Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 12. apríl 2011 21 Fergie, hin þokkafulla söngkona Black Eyed Peas, hefur ákveð- ið að leggja sólóferilinn til hliðar um stundarsakir. Hana langar einfaldlega að eyða meiri tíma með manninum sínum, Holly- wood-leikaranum Josh Duhamel. Fergie gaf út sína fyrstu sóló- skífu 2006 og seldi ríflega sex milljónir eintaka af The Dutch- ess. „Það eru mörg verkefni á borðinu hjá mér og þetta ár mun snúast alfarið um að reyna að ein- falda aðeins hlutina og veita þeim hlutum athygli auk þess sem mig langar til að eyða meiri tíma með manninum mínum,“ segir Fergie í samtali við Access Hollywood. Sólóferill í biðstöðu MEIRI FRÍTÍMI Fergie ætlar að finna tíma fyrir manninn sinn á þessu ári. Eva Longoria ræddi í fyrsta skipti skiln- aðinn við Tony Parker, leikmann NBA- liðsins San Antonio Spurs, í þætti Piers Morgan á CNN. Leikkonan viðurkenndi að skilnaðurinn hefði sært hana afar mikið. Longoria átti erfitt með að brynna ekki músum á meðan hún ræddi um hjóna- bandsslitin við Morgan. „Þú verður að fyrirgefa, þetta er í fyrsta skipti sem ég ræði þetta opinberlega,“ sagði Longoria. „Sambandsslitin voru mjög erfið, þau særðu mig mjög mikið vegna þess að ég sá mig sem eiginkonu og sem frú Parker. Allt í einu var það horfið og ég þurfti að svara þeirri spurningu hver ég var.“ Parker er grunaður um að hafa haldið framhjá leikkonunni með þáverandi eigin- konu liðsfélaga síns og fetað þannig í fót- spor Johns Terry, fyrirliða Chelsea og enska landsliðsins, en hann átti vingott við unnustu Waynes Bridge, þáverandi félaga hans hjá Chelsea og enska lands- liðsins. Longoria lét erfiðar spurningar Piers ekki slá sig út af laginu og neitaði meðal annars að ræða hvers vegna þau hefðu skilið. „Það er ástæða fyrir því að við Tony giftumst og það var ástæða fyrir því af hverju við vorum saman í sjö ár. Það er líka ástæða fyrir því af hverju við skildum en ég ætla ekki að úttala mig um hana. Ég elska hann enn þá, við tölum saman og erum hluti af lífi hvort annars enn þann dag í dag.“ Skilnaðurinn særði Evu Longoria SORG Eva Longoria segir að skilnaður hennar og Tony Parker hafi sært hana mjög mikið og hún átti erfitt með að svara spurningum um sambandsslitin í viðtalsþætti Pierse Morgan. Tímaritið Star greinir frá því að sést hafi til Gwyneth Paltrow og Matthews Morrison snæða saman kvöldverð í London í lok mars. Eftir matinn færði parið sig yfir á Grosvenor House-hótelið þar sem þau sátu að snakki fram á nótt. Leikararnir kynntust við tökur á sjónvarpsþættinum Glee og hefur tímaritið eftir heimildar- manni sínum að þau hafi strax fundið til hrifningar. „Það fór ekki framhjá neinum að þau voru mjög hrifin af hvort öðru og létu eins og ástfangnir táningar meðan á tökum stóð. Þau voru aldrei langt frá hvort öðru og Gwyneth gaf Matthew símanúm- er sitt áður en hún lauk gestahlut- verki sínu. Þau hafa verið í stöð- ugu sambandi síðan þá,“ var haft eftir innanbúðarmanni. Morrison var staddur í Lond- on í lok síðasta mánaðar og því ákváðu leikararnir að nýta tæki- færið, fá sér kvöldverð saman og minnast gamalla stunda. Paltrow er gift breska tónlistarmanninum Chris Martin og eiga þau saman tvö börn. Parið hefur þó sjald- an sést saman á almannafæri að undanförnu. Afar hrifin hvort af öðru SKOTIN Samkvæmt tímaritinu Star eru Gwyneth Paltrow og Matthew Morrison afskaplega hrifin hvort af öðru. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.