Fréttablaðið - 12.04.2011, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2011
Verslanir BT í Skeifunni í
Reykjavík og á Glerártorgi á
Akureyri bjóða fjölbreytt úrval
fartölva og aukahluta á góðu
verði.
„Við leggjum mikla áherslu á gott
vöruúrval í verslunum BT,“ segir
Jórunn Björk Magnúsdóttir, versl-
unarstjóri BT í Skeifunni. „Okkar
markmið er að viðskiptavinir
okkar finni þá fartölvu sem þeir
leita að hjá okkur, á góðu verði. Og
að sjálfsögðu leggjum við einnig
áherslu á að hafa gott úrval af
öllum aukahlutum sem þarf, eins
og til dæmis mýs, lyklaborð, tösk-
ur, flakkara, minnislykla, prent-
ara og svo framvegis.“
Jórunn segir að helstu vöru-
merki BT í fartölvum í dag séu
Samsung, HP og Packard Bell.
„En auðvitað bjóðum við einnig
upp á önnur þekkt vörumerki eins
og til dæmis Acer, Asus og fleira.“
Að sögn Jórunnar eru fartölv-
urnar frá Samsung að koma mjög
sterkar inn um þessar mundir, en
þar er náttúrulega um að ræða
mjög góðar og vandaðar vörur frá
einum stærsta og virtasta fram-
leiðanda á raftækjum í heim-
inum í dag. „Starfsfólk BT ráð-
leggur svo fólki með tölvukaup-
in, því auðvitað er nauðsynlegt að
vanda valið vel og velja réttu tölv-
una fyrir þá notkun sem höfð er í
huga hverju sinni,“ segir Jórunn
að lokum og bætir við að auðvitað
létti það einnig mörgum kaup á
fartölvu að BT bjóði upp á vaxta-
lausar raðgreiðslur til allt að níu
mánaða.
Verslanir BT eru í Skeifunni
11 í Reykjavík og í verslunar-
miðstöðinni Glerártorgi á Akur-
eyri. Opið er til 22 alla daga í BT
í Skeifunni.
Nánari upplýsingar er hægt að
nálgast á vefsíðu BT, www.bt.is.
Gæði og fjölbreytt úrval
● AF HVERJU FRJÓSA TÖLV
UR Ýmsar ástæður eru fyrir því að tölv-
ur frjósi. Greint er frá eftirfarandi á vef-
síðunni trassi.is: Hugsanlega er minni
tölvunnar það lítið að hún ræður illa við
þegar mörg forrit eru opin í einu. Þá frýs
hún. Gott er að slökkva á nokkrum þeirra
og sjá hvort hún hrekkur ekki aftur í
gang. Stundum rekst vefskoðarinn á for-
rit sem hann ræður ekki við. Þá gefst
hann upp, slekkur á sér og stundum
tölvunni í leiðinni. Loks getur ýmislegt
farið úrskeiðis þegar tölvan er fyrst sett
saman. Til dæmis geta sumir fylgihlutir
passað illa við tölvuna, líkt og geislaspil-
arar, sem getur valdið því að hún frýs.
● ORÐIÐ TÖLVA Þegar
búa þurfti til íslenskt orð yfir
enska heitið computer varð
orðið tölva fyrir valinu. Í des-
ember árið 1964 eignaðist Há-
skóli Íslands fyrstu tölvu sína,
af gerðinni IBM 1620. Sigurði
Nordal prófessor er eignað ís-
lenska orðið tölva sem hann
setti fram 1965. Fram að því höfðu menn notast við orðið rafeindareiknir.
Heimild: visindavefur.hi.is
● MAÐURINN BAK VIÐ MÚSINA Tölvumús eða
mús er miðunartæki í tölvu sem er hannað til að nema tví-
víðar hreyfingar hennar á yfirborðinu fyrir neðan. Bandaríski
rafmagnsverkfræðingurinn Douglas Engelbart er maður-
inn á bak við tölvumúsina en hana kynnti hann til sög-
unnar á ráðstefnu í San Francisco árið 1968. Nafn henn-
ar er leitt af útliti forvera nútímamúsarinnar sem þótti
minna á samnefnt nagdýr. Engelbert eru eignaðar fleiri
uppfinningar í tengslum við tölvur, en músin þykir
áhrifamest. Heimild: wikipedia.org
Jórunn Björk Magnúsdóttir, verslunarstjóri BT í Skeifunni, segir fyrirtækið bjóða helstu vörumerki í fartölvum í dag. MYND/STEFÁN
Lipur og skemmtileg.
Þannig lýsir Skúli Hersteinn
Oddgeirsson, verslunarstjóri
hjá Samsung setrinu, fyrstu
kynslóð spjaldtölvu Samsung.
Samsung setti litla og netta spjald-
tölvu, Galaxy Tab, á markað í
fyrra. Orð hefur verið haft á því
að hún taki sambærilegum tölvum
fram í gæðum.
„Enda er þetta mögnuð græja
sem býr yfir óteljandi möguleik-
um,“ segir Skúli, verslunarstjóri
Samsung setursins, Síðumúla 9.
Hann lýsir eiginleikunum nánar.
„Þetta er mjög lipur tölva, ekki
nema 380 grömm og með 7 tommu
snertiskjá og fellur því vel í lófa.
Það er því leikur einn að halda á
henni í annarri og pikka á hana
með hinni og svo er hægt að geyma
hana í brjóstvasanum meðan hún
er ekki í notkun.“ Hann segir að í
gegnum hana megi nálgast millj-
ónir bóka, blaða og tímarita, og
yfir 100 þúsund forrit og leiki. Úr-
valið fari ört vaxandi.
Galaxy Tab keyrir að auki á
Android-stýrikerfinu frá Google,
er með 512 MB vinnsluminni og 16
GB disk (sem hægt er að stækka).
Tölvan er með micro SD korta rauf
sem tekur allt að 32 GB. „Tölvan
styður við Flash, þannig að ein-
falt er að skoða heimasíður, og 3G
og er útbúin tveimur myndavél-
um, einni 3 MP að aftan og ann-
arri 1,3 MB að framan. Með aftari
vélinni er hægt að taka upp mynd-
bönd í háskerpu og sú fremri, sem
er 1,3 M Pixla, er fyrir myndsam-
töl. Þá er örgjafinn 1 GHZ sem er
einstaklega gott,“ bendir Skúli á
og bætir við að tölvan sé auk þess
búin GPS-staðsetningatæki. „Og
meðan ég man, þá er hægt að nota
hana sem síma. Þannig að allt til
alls fylgir,“ segir hann og hlær.
Fyrir sumum kunna þessar upp-
lýsingar að virðast svolítið rugl-
ingslegar en Skúli segir Galaxy
Tab-spjaldtölvuna einstaklega
auðvelda í notkun. „Þetta er bara
allt saman spurning um að venjast
því að nota snertiskjá í stað lykla-
borðs. Þegar menn eru komnir upp
á lagið með það þá er þetta leik-
ur einn.“
Bæði lipur og létt í lófa
Skúli Hersteinn Oddgeirsson, verlsunarstjóri hjá Samsung setrinu, með eintak af
Galaxy Tab-tölvu sem býður upp á ýmsa möguleika. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN