Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 6
12. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR6
Kínversk fræði við HÁSKÓLA ÍSLANDS
konfusius@hi.is | www.konfusius.hi.is
Oddi 101, fimmtud. 14. apríl kl. 17:30
Hinsti flutningurinn
Öllum opið!
Aðgangur ókeypis!
Viðburðir konfúsíusarstofnunar í vikunni:
Miklar breytingar á lifnaðarháttum
Yao þjóðflokksins, grafa undan
einingu þeirra.
Oddi 101, miðvikud. 13. apríl kl. 17:30
Nostalgia e. Haolun Shu
Eitt elsta hverfi Shanghai skal “endurreist”.
Shu fer á vettvang, vopnaður kvikmyndavél
og fullur fortíðarþrá.
Fannst þér dómurinn yfir
Baldri Guðlaugssyni of þungur?
Já 8,5%
Nei 91,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að ferðast innanlands
í sumar?
Segðu skoðun þína á visir.is
ICESAVE „Niðurstaðan er ekki til
að eyða óvissunni. En við bjugg-
umst aldrei við miklum tíðindum
á fyrsta degi,“ segir Ásdís Krist-
jánsdóttir, forstöðumaður grein-
ingardeildar Arion banka.
Rólegt var yfir fjármálamarkaði
í gær, á fyrsta virka deginum eftir
að Icesave-samningarnir voru
felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu á
laugardag. Hvorki urðu stórvægi-
legar breytingar á skuldabréfa-
markaði né hreyfðist skuldatrygg-
ingarálag (CDS) ríkisins.
Ásdís bendir á að beðið sé eftir
viðbrögðum matsfyrirtækjanna
Moody‘s og Standard & Poor‘s, sem
hefðu hótað því að fella lánshæfi
ríkissjóðs í ruslflokk yrðu samn-
ingarnir felldir.
Lánshæfi ríkissjóðs hefur verið
í ruslflokki hjá matsfyrirtækinu
Fitch frá því að forseti Íslands
setti fyrri Icesave-samninginn
í hendur þjóðarinnar í janúar í
fyrra. Í áliti Fitch í gær kemur
fram að niðurstaðan í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni nú geti tafið
fyrir hærra mati.
„Ég held að ef lánshæfiseinkunn
ríkissjóðs verði færð í ruslflokk
hjá hinum fyrirtækjunum þá muni
það hafa neikvæð áhrif. Ríkissjóð-
ur mun ekki geta fjármagnað sig
á erlendum vettvangi með slæma
lánshæfiseinkunn,“ segir Ásdís
og bendir jafnframt á að vafi sé á
því hvort Landsvirkjun geti tryggt
sér lánsfé vegna framkvæmda við
Búðarhálsvirkjun hjá evrópska
fjárfestingarbankanum. Í nýlegum
lánasamningi fyrirtækisins upp á
sjötíu milljónir evra, 11,3 milljarða
króna, er skilyrði um að lánshæfið
verði óbreytt.
Ekki náðist í Hörð Arnarson,
forstjóra Landsvirkjunar, þegar
eftir því var leitað í gær. - jab
Fjármálamarkaðurinn bíður í óvissu eftir breytingu á lánshæfismati ríkissjóðs:
Telur að aðgangur að lánsfé geti lokast
ÁSDÍS Óvissa ríkir á meðan beðið er eftir
því hvort matsfyrirtæki færi lánshæfis-
mat ríkisins í ruslflokk, segir forstöðu-
maður greiningardeildar Arion Banka.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Nefnd tíu þingmanna allra
flokka sem sæti eiga á Alþingi
verður falið að móta þjóðarörygg-
isstefnu fyrir Ísland nái þings-
ályktunartillaga sem utanríkis-
ráðherra hefur lagt fyrir Alþingi
fram að ganga.
Grundvöllur þessarar fyrstu
þjóðaröryggisstefnu sem íslensk
stjórnvöld láta vinna verður her-
leysi, að því er fram kemur í tillög-
unni. Vinnu við stefnuna á að vera
lokið í júní á næsta ári.
„Eitt af grundvallarhlutverk-
um stjórnvalda hverju sinni er að
tryggja öryggi þjóðarinnar,“ segir
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra.
Hann segir öryggisstefnu lands-
ins hingað til hafa beinst gegn
hernaðarógn, en það þurfi að
breytast. Flestir séu nú sammála
um að engin hernaðarógn steðji
að okkar heimshluta, þótt annars
konar ógn geti steðjað að.
