Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 8
12. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR
KÖNNUN Svipað hlutfall lands-
manna styður hernaðaríhlutun
aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) í Líbíu og er and-
vígt hernaðinum, samkvæmt skoð-
anakönnun Fréttablaðsins.
Alls sögðust 38,8 prósent mjög
eða frekar hlynnt hernaðaraðgerð-
unum en 36,5 prósent segjast mjög
eða frekar andvíg. Um 24,7 prósent
segjast hvorki hlynnt né andvíg.
Karlar virðast samkvæmt könn-
uninni talsvert herskárri en konur.
Alls sögðust 44,8 prósent karla
mjög eða frekar hlynnt hernaðar-
aðgerðum í Líbíu en 32,3 prósent
kvenna.
Talsverður munur var á afstöðu
fólks til hernaðaraðgerða NATO
eftir því hvaða stjórnmálaflokk
viðkomandi sagðist myndu kjósa
yrði gengið til þingkosninga nú.
Alls sögðust ríflega 48 pró-
sent stuðningsmanna Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins hlynnt hernaðaraðgerðunum.
Heldur fleiri sjálfstæðismenn
sögðust andvígir hernaðinum, alls
ríflega 27 prósent samanborið við
21 prósent framsóknarmanna.
Um 38 prósent stuðningsmanna
Samfylkingarinnar segjast hlynnt
hernaðaraðgerðum NATO í Líbíu.
Örlítið fleiri, eða um 41 prósent,
segjast andvíg aðgerðunum.
Um 28 prósent stuðningsmanna
Vinstri grænna styðja hernaðar-
aðgerðirnar, en meirihluti stuðn-
ingsmanna flokksins, ríflega 57
prósent, er andvígur hernaðinum.
Hjá þeim hópi sem ekki tók
afstöðu til stjórnmálaflokka voru
um 35 prósent hlynnt hernaðinum
en 37 prósent andvíg.
Hringt var í 800 manns dagana
5. og 6. apríl. Þátttakendur voru
valdir með slembiúrtaki úr þjóð-
skrá og skiptust jafnt eftir kyni, og
hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Spurt var: Hversu hlynnt(ur) eða
andvíg(ur) ert þú hernaðaraðgerð-
um aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins í Líbíu? Alls tóku 79,7 pró-
sent afstöðu. brjann@frettabladid.is
Jafnmargir hlynntir
og andvígir hernaði
Rúmlega þriðjungur landsmanna er hlynntur hernaðaraðgerðum aðildarríkja
NATO í Líbíu samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Svipað hlutfall er andvígt
hernaðinum. Karlar virðast mun herskárri en konur samkvæmt könnuninni.
12,5%
26,3%
24,7%
16,3%
20,2%
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú hernaðaraðgerð-
um aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í Líbíu?
Eftir kyni
8,4%
23,9%
26,4%
20,8%
20,5%
16,2%
28,6%
23,1%
12,2%
19,9%
Hernaðaraðgerðir í Líbíu
■ Mjög hlynnt(ur)
■ Frekar hlynnt(ur)
■ Hvorki hlynnt(ur) né andvíg(ur)
■ Frekar andvíg(ur)
■ Mjög andvíg(ur)
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Tilboð
Kæli- og frystiskápar sem hafa innbyggða klakavél
með mulningi og ísköldu íslensku vatni. Þeir eru
öflugir, endingargóðir og glæsilega innréttaðir.
kr. 369.000 stgr.
Verðlistaverð kr. 461.250
GCE21LGY / Stærð: h 177.5 x b 90.9 x d 63 sm
Kælir: 383 ltr. / Frystir: 172 ltr. Stálhurðir / Orkuflokkur A
Morgunverðarfundur um almenningssamgöngur
Innanríkisráðuneytið boðar til morgunverðarfundar um almenn-
ingssamgöngur miðvikudaginn 13. apríl kl. 8.15 til 10. Fundurinn
verður haldinn á Radisson Hótel Sögu í Reykjavík.
Flutt verða erindi um núverandi stöðu almenningssamgangna,
horfur og nýjungar sem ráðuneytið og aðrir aðilar vinna nú að.
Erindi og pallborðsumræður:
Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri Hveragerðis
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness
Dagur B. Eggertsson formaður samgönguráðs
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri
Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó
Þorsteinn Rúnar Hermannsson verkfræðingur í innanríkis-
ráðuneyti
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
Skráning fari fram með tölvupósti á netfangið postur@irr.is eigi
síðar en um hádegi þriðjudaginn 12. apríl.
