Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 28
12. APRÍL 2011 ÞRIÐJUDAGUR6 ● dekk
● DEKKIN ENDURNÝTT Talsvert
er um að dekk séu endurnýtt eftir að
þau hafa þjónað gildi sínu undir öku-
tækjunum. Þau hafa til dæmis verið
notuð sem hreiðurstæði fyrir æðar-
fugl, þar sem hlúð er að varpi hans
og hægt er að fóðra með þeim hrúta-
stíur svo þeir hafi eitthvað þægilegt að
hnubba í. Að sögn Más Karlssonar hjá
Úrvinnslusjóði eru dekk líka tætt niður
og notuð í gúmmímottur.
● NÝJAR MERKINGAR Á DEKKJUM Nú ætlar Evr-
ópusambandið að auðvelda fólki að velja sér hjólbarða með
því að innleiða frá og með næsta ári nýjar og auðlæsileg-
ar merkingar á hjólbarða. Þessar nýju merkingar eiga að
sýna í sjónhendingu mótstöðu dekkja, hversu hávaðasöm
þau eru og síðast en ekki síst hemlunareiginleika þeirra á
votum vegi. Nýju merkingarnar verða á áberandi límmið-
um sem festir verða við nýja hjólbarða.
Töluvert hefur, undanfarin ár, borið á hjólbörðum á
markaði í Evrópu sem eru mjög ódýrir og er oftast um að
ræða hjólbarða sem tæpast uppfylla lágmarks öryggis-
kröfur. Sum þessara dekkja hafa einfaldlega reynst hræði-
lega og jafnvel átt það til að hvellspringa á fullri ferð. Von-
ast er til að nýju merkingarnar muni með tímanum út-
rýma lélegustu hjólbörðunum af markaðinum.
Nánar má fræðast um málið á heimasíðu FÍB fib.is.
● ÁÐUR EN LAGT ER AF STAÐ:
Þegar halda á í langferð á bílnum er gott
fara yfir nokkur atriði:
Vökvar
● Athuga stöðu kælivatns, bremsuvökva,
stýrisvökva, rúðuvökva og olíu og bæta
við ef með þarf.
Dekk
● Athuga hvort varadekk sé í lagi og allur
fylgibúnaður til að skipta ef dekk springur.
Loftþrýstingur
● Athuga loftþrýsting í dekkjum og
varadekki.
Ljósabúnaður
● Yfirfara ljósabúnað og endurnýja perur þar sem þörf er á, þar á meðal
ljósa- og glitmerkjabúnað eftirvagna.
Rúður
● Þrífa rúður vel, innan sem utan, og endurnýja þurrkublöð ef með þarf.
Varahlutir
● Hafa meðferðis nauðsynlegan búnað s.s. viftureim, perur, dráttartaug,
nauðsynlega vökva, rakaeyði á brúsa fyrir kveikjukerfi, bensínbrúsa,
verkfærasett, startkapla, sjúkrakassa, teppi, lítið handslökkvitæki,
hlífðarvettlinga o.fl.
Eftirvagn
● Eftirvagn má ekki vera þyngri en skráningarskírteini bílsins segir til
um. Enn fremur eru vagnar skráningarskyldir sem eru yfir 750 kg að
leyfðri heildarþyngd og allir tjaldvagnar, fellihýsi og hjólhýsi. Eftir-
vagnar eða tengitæki sem eru yfir 750 kg þurfa að vera með hemlum.
Allir eftirvagnar/tengitæki þurfa að vera með afturljós, stefnuljós og
hemlaljós. Þyngd eftirvagnsins má heldur ekki fara yfir þau mörk sem
tengibúnaðurinn segir til um.
Speglar
● Fyrir akstur þarf að þrífa og stilla spegla vel svo að sjónsvið öku-
manns sé sem best. Varast ber að skyggja á baksýn með farangri við
afturrúðu. Ef dreginn er eftirvagn, tjaldvagn, hjólhýsi eða annað sem
hindrar baksýn verður að hafa spegla á framlengdum örmum svo
ökumaður sjái aftur með eftirvagninum. www.us.is
„Okkar helsta einkenni í dekkj-
um er AT-405, 38 tommu dekk
sem við látum framleiða eftir
okkar eigin hönnun,“ segir Gunn-
ar Haraldsson, verslunarstjóri hjá
Arctic Trucks Kletthálsi 3. „Þetta
er mest selda 38 tommu dekkið á
landinu í dag, heilsársdekk sem
menn geta notað allt árið, en er
auðvitað neglanlegt líka. Mynstr-
ið á því er hannað til að bæta grip
og endingu, auk þess sem það er
mjög hljóðlátt. Þetta er stórt jeppa-
dekk sem hentar ekki síst þeim
sem vilja ferðast um hálendið á
veturna.“
Arctic Trucks sérhæfir sig í
þjónustu við stóra fjallatrukka og
hafa 44 tommu Dick Cepek-dekkin
verið afar vinsæl í gegnum tíðina.
„Þetta dekk hefur verið á markaði
hér í áraraðir en er í dag sérstak-
lega framleitt fyrir okkur,“ segir
Gunnar. „Arctic Trucks notar það
meðal annars undir alla þá bíla
sem við framleiðum til að sinna
verkefnum á Suðurskautslandinu,
og hafa þau reynst einstaklega vel
við þær erfiðu aðstæður sem menn
og tæki þurfa að glíma við þar.“
„Þótt Arctic Trucks sé kannski
þekktast fyrir þjónustu við stóra
og mikla fjallajeppa, þá bjóðum
við dekk undir flestar gerðir jeppa
og jepplinga,“ segir Gunnar. „Hjá
okkur er alltaf heitt á könnunni
fyrir þá sem vilja koma og kynna
sér þá þjónustu sem við höfum upp
á að bjóða eða fræðast um ferða-
mennsku á jeppum.“
Arctic Trucks
– miðstöð allra jeppamanna
„Við bjóðum dekk undir flestar gerðir jeppa og jepplinga,“ segir Gunnar Haraldsson,
verslunarstjóri hjá Arctic Trucks. MYND: STEFÁN
● GERVIHLJÓÐ SETT Í RAFBÍLA
Hljóðlátir bílar á borð við rafbíla þykja orðið hættulega hljóðlátir, eftir
því sem fram kemur í frétt á www.fib.is. Þar segir að Volvo, sem nú vinni
hörðum höndum að þróun rafbíla, hafi meira að segja sett upp sérstaka
deild sem vinnur að því að búa til hljóðgjafa og „gervihljóð“ fyrir væntan-
lega rafbíla Volvo.
Japönsk yfirvöld hafa hvatt bílaverksmiðjurnar til að búa til hljóðkerfi
sem í heyrist þegar bílunum er ekið undir 25 km hraða. Obama Banda-
ríkjaforseti gengur lengra því að hann hefur fengið samþykkt lög, sem
taka gildi 2014, um að í bílunum skuli heyrast þegar þeim er ekið.
Ástæða þessa er sú að rafbílar hafa valdið slys-
um. Þau verða þannig að gangandi
og hjólandi vegfarendur sem eru
vanir því að í bílum heyrist og að
treysta heyrninni ekkert síður
en sjóninni, heyra ekkert bíla-
hljóð og verða fyrir hljóðlaus-
um rafbíl.
Borgardekk
arctictrucks.is
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík
Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is
DEKK
Mikið úrval
af jeppadekkjum
í stærðum 33-44”.
Ódýr og góð
þjónusta - lítil bið.
Kíktu í heimsókn!