Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 41
ÞRIÐJUDAGUR 12. apríl 2011 25 „Þetta er náttúrulega bara bilun,“ segir Gísli Örn Garðarsson, einn af forsvarsmönnum leiklistar- hópsins Vesturport. Yfir fimm- tíu manna hópur frá Vesturporti og Borgarleikhúsinu flaug til St. Pétursborgar í gær en þar mun afhending evrópsku leiklistar- verðlaunanna fara fram 17. apríl. Eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum hlýtur Vesturport þennan mikla heiður en þarf, réttara sagt neyðist, af þeim sökum að setja upp tvær sýningar; annars vegar Hamskiptin og hins vegar Fást. Hamskiptin er tiltölulega ein- föld sýning miðað við Fást því sú síðarnefnda krefst gríðarlegs undirbúnings hjá sviðslistarfólki, strengja þarf net yfir allan salinn og það er ekki sama hvernig það er gert, öll öryggisatriði þurfa að vera í lagi. „Verkin verða svo bara sýnd einu sinni, síðan er sviðs- myndin tekin niður. Og það er ekkert selt inn á þessar sýningar heldur eru þær bara í boði fyrir fjölmiðla og fólk í bransanum; þetta er bara svona „showcase“,“ útskýrir Gísli en bætir því við að þau séu öll afar spennt og hlakki mikið til. En þessi törn og stutti tími milli sýninga þýðir að menn verða að vinna á vöktum allan sólarhring- inn á meðan á havaríinu stendur. „Hamskiptin eru sýnd 13. apríl og Fást 15. apríl þannig að við verð- um að láta hendur standa fram úr ermum og nýta allan tímann vel.“ - fgg Vesturport á vöktum í Pétursborg BRJÁLUÐ VINNA Gísla og félaga bíður mikil vinna en Vesturport sýnir Ham- skiptin og Fást á aðeins þremur dögum í sama leikhúsinu. Unnið verður á sólar- hringsvöktum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Eftir sambandsslitin við Just- in Timberlake hefur leikkonan Jessica Biel ákveðið að losa sig við allar gjafirnar sem hann hafði gefið henni í gegnum tíðina. „Hún gaf aðstoð- arkonu sinni Rolex úr og viðskipta- félaga sínum gaf hún demants- armband og eyrnalokka í stíl. Jess- ica vill ekki eiga hluti sem minna hana á sambandið,“ var haft eftir innan- búðarmanni. Skartið sem Biel er að láta frá sér kostar sitt og því hljóta vinir hennar að vera bæði þakklátir og ánægðir. Gjafmild stjarna GJAFMILD Jessica Biel hefur ákveðið að losa sig við allar gjafirnar sem Justin Timberlake hefur gefið henni. Bandaríski leikarinn Matthew McConaughey viðurkennir að þótt honum þyki ágangur pap- arazza-ljósmyndara óþolandi hefur hann sætt sig við að þurfa að umgangast þá. „Ég var orðinn þreyttur á því að vera alltaf fúll út í þá. Ég hugsaði með mér; „Er ég tilbúinn að flytja eitthvert þar sem þá er ekki að finna? Er ég tilbúinn til að girða heimili mitt alveg af?“ Og svarið var nei. Þannig að ég ákvað að sætta mig við þetta og takast á við það eins vel og ég get,“ sagði leikar- inn. Hann reynir þess í stað að taka lífinu með ró og vera sam- vinnuþýður þegar kemur að myndatökum. „Ef ég er staddur á ströndinni með börnin segi ég við ljósmyndarana: „Smelltu af og leyfðu okkur að vera svo í ró og næði.“ Hingað til hafa þeir virt það. Vissulega finnst mér það þreytandi en mér finnst þetta alls ekki óréttlátt.“ McCo- naughey er kvæntur brasilísku fyrirsætunni Camillu Alva og saman eiga þau tvö börn. Samvinnu- þýður við ljósmyndara SAMVINNUÞÝÐUR Matthew McCon- aughey og sambýliskona hans, Camilla Alva, eru samvinnuþýð þegar smella á af þeim mynd. NORDICPHOTOS/GETTY Farfuglar ❚ Borgartúni 6 ❚ 105 Reykjavík ❚ Sími 552 8300 ❚ thorsmork@thorsmork.is ❚ www.thorsmork.is Þórsmörk Fyrirtæki - skólar - vinahópar Er hópurinn að huga að vorferð? Komið í Húsadal og upplifið þessa náttúruperlu í aðeins 150 km fjarlægð frá Reykjavík. Þórsmörk er sannkallað ævintýraland náttúruunnenda með endalausum möguleikum á gönguleiðum og útiveru þar sem jöklar, ár, fjöll og gróður kallast á í þessu magnaða landslagi. Fjölbreytt gisting Í Húsadal er fjölbreytt aðstaða fyrir einstaklinga og hópa til styttri eða lengri dvalar. Boðið er upp á gistingu í tveggja manna herbergjum, smáhýsum og skálum. Frábær aðstaða Í glæsilegum funda- og veitingasal eru sæti fyrir um 100 manns, hvort sem um er að ræða fundi, ráðstefnur eða veisluhöld. Við getum boðið upp á fulla þjónustu í mat og drykk fyrir hópa. Auk þess eru gufubað og sturtur á staðnum og hvað er betra eftir hressandi gönguferð en að skella sér í gufu? Fróðleikur um gosin. Við bjóðum upp á fyrirlestur og myndasýningu um gosin í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi og afleiðingar þeirra. Einnig skipuleggjum við gönguferðir, kvöldvökur, leiki, grillveislur og gerum tilboð í akstur. Hafið samband eða farið á vefsíðu okkar www.thorsmork.is til að fá frekari upplýsingar. Sjáumst í Mörkinni!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.