Fundurinn hefst kl. 8.30 en húsið er opið frá kl. 8.15 og geta
fundarmenn keypt sér léttan morgunverð á 900 krónur.
INNANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
ATVINNUMÁL Synjun Fjármálaeft-
irlitsins (FME) um afhendingu
umbeðinna gagna til Ingólfs Guð-
mundssonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verk-
fræðinga, skorti lagastoð að mati
umboðsmanns Alþingis.
Ingólfur fór fram á að fá gögn
í stjórnsýslumáli er laut að hæfi
hans til þess að gegna stöðu fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verk-
fræðinga, en var synjað. Umboðs-
maður mælist til þess að mál
Ingólfs verði tekið upp að nýju
innan FME.
Ingólfur var ráðinn fram-
kvæmdastjóri sjóðsins í febrúar
2010. FME sendi sjóðnum bréf í
maí þar sem gerðar voru athuga-
semdir við ráðningu Ingólfs. Í
bréfinu stóð að verið væri að
skoða hæfi framkvæmdastjórans
til þess að gegna stöðunni, vegna
starfa hans sem stjórnarformanns
Íslenska lífeyrissjóðsins. Niður-
staða FME var sú að Ingólfur var
ekki hæfur og í framhaldi af því
lét hann af störfum.
„Ég var mjög ósáttur við
afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins og
höfðaði mál gegn því í desember.
Ég tel að þeir hafi gróflega mis-
notað valdheimildir sínar,“ segir
Ingólfur. „Ég tel að [niðurstaða
umboðsmanns] sýni vinnubrögðin
í málinu í hnotskurn.“
Fjallað verður um mál Ingólfs
innan FME 20. apríl næstkomandi.
- sv
Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir Fjármálaeftirlitið:
Lífeyrissjóðsstjóri
átti rétt á að fá gögn
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ Mál Fjármálaeftir-
litsins og Ingólfs Guðmundssonar ætti
að vera endurskoðað, að mati umboðs-
manns Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NEYTENDUR Neytendasamtökunum hafa borist í kring-
um 200 fyrirspurnir og erindi vegna húsaleigumála
það sem af er ári. Samkvæmt tilkynningu frá sam-
tökunum svarar þetta til um 800 erinda á ári, sem er
helmingi meira heldur en var í fyrra. Árið 2009 voru
rúmlega 200 fyrirspurnir af þessum toga.
Talsvert er spurt um hvað beri að varast við samn-
ingsgerð, hvernig ástand leiguhúsnæðis skuli vera
og hvernig viðhaldi og skiptingu kostnaðar skuli
háttað.
Neytendasamtökin telja ljóst að brýn þörf sé á
aðstoð og ráðgjöf til leigjenda hér á landi, þar sem
hér séu engin starfandi leigjendasamtök.
„Neytendasamtökin hafa gert sitt besta til að
aðstoða leigjendur en sjá þó ekki fram á að geta
sinnt þessum stóra málaflokki áfram sem skyldi
nema til komi eitthvert framlag frá ríkinu,“ segir í
tilkynningu frá samtökunum. „Hugmyndir um slíkt
hafa verið ræddar en enn er þó ekkert fast í hendi.“
- sv
Húsaleigumálum hefur fjölgað ört á árinu hjá Neytendasamtökunum:
Húsaleigumál 200 talsins á árinu
LEIGUMARKAÐURINN Húsaleigumarkaðurinn fer ört stækk-
andi á Íslandi og eru fyrirspurnir vegna húsaleigumála orðnar
einn af stærstu málaflokkum Neytendasamtakanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Öll börn fædd á
árinu 2011 og síðar verða bólu-
sett gegn pneumókokkasýking-
um, og munu bólusetningarnar
hefjast síðar í apríl, samkvæmt
upplýsingum frá Landlæknis-
embættinu.
Útlit var fyrir að tafir yrðu á
því að bólusetningar hæfust, en
velferðarráðherra hefur ákveðið
að þær skuli hefjast sem fyrst.
Börnin verða bólusett með
bóluefninu Synflorix. Bólusetn-
ing fer fram við þriggja mán-
aða, fimm mánaða og tólf mán-
aða aldur. Börn sem fædd eru
fyrir árið 2011 eiga þess kost að
fá bólusetningu, en þá verða for-
eldrar þeirra að greiða kostnað
við bóluefnið. - bj
Pneumókokkabólusetning:
Öll börn fædd á
árinu bólusett
SMITAST Að meðaltali greinast árlega
ellefu börn undir fimm ára aldri með
pneumókokkasýkingu hér á landi.
NORDICPHOTOS/GETTY