Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 36
12. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Þórunnar Elísabetar Bogadóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli LÁRÉTT 2. stynja, 6. frá, 8. tala, 9. fálm, 11. frú, 12. titill, 14. fótmál, 16. tónlistar- maður, 17. af, 18. farfa, 20. tveir, 21. útgáfunúmer tónverks. LÓÐRÉTT 1. atorka, 3. snæddi, 4. freðmýri, 5. eyrir, 7. flutningaskip, 10. kvenkyns hundur, 13. hluti verkfæris, 15. ekki margir, 16. nögl, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. mása, 6. af, 8. tíu, 9. pat, 11. fr, 12. príor, 14. skref, 16. kk, 17. frá, 18. lit, 20. ii, 21. ópus. LÓÐRÉTT: 1. kapp, 3. át, 4. sífreri, 5. aur, 7. farskip, 10. tík, 13. orf, 15. fáir, 16. kló, 19. tu. ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Draumfarir nauta Hæ, mamma? Flott. Ég er fullorðinn maður, ég ætti nú að geta séð um mig sjálfur þegar ég er veikur. Get ég gert eitthvað fyrir þig Lárus? Nei. Ertu viss? Sko mamma, í venjulegum svefnherbergjum er mestallt gólfplássið autt sem býður upp á vandræði með þrif. En með því að leyfa draslinu mínu að safnast fyrir á þeim stöðum sem maður notar ekki er minna að þrífa. Og hreint í þínum huga er...? Ekki meira en upp að ökklum. Jói, fíflið þitt! Hvenær ætlarðu að læra? Allar þær góðu eru fráteknar! Hinar eru bara hestljótar eða kolruglaðar. Eða bæði! Fyrirgefðu! Ég gleymdi að þakka þér fyrir „Alive“-plötuna! Sjáumst! En, sem sagt, það er algjör óþarfi að breyta sér í ein- hvern homma! - Lifið heil www.lyfja.is Úrval gjafa á góðu verði FERMING 2011 2.990 kr. Puma Animagical fyrir dömuna Ferskur og nútímalegur dömuilmur frá Puma í flottum umbúðum. PUMA animagical dömu EDT 40 ml Maybelline Með kaupum á einu stykki úr Maybelline línunni fylgir snyrtibudda og augnblýantur – frítt. Tilboðið gildir til 20. apríl. 2.990 kr. Puma Animagical fyrir herrann Töff og stílhreinn herrailmur frá Puma í fjörugum umbúðum. PUMA animagical herra EDT 40 ml Skrautlegt, skemmtilegt og sívinsælt Hárskraut, skart og frábært úrval af öllum þessum gjöfum sem alltaf koma sér vel. OROBLU Fermingartilboð 20% afsláttur af ALL COLORS Tilboðið gildir til 20. apríl. ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 5 44 24 0 3. 20 11 Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Setbergi - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík Undanfarið hefur hugsunin um það hvers vegna ég sé ekki flúin af landi brott komið oftar upp í huga minn. Hún hefur svo sem alltaf gert það reglulega, en fjölskylda, vinir, vinna og nám valda því nú að hér vilj- um við mörg vera, þrátt fyrir allt. EINMITT í dag er ár liðið frá því að rann- sóknarskýrsla Alþingis kom út. Skýrslunn- ar hafði verið beðið með eftirvæntingu og það var almenn sátt um hana og innihald hennar í íslensku samfélagi. Þennan dag í fyrra ríkti ekki bara vonleysi yfir því hvað hafði aflaga farið, heldur von um að nú yrði úr bætt. ÁR er svo sem ekki langur tími og sið- bót íslensku þjóðarinnar átti alltaf að taka lengri tíma en ár. Vissulega sagði enginn að þetta yrði auðvelt verk. Horfurnar eftir þessa 365 daga eru þó ekkert sérstaklega góðar, svona með tilliti til undanfarinna vikna. „MIKILVÆGT er að leita sátta í samfélaginu“ stendur á einum stað í skýrslunni. Ári síðar bólar lítið á einhverri sátt um nokkurn skapaðan hlut. Það er helst að þjóðin sé sammála um veðrið. „LEGGJA þarf áherslu á réttnefnda sam- félagsábyrgð og hamla gegn sérhags- munaöflum og þröngri einstaklings- hyggju.“ Ekki hefur þetta enn gengið eftir heldur. Þvert á móti virðast sérhags- munaöfl verða háværari á meðan sam- félagsábyrgðin fer ekki neitt sérstaklega hátt. „LEGGJA þarf rækt við raunsæja, ábyrga og hófstillta sjálfsmynd íslensku þjóð- arinnar“ stendur annars staðar. Samt hefur nú mikið farið fyrir ómældri sjálfs- ánægju og þjóðernisrembu nú eins og áður. Að þjóðin hafi nú endurheimt sjálfs- traust sitt eftir þjóðaratkvæðagreiðslur. „EFLA þarf góða rökræðusiði meðal þjóðarinnar og kjörinna fulltrúa hennar.“ Rökræðusiðir felast ekki í því að úthúða persónum og kalla fólk ýmist fífl eða fávita, oft í skjóli nafnleysis og tölvu. Þá er því miður ekki heldur alltaf að finna meðal þingmanna í þingsal. „ÞAÐ er langtímaverkefni sem krefst framlags frá fólki á öllum sviðum sam- félagsins.“ Gott og vel og vonum það besta. En miðað við þetta, er eitthvað skrítið þó hugurinn reiki stundum burt héðan þegar þetta er raunin og mann langi að vera hvar sem er nema hér? Hvar sem er nema hér

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.