Fréttablaðið - 12.04.2011, Qupperneq 23
fartölvur
Markmið Tölvulistans er að
bjóða upp á hágæðavöru
á góðu verði og leita allra
leiða til að bæta þjónustuna.
Tölvulistinn rekur nú verslanir
sínar á sex stöðum á landinu.
„Við leggjum mikla áherslu á að
bjóða hágæðavöru á góðu verði
og við erum sífellt að leita leiða til
þess að bæta þjónustuna,“ segir
Gunnar Freyr Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Tölvulistans. „Við
erum í sterkum viðskiptatengslum
beint við framleiðendur sem gerir
það að verkum að við getum boðið
bæði hagstætt verð en einnig hátt
þjónustustig. Við viljum að við-
skiptavinurinn sé ánægður og að
upplifun hans af bæði vörunni og
þjónustunni sé slík að hann komi
aftur þegar kemur að næstu kaup-
um.“
Gunnar nefnir tölvuverkstæð-
ið sem dæmi. „Þjónustan í versl-
ununum skiptir gríðarlegu máli
en það skiptir ekki síður máli að
þjónustan eftir kaupin sé fagleg
og traust. Það getur alltaf eitthvað
komið upp á eins og allir vita en
það er hvernig málin eru leyst sem
skiptir mestu. Þetta vitum við og
höfum unnið hörðum höndum við
að byggja upp þjónustuverkstæði
sem einkennist af þekkingu, fag-
mennsku og vönduðum vinnu-
brögðum.”
Tölvulistinn var stofnaður árið
1993 og var í fyrstu einungis póst-
verslun í litlu húsnæði í Reykjavík.
„Starfsemin snerist fyrst um sölu
á tölvum og leikjum en boltinn tók
snemma að rúlla. Tölvulistinn jók
vöruúrvalið svo um munaði og um-
svifin jukust samhliða því. Ekki
leið á löngu þar til Tölvulistinn
gat boðið upp á allan mögulegan
búnað og lausnir fyrir viðskipta-
vini, stóra sem smáa,“ segir Gunn-
ar Freyr og brosir. „Smám saman
færðum við út kvíarnar og stimpl-
uðum okkur inn á fyrirtækjamark-
aðinn en á fyrirtækjasviði okkar
liggur nú gríðarleg þekking og
reynsla. Í dag rekum við sex versl-
anir um allt land og það er óhætt
að segja að okkur hafi alls staðar
verið tekið vel.“
Gunnar segir að Tölvulistinn
leggi sig fram um að vera með
breitt úrval af öllu sem tengist
tölvum, hvort sem það er algeng
söluvara eða mjög sérhæfður bún-
aður. „Úrvalið af fartölvum hjá
okkur er það mesta sem þekkist á
landinu og erum við núna með yfir
50 mismunandi módel á lager og
því ættu allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Til að geta boðið
slíkt úrval vinnum við náið með
stórum framleiðendum eins og
Toshiba, Acer, MSI, Asus, West ern
Digital, Logitech, Corsair, Epson,
Philips, Coolermaster og Dvico
svo fáeinir séu nefndir.“
Gott verð, úrval og fagmennska
„Þjónustan í verslununum skiptir gríðarlegu máli en það skiptir ekki síður máli að þjónustan eftir kaupin sé fagleg og traust,“ segir Gunnar Freyr. MYND/GVA
● TOSHIBA TECRA
TÖLVUR FYRIR FYRIR
TÆKIN Tecra-vélarnar frá Tos-
hiba eru hannaðar fyrir athafna-
fólk sem vill aðeins það besta
til að nota við sína vinnu. Tecra-
fartölvur þola meira, endast
lengur og henta vel þeim sem
eru mikið á ferðinni og treysta
á búnaðinn sinn. Tecra-vélar
eru sérstaklega hentugar fyrir
kerfisstjóra eða tæknideildir
fyrirtækja þar sem einfalt er að
staðla uppsetningar og við-
hald. Hafið samband við fyrir-
tækjasvið Tölvulistans og kynn-
ið ykkur Tecra-fyrirtækjavélarnar
frá Toshiba.
● GÓÐAR FERMINGAR
TÖLVUR Á SÉRSTÖKU
TILBOÐI Tölvulistinn er með
mikið úrval af fartölvum á sér-
stöku tilboði yfir fermingarn-
ar. Fólk hefur misjafnan smekk
og er mikið lagt upp úr því að í
Tölvulistanum geti allir fundið
sér fartölvu við sitt hæfi. Kröf-
ur sem unga fólkið gerir til tölv-
unnar sinnar eru mjög mismun-
andi. Sumir vilja hafa þær flott-
ar og nettar, aðrir leggja meira
upp úr því að hafa þær öflug-
ar fyrir leikina. Komið og skoð-
ið úrvalið, við tökum vel á móti
ykkur. www.tolvulistinn.is
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2011 • KYNNING
NÓATÚNI 17 - SÍMI 414 1700 GLERÁRGÖTU 30 - SÍMI 414 1730 MIÐVANGI 2-4 - SÍMI 414 1735 AUSTURVEGI 34 - SÍMI 414 1745HAFNARGÖTU 90 - SÍMI 414 1740 REYKJAVÍKURVEGI 66 - SÍMI 414 1750
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
BETRA
ALLTAF
VERÐ15,6”
FARTÖLVA
Toshiba Satellite C660-1F5
FYL
GIR Ö
LLUM TÖLVUM
DRA
UMAEGG
Nr.9 frá Freyju
119.990
- meðan birgðir endast!