Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 43
ÞRIÐJUDAGUR 12. apríl 2011 27
GOLF Charl Schwartzel lét verkin
tala þegar mest á reyndi á Mast-
ers-mótinu í golfi á lokahringum
á sunnudag.
Hinn 26 ára gamli Suður-Afr-
íkumaður fékk fjóra fugla á síð-
ustu fjórum holunum á Augusta-
vellinum og tryggði sér græna
jakkann á fyrsta risamóti ársins.
Samtals lék hann hringina
fjóra á -14 en Ástralarnir Jason
Day og Adam Scott deildu öðru
sætinu á -12.
Rory McIlroy frá Norður-
Írlandi var með fjögurra högga
forskot fyrir lokahringinn en
hann stóðst ekki pressuna og lék
lokahringinn á 80 höggum. Tiger
Woods sýndi gamla takta og
blandaði sér í baráttuna en hann
endaði á -10. - seth
Masters-mótið í golfi:
Schwartzel fékk
græna jakkann
GRÆNI JAKKINN Phil Mickelson klæðir
hér Schwartzel í hinn fræga græna jakka
sem sigurvegarinn fær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓTBOLTI Man. Utd og Chelsea mæt-
ast í kvöld í síðari leik liðanna í
átta liða úrslitum Meistaradeildar
Evrópu. Leikurinn fer fram á Old
Trafford en Man. Utd gerði sér
lítið fyrir í fyrri leiknum á Stam-
ford Bridge og vann, 0-1.
„Við erum á fínni siglingu þessa
dagana. Þegar við komumst á
svona skrið er erfitt að eiga við
okkur. Það keyrir leikmennina
áfram að vera á slíkri siglingu.
Það er mjög gott á þessum tíma
þar sem hver leikur er eins og
bikarúrslitaleikur,“ sagði Sir Alex
Ferguson, stjóri Man. Utd.
„Leikmennirnir þrífast á mik-
ilvægi þessara leikja. Það skiptir
því engu þó svo ég þurfi að gera
miklar breytingar eins og um
helgina. Stundum getur maður
efast um slíkar breytingar en
þegar við erum á siglingu og
stemning í hópnum þá skiptir ekki
máli hver spilar hverju sinni.“
Man. Utd mun endurheimta
Wayne Rooney í kvöld enda er
hann ekki í banni í Meistaradeild-
inni. United á enn möguleika á
að landa þrennunni eins og árið
1999. Ferguson er þó enn með báða
fætur á jörðinni.
„Það eru allt aðrar aðstæður
núna en 1999. Þá lentum við ekki
í neinum meiðslavandræðum. Við
höfum staðið okkur frábærlega
þrátt fyrir allt mótlætið. Ég veit
ekki hvernig við förum að þessu.“
Frá því að Roman Abramovich
keypti Chelsea hefur liðið unnið
allt nema Meistaradeildina. Það
var alltaf markmið Abramovich og
Ferguson segir að málið sé orðið
að þráhyggju hjá Rússanum.
„Þess vegna keypti hann Torres.
Þetta er þráhyggja hjá Roman sem
veit hvað hann vill,“ sagði Sir Alex.
- hbg
Chelsea á erfitt verkefni fyrir höndum eigi að vinna upp forskot Man. Utd í kvöld:
Ferguson ekki að hugsa um þrennuna
BREIKDANS? Nei, þetta er Wayne Rooney að fagna sigurmarkinu í fyrri leiknum á
afar sérstakan hátt. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Nýting jarðhita við Gráuhnúka
fyrir Hellisheiðarvirkjun
Mat á umhverfisáhrifum nýtingar jarðhita við Gráuhnúka fyrir Hellisheiðarvirkjun
verður kynnt almenningi í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1.
Húsið er opið frá kl. 16:30 til 18:30. Þar verða til sýnis kynningarspjöld um framkvæmdina.
Kynningarspjöldin verða til sýnis til 10. maí og eru aðgengileg á skrifstofutíma.
Allir velkomnir – Orkuveita Reykjavíkur
Fimmtudaginn 14. apríl
kl. 17:00
Hellisheiðarvirkjun nýtir jarðvarma til rafmagns- og heitavatnsframleiðslu www.or.is
Mat á umhverfisáhrifum
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S/
O
R
K
5
45
04
0
4/
11
FÓTBOLTI Andy Carroll var hetja
Liverpool í gær er það vann sann-
færandi 3-0 sigur á Man. City
á Anfield. Carroll skoraði tvö
marka Liverpool í leiknum.
„Þetta var frábær dagur og
snilld að ná fyrsta markinu fyrir
Liverpool. Hvatningin sem ég
hef fengið frá stuðningsmönn-
um félagsins hefur hjálpað mér
mikið. Það er frábært að vera
hérna,“ sagði afar kátur Carroll.
„Það var virkilega sætt að
skora fyrra markið. Að sjá bolt-
ann liggja í netinu var einstakt.
Ég vissi að ég myndi skora. Við
settum pressu á þá í þessum leik
og það skilaði mörkum snemma.
Það skilaði sigrinum.“
Hollendingurinn Dirk Kuyt
skoraði hitt mark Liverpool í
leiknum. - hbg
Liverpool skellti Man. City:
Carroll sá um
Man. City
FYRSTU MÖRKIN Andy Carroll er byrj-
aður að skora fyrir Liverpool.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES