Fréttablaðið - 12.04.2011, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 12. apríl 2011 13
Þegar einar dyr lokast, opn-ast aðrar. En oft mænum við
svo lengi með eftirsjá á lokuðu
dyrnar, að við komum ekki auga
á þær dyr sem standa okkur
opnar.“ Þetta er haft eftir Alex-
ander Graham Bell og hittir beint
í mark. Það er margt verra en
að hafa þessa áminningu bak við
eyrað á vegferðinni.
Á næstu misserum og árum
þurfum við að skoða án fordóma
allar þær dyr sem standa okkur
opnar. Stjórnmál og atvinnu-
líf eru á vissan hátt í umpólun.
Kreppan rændi okkur fjármun-
um, trausti og öryggi, en hún kom
okkur niður á jörðina. Hvaða gild-
ismat væri hér í mestum metum
ef ekkert hefði breyst? Sú lexía
var að vísu óhóflega dýr, en hún
bjargaði gildismati og lífsháttum
sem voru í útrýmingarhættu: Til
dæmis raunsæi, hófsemi, nægju-
semi, ættjarðarást, heiðarleika og
samvistagleði.
Við eigum ekki að gleyma hvað-
an við komum og hver við erum.
Við eigum að þekkja og virða ræt-
urnar. Það tekur okkur kannski
tíma að skipta um mold á þeim, en
sú tækni sem gerir öllum kleift
að ná í þær upplýsingar sem hann
sækist eftir, og aðgang að því
sem er að gerast frá degi til dags
hvar sem er í heiminum, hlýtur að
breyta bæði stjórnmálum og við-
skiptalífi. Þó að maðurinn sé allt-
af og alls staðar eins, þá mótast
hann af umhverfi sínu og mögu-
leikum. Ég held að við séum ekki
alltaf með nægilega opinn huga.
Við höfum tilhneigingu til að fara
fram úr okkur eða ríghalda í for-
tíðina.
Áttu ekki föðurætt?
Við höfum ekki alltaf vald á skoð-
unum okkar. Stundum breytast
þær í áráttu og þá hafa þær vald
yfir okkur. Í annan tíma erum
við kannski úti á þekju án þess að
vita af því. Sjálf fékk ég á sínum
tíma ágæta áminningu um slíkt
meðvitundarleysi.
Nánustu aðstandendur mínir
í móðurætt urðu ekki langlífir,
þegar ég var að vaxa úr grasi, og
flestir dóu skyndilega í dagsins
önn. Engar kvalir eða sjúkrahús-
vist. Kannski verkur fyrir brjósti
og lyf við því. Þetta gerði það að
verkum að manni fannst einboðið
að gera ekki ráð fyrir elliárum,
og ekkert við því að segja. Eina
sem maður stefndi að var að koma
sjálfur börnum sínum til manns.
Síðan liðu árin og allt með felldu.
Dag nokkurn hringdi ein af systr-
um mínum í mig og kvaðst hafa
verið í skoðun í Hjartavernd. Þar
var henni sagt að systkini með
svona fjölskyldusögu ættu að láta
fylgjast með sér,
Ég fór því og lét líta á mig. Að
skoðun lokinni spurði læknirinn
hvað hefði rekið mig til að panta
skoðun í Hjartavernd. Ég sagði
sem var að mér hefði verið bent
á að gera það út af móðurættinni
minni. Læknirinn horfði á mig og
spurði þurrlega: Áttu ekki föður-
ætt?!“
Einhverjum þótti þetta nokk-
uð bratt hjá lækninum, en mér
fannst það meira en gott. Frá-
bært. Hafði aldrei horft til föður-
ættarinnar í þessu efni þó að þær
dyr væru opnar upp á gátt. Stóri
systrahópurinn sem lífið lék ekki
alltaf við, en það kom ekki í veg
fyrir það að þær léku sér við lífið.
Heldur betur. Flestar duglegar,
æðrulausar, fróðleiksfúsar, en
fyrst og fremst glaðar og alltaf
stutt í sönginn. Lifðu vel og lengi.
Bæði húsmæðurnar og verkakon-
urnar. Tvær fóru saman í ferðir
til Norðurlanda og Kanada á
níræðis- og tíræðisaldri, drukku
í sig menningu þessara landa og
nutu þess í botn.
Það gæti því verið býsna bjart
fram undan hjá okkur systrunum.
Hver veit.
Skoðanafrelsi og vakandi vitund
Margir eru þeirrar gerðar að þeir
eiga beinlínis erfitt með að skipta
um skoðun, finnst það vera í ætt
við niðurlægingu að hafa ekki á
réttu að standa. Það er náttúru-
lega kross sem menn kjósa sjálfir
að bera. Hitt er frelsi. Hvað sem
í skerst á næstu misserum, þá
finnst manni einboðið að marga
hluti þurfi að hugsa upp á nýtt. Og
þá er gott að vera ekki eins fastur
í farinu eins og við systurnar
vorum í móðurættinni. Vera með
vakandi vitund.
Nýir tímar – ný tækifæri
Sá virti lögspekingur, Sigurð-ur Líndal, átelur í nýlegri
grein nýskipaða stjórnlagaráðs-
menn fyrir að þiggja boðna skip-
un. Með því hafi þeir að einum
undanskildum samsamað sig
þeim aðilum sem sniðgengu lög
og siðferði í aðdraganda hruns-
ins. Spyr Sigurður hvort þetta
séu leiðarljós hins nýja Íslands.