Hann nefnir til að mynda ógnir
á borð við mengunarslys, farsótt-
ir, skipulagða glæpastarfsemi,
netglæpi og efnahagsþrengingar
sem hafa áhrif þvert á landamæri
ríkja. Þessar ógnir verði Ísland að
taka alvarlega eins og önnur ríki.
Össur segist leggja mikla
áherslu á að þverpólitísk sam-
staða náist í þingmannanefndinni.
Aðeins þannig megi tryggja að svo
breið sátt verði um stefnu landsins
í þessum málaflokki að breytingar
verði ekki gerðar þótt ríkisstjórn-
arskipti verði.
Þingmannanefndin á að fjalla
um ýmis mál sem varða þjóðar-
öryggi, til dæmis aðild Íslands
að varnarsamstarfi, samvinnu
við önnur ríki, loftrýmisgæslu og
ríkjasambönd um öryggi og varn-
ir.
Össur segir að í starfi nefndar-
innar sé allt undir, þar á meðal
aðild Íslands að Atlantshafsbanda-
laginu. „Ef það verður þverpóli-
tísk niðurstaða um að það sé ekki
rétt að vera í NATO hlýtur það að
koma mjög alvarlega til álita, en ég
á ekki von á að svo verði.“
Nefndin á jafnframt að skoða
hvort rétt sé að koma upp sérstöku
þjóðaröryggisráði eins og fjallað
er um í áhættumatsskýrslu sem
gefin var út árið 2009. Sé talin þörf
á að koma upp slíku þjóðarörygg-
isráði þarf að fjalla um tengsl þess
við almannavarna- og öryggisráð.
Þegar nefndin hefur mótað
þjóðaröryggisstefnu mun utanrík-
isráðherra leggja fram á Alþingi
tillögu um þjóðaröryggisstefnu á
grundvelli starfs nefndarinnar.
brjann@frettabladid.is
Nefnd þingmanna
móti öryggisstefnu
Utanríkisráðherra leggur til að þingmannanefnd móti þjóðaröryggisstefnu
fyrir Ísland. Engar vísbendingar um hernaðarógn en taka þarf alvarlega hættu
vegna mengunarslysa, netglæpa, farsótta og skipulagðrar glæpastarfsemi.
ÝMIS HÆTTA Meðal þess sem nefnd sem móta á þjóðaröryggisstefnu þarf að hafa
í huga er hætta vegna mengunarslysa. Hér sést Goðafoss á strandstað við strendur
Noregs nýlega. NORDICPHOTOS/AFP
Ef það verður þver-
pólitísk niðurstaða
að það sé ekki rétt að vera
í NATO hlýtur það að koma
mjög alvarlega til álita, en ég
á ekki von á að svo verði.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
UTANRÍKISRÁÐHERRA
LÍBÍA, AP Leiðtogar uppreisnarmanna í Líbíu hafa
hafnað sáttatillögu Afríkubandalagsins. Ástæðan
er sú að í tillögunni er ekki kveðið á um að Gaddafi
leiðtogi landsins fari frá völdum. Ekkert vopnahlé
verði nema hann og nánustu samverkamenn hans
fari frá.
Afríkubandalagið hafði lagt til sáttatillögu
sem fól í sér tafarlaust vopnahlé milli fylkinga og
óhindraðan aðgang að neyðaraðstoð. Hún fól einnig í
sér að Nató hætti loftárásum og að viðræður hæfust
á milli stjórnvalda og uppreisnarmanna.
Gaddafi og stjórn hans höfðu samþykkt tillöguna
á sunnudag eftir fund með fimm leiðtogum Afríku-
ríkja, þar á meðal Jacob Zuma forseta Suður-Afr-
íku, sem leiddi ráð leiðtoganna fimm. Leiðtogarnir
héldu til Benghazi í gær og fengu óblíðar móttökur
þar. Mótmælendur hrópuðu „Gaddafi burt“ og gerðu
aðsúg að bílalest leiðtoganna.
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri
Nató, hefur kallað eftir því að allt ofbeldi verði
stöðvað. Hann segir að hernaðaraðgerðir muni ekki
duga einar til þess, heldur þurfi miklar endurbætur
á öllu kerfinu. - þeb
Stjórnarandstæðingar í Líbíu segja sátt aðeins verða fari Gaddafi frá:
Uppreisnarmenn hafna sátt
MÓTMÆLI Fólk safnaðist saman með mótmælaspjöld í
borginni Benghazi í Líbíu í gær á sama tíma og fulltrúar upp-
reisnarmanna ræddu sáttatillögu Afríkubandalagsins.
MYND NORDICPHOTOS/AFP
KJÖRKASSINN