skilar sér síðan í hröðum leik. Hugsandi menn hreyfa fæturna hægar. Þetta er frábær byrjun og dýrmætt að geta hvílt menn eins og Fannar fyrirliða í dag,” sagði Hrafn en Fannar Ólafsson gat ekki leikið vegna meiðsla en beið á bekknum ef á þyrfti að halda. Næsti leikur liðanna fer fram í Garðabænum á fimmtudag. - hbg Þjálfarar KR og Stjörnunnar voru að vonum missáttir eftir leikinn í gær: Fríið engin afsökun fyrir tapinu HEITUR TEITUR Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var líflegur á hliðarlínunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KÖRFUBOLTI KR-ingar unnu fyrstu orrustuna gegn Stjörnunni um Íslandsmeistaratitilinn í gær. Stjarnan hékk í KR í fyrri hálf- leik en í þeim síðari settu KR-ing- ar í fluggírinn og skildu Stjörn- una eftir. Niðurstaðan ótrúlegur 30 stiga sigur, 108-78. Ryðgað- ir Stjörnumenn þurfa því held- ur betur að girða sig í brók fyrir næsta leik ef ekki á illa að fara. Tapið í gær var ekkert annað en neyðarlegt. KR mætti til leiks án fyrirlið- ans síns, Fannars Ólafssonar, sem er meiddur í lærinu. Hann var þó til taks á bekknum ef á þyrfti að halda. Ekki kom til þess. Það verð- ur að viðurkennast að mætingin á þennan fyrsta úrslitaleik olli mikl- um vonbrigðum og vantaði sárlega fleiri Garðbæinga í húsið. Það var engu líkara en það hefði gleymst að auglýsa leikinn í Garðabæ. Stemningin var síðan eftir því – ekki nógu góð. Hvað um það. KR tók völdin í upphafi og Hreggviður Magnús- son, sem kom inn fyrir Fannar, lék eins og andsetinn í upphafi og raðaði niður körfunum. Í stöðunni 21-9 tók Teitur, þjálfari Stjörn- unnar, leikhlé sem skilaði sínu því ryðgaðir Stjörnumenn komust aftur inn í leikinn. Hraðinn í leiknum var ekk- ert sérstakur og er að hluta um að kenna slökum dómurum sem flautuðu á nákvæmlega allt. Línan svona fimm sinnum strangari en í úrslitakeppninni til þessa og dóm- ararnir voru hreinlega að drepa leikinn með stanslausum flautu- konsert. Þess utan vantaði meiri ákefð og grimmd í leikmenn lið- anna. Fyrri hálfleikur því lítið fyrir augað. KR var alltaf skrefi á undan þökk sé stórleik Brynjars Þórs og Hreggviðs. Alltaf þegar KR virt- ist ætla að stinga af kom Stjarnan til baka leidd af sjóðheitum Shouse og Lindmets. Nokkuð munaði um að Jovan fékk fjórar villur í hálf- leiknum og gat því takmarkað spil- að. Engu að síður aðeins átta stiga munur í hálfleik, 56-48, en Brynjar setti niður glæsilegan flautuþrist í lokin og kórónaði góðan hálfleik. KR-ingar byrjuðu síðari hálf- leik með látum. Náðu 10-2 kafla og 16 stiga forskoti, 66-50. Brynj- ar Þór og Walker kraumandi heitir og Stjarnan átti engin svör. 87-66 eftir þriðja leikhluta og ballið svo gott sem búið. Algjör stórskotasýn- ing hjá KR-ingum. KR-hraðlestin hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og hrein- lega niðurlægði Garðbæinga sem vissu ekki sitt rjúkandi ráð. „Sjálfstraustið er í lagi hjá mér þessa dagana. Þeir voru að gefa mér nokkuð opin skot sem ég náði að setja niður,“ sagði brosmildur Brynjar Þór Björnsson, leikmað- ur KR, eftir leikinn.„Við sendum ákveðin skilaboð. Þeir héldu í við okkur í 20 mínútur en þeir halda ekki í við okkur í 40 mínútur.“ henry@frettabladid.is Föst flenging í fyrsta leik KR-ingar voru með refsivöndinn á lofti í Frostaskjóli í gær og hreinlega flengdu Stjörnuna í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. SJÓÐANDI HEITUR Brynjar Þór Björnsson hefur farið á kostum í úrslitakeppninni og átti enn einn stórleikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Iceland Express-deild karla: KR-Stjarnan 108-78 KR: Brynjar Þór Björnsson 28/4 fráköst, Marcus Walker 23, Hreggviður Magnússon 16/5 fráköst, Finnur Atli Magnússon 10/4 fráköst/4 varin skot, Pavel Ermolinskij 10/9 fráköst/7 stoðsend- ingar, Ágúst Angantýsson 6/8 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 6/8 fráköst, Martin Hermannsson 3, Ólafur Már Ægisson 3, Skarphéðinn Freyr Ingason 3. Stjarnan: Justin Shouse 19/6 stoðsendingar, Renato Lindmets 18/7 fráköst, Guðjón Lárusson 12/8 fráköst, Jovan Zdravevski 11/4 fráköst, Daníel G. Guðmundsson 5/4 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 4, Fannar Freyr Helgason 4/4 fráköst, Dagur Kár Jónsson 3, Ólafur Aron Ingvason 2. ÚRSLIT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.