Í fyrsta lagi var enginn kost-
ur annar í boði. Uppkosningar
komu aldrei til álita af hálfu
þingsins né ný lög um stjórn-
lagaþing. Þessi ferill var ekki í
okkar höndum. Úrskurði Hæsta-
réttar var enn fremur hlýtt og
umboð stjórnlagaþingmanna
afturkallað. Að segja úrskurð-
inn hundsaðan er því hrein og
bein della. Bein skipan í stjórn-
lagaráð var einungis önnur leið
að markmiðinu. Enda úrskurð-
aði Hæstiréttur aldrei neitt gegn
stjórnlagaþinginu sem slíku, ein-
ungis kosningum til þess. Finnst
dapurlegt að margreyndur lög-
spekingur skuli þurfa leikmann
til að segja sér þetta.
Fulltrúar í stjórnlagaráði eru
því með hreina samvizku, bæði
gagnvart löggjafanum og fólk-
inu í landinu. Minni líka á að
verk ráðsins eru einungis hugs-
uð sem tillögur að nýrri stjórn-
arskrá, ekki endanlegur, óhagg-
anlegur stóridómur.
Leiðarljós
Sigurðar
Líndal
Jónína
Michaelsdóttir
blaðamaður
Í DAG
Stjórnmál og atvinnulíf eru á vissan hátt
í umpólun. Kreppan rændi okkur fjár-
munum, trausti og öryggi, en hún kom
okkur niður á jörðina.
Stjórnlagaráð
Lýður
Árnason
fulltrúi í stjórnlagaráði
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
UMRÆÐA
Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé Tæknivara ehf, kt. 421192-2009, sem er að
öllu leyti í eigu Skipta hf. Skipti hafa gert samning við MP banka hf. um að bankinn annist
sölu á Tæknivörum.
Söluferlið hefst formlega í dag, þriðjudaginn 12. apríl, með aðgengi fjárfesta að samantekt
um félagið. Söluferlið er opið öllum fjárfestum sem geta sýnt fram á fjárhagslegan styrk og
viðeigandi þekkingu við innsendingu óskuldbindandi tilboða þann 3. maí n.k., en gert er ráð
fyrir því að hlutafé í félaginu verði selt í heilu lagi. Stefnt er að því að ljúka sölunni í júní.
Tæknivörur ehf. var stofnað árið 1992. Félagið sér um innflutning og þjónustu á notenda-
búnaði fyrir fjarskiptamarkaðinn, s.s. GSM símum, ADSL mótöldum og myndlyklum og er í
samstarfi við fjölmarga endursöluaðila á Íslandi.
Tæknivörur eru dreifingaraðili fyrir nokkur af stærstu vörumerkjunum á sviði farsímatækni,
svo sem Sony Ericsson, LG og Samsung, ásamt Thomson netbúnaði, Doro heimasímum o.fl.
Starfsmenn félagsins eru 16 talsins.
Söluferlið
Boðið er til sölu allt hlutafé Tæknivara ehf. Söluferlinu er ekki beint til almennings heldur
einungis til þeirra fjárfesta sem sýnt geta fram á fjárhagslegan styrk og talist upplýstir á
grundvelli þekkingar og reynslu. Gert er ráð fyrir að hlutafé í félaginu verði selt í heilu lagi.
Fjárfestar munu í upphafi söluferlis hafa aðgengi að samantekt um félagið. Með hliðsjón af
þeim upplýsingum geta fjárfestar skilað inn óskuldbindandi tilboði fyrir kl. 14:00 þann 3. maí
2011 til fyrirtækjaráðgjafar MP banka, Ármúla 13A, 108 Reykjavík. Tilboðum skal skilað á þar
til gerðu formi. Við mat á óskuldbindandi tilboðum fjárfesta verður horft til fjárhagslegs
styrks og þekkingar þeirra. Seljandi áskilur sér rétt til að takmarka aðgang að söluferlinu, s.s.
vegna tengsla fjárfesta við Skipti, en kaupandi að eignarhlut Skipta í Tæknivörum skal vera
óháður Skiptum og fyrirtækjum sem Skipti hefur yfirráð yfir. Jafnframt skal hann vera óháður
eiganda Skipta hf. Fjárfestar, sem fá að halda áfram í söluferlinu eftir mat á óskuldbindandi
tilboðum, þurfa að skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu til að fá frekari upplýsinar um fjárhag og
rekstur Tæknivara. Í framhaldinu verður óskað eftir bindandi tilboðum með fyrirvara tilboðs-
gjafa um áreiðanleikakönnun á þeim gögnum og upplýsingum sem fram hafa komið í
söluferlinu. Seljandi áskilur sér rétt til að a) breyta skilmálum og/eða viðmiðum söluferlisins
og/eða b) ganga til samninga við hvaða tilboðsgjafa sem hann kýs eða hafna öllum.
Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu eru beðnir að hafa samband við
fyrirtækjaráðgjöf MP banka í síma 540 3200 eða senda tölvupóst á fyrirtaekjaradgjof@mp.is.
Tæknivörur ehf. til sölu
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is