Fréttablaðið - 12.04.2011, Page 26
12. APRÍL 2011 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fartölvur
Það er óhætt að segja að
tölvuframleiðandinn Dell hafi ávallt
fylgt samtímanum og jafnvel verið
skrefi á undan. Nú býður Dell upp
á þriggja ára ábyrgð á rafhlöðum
í nýjustu útgáfum af Latitude E-
fyrirtækjalínunni.
„Dell er fyrsta tölvufyrirtækið sem býður
upp á þriggja ára ábyrgð á rafhlöðunni en
við höfum einnig í rúmt ár boðið upp á fimm
ára ábyrgð á varahlutunum,“ segir Bjarni
Þór Sigurðsson, sölustjóri vörulausna hjá
EJS. „Dell skilur að tæknin er orðin hluti
af lífi starfsmanna bæði í vinnu og tóm-
stundum. Starfsmenn nota tölvuna jafnt í
ritvinnslu og bókhaldi í vinnunni, þeir nota
samskiptaforrit á borð við Skype í tölv-
unni og tjá sig á samfélagsmiðlum eins og
á bloggi, Twitter og Fésbókinni. Til þess að
koma til móts við breyttar þarfir eru Lati-
tude-fyrirtækjatölvurnar með vefmynda-
vélum og hljóðnemum auk þess sem tölv-
urnar veita öflugan stuðning við þráðlaus
net þannig að starfsmenn geta alltaf verið
í sambandi. Þetta er það sem markaðurinn
er að kalla eftir og Dell-tölvurnar sameina
þetta allt.“
Bjarni segir að sömu rafhlöður gangi í
alla E-línunna. „Það er svo hægt að bæta við
rafhlöðum bæði undir tölvurnar og einnig
er hægt að taka út geisladrifið og bæta þar
við rafhlöðu til þess að fá enn lengri end-
ingu. Það tekur rafhlöðuna aðeins klukku-
tíma að ná 80% hleðslu. Slíkt getur verið
mjög hentugt ef fólk er til dæmis á leið í
nokkurra tíma flug en á ef til vill lítið eftir
af rafhlöðunni.“ En það er ekki aðeins end-
ingargóð rafhlaða og meiri ábyrgð sem er
einkennandi fyrir Dell-fartölvurnar. Í þeim
eru nýjustu Intel-örgjörvarnir, hægt er að
fá skjáina í stærðum frá 12“ til 15“, og einn-
ig er grindin og hjarirnar enn sterkari en
áður.
Bjarni segir að íslensk fyrirtæki geri
miklar öryggiskröfur til tölva. „Við bjóð-
um upp á ýmsar lausnir. Latitude-vélarn-
ar eru með fallvörn, fingrafaralesara og
ýmsa fleiri öryggisþætti. Þá eru vélarnar
tilbúnar fyrir rafræn skilríki en þau eru
sífellt að verða útbreiddari hér á landi. Að
lokum má ekki gleyma útlitinu, það er stíll
yfir því. Dell eru litaglaðir í fartölvunum.
Þær eru ekki aðeins til í svörtu heldur í
ýmsum öðrum litum.“
EJS sameinaðist um síðustu áramót
SKÝRR en það er í dag stærsta upplýsinga-
fyrirtæki landsins og áttunda stærsta fyr-
irtækið á Norðurlöndunum í sínum geira.
„Það má segja að við komum við sögu hjá
hverjum einasta landsmanni á hverjum degi
í okkar rekstri í upplýsingageiranum og það
er bæði skemmtilegt og krefjandi verkefni,“
segir Bjarni Þór.
Þriggja ára ábyrgð á rafhlöðum
„Dell er fyrsta tölvufyrirtækið sem býður upp á þriggja ára ábyrgð á rafhlöðunni en við höfum einnig í rúmt ár boðið upp á fimm ára ábyrgð á varahlutunum,“
segir Bjarni Þór Sigurðsson, sölustjóri vörulausna hjá EJS. MYND/GVA
Samsung-tölvur hafa meðal
annars þann kost að bila mjög
sjaldan að sögn Kjartans
Gústavssonar sölumanns
í Ormsson. Hann segir
fartölvur verða minni og
minni að umfangi en æ öflugri
tæknilega.
„Samsung er aðalmerkið hjá
okkur í fartölvunum. Þær hafa
verið að koma mjög vel út hvað
varðar lága bilanatíðni, eftir því
sem fram kemur á netinu hjá
óháðum dómurum,“ segir
Kjartan Gústavsson, sölu-
maður í Ormsson. Hann
segir vélarnar að sjálfsögðu
ávallt koma með nýjasta stýri-
kerfinu hverju sinni, núna sé það
Windows 7. Spurður út í forrit-
in sem fylgi þeim svarar hann:
„Þetta er misjafnt eftir vélum.
Sumar koma núna með Trial-út-
gáfu af Office sem notandinn
getur prófað í ákveðinn tíma áður
en hann ákveður hvort hann vilji
kaupa það, aðrar eru með önnur
afbrigði af Office sem
fylgir tölvunni. Ég
get nefnt Work sem
er frá Microsoft líka.“
Annars segir Kjartan lítið um
nýjungar innan fartölvugeirans
nema hvað þær verði alltaf minni
og minni og öflugri og öflugri en
þó á sambærilegu verði og áður.
Er sem sagt endalaus þörf fyrir
meiri kraft? „Það eru fyrst og
fremst tölvuleikirnir sem gera
alltaf kröfur um öflugri vélar en
hin hefðbundna heimilisnotkun
gerir það ekki,“ upplýsir hann.
Hvað um skólafólkið? Vill það
eitthvað sérstakt? „Litlu vél-
arnar sem eru með 10,1
tommu skjá eru mjög vin-
sælar meðal skólafólks. Þær
eru svo léttar og meðfærileg-
ar í alla staði og vinnslugeta
þeirra mikil,“ svarar Kjartan
og bætir við að minnstu tölv-
urnar þyki líka eftirsókn-
arverðar fyrir þá sem eru
mikið á ferðinni.
Sú vél sem best selst sem
fermingargjöf þetta vorið er
15,6 tommu tölva að sögn Kjart-
ans enda er fólk þar að fá fína vél
á hagstæðu verði. „Við höfum
verið að bjóða vélar frá 79
þúsundum og upp úr. Svo fer
það eftir því í hvað á að nota
tölvurnar hvað við ráðleggjum
fólki að kaupa,“ segir hann.
Að lokum berst talið að
litum. „Algengustu litirnir í
tölvunum eru silfraðir, rauð-
ir, hvítir og svartir,“ upplýs-
ir Kjartan og tekur fram að
þá sé átt við lokið en yfirleitt
séu þær með dökkt eða silfrað
lyklaborð.
Smáar en knáar og
meðfærilegar
„Það fer eftir því í hvað á að nota tölvurnar hvað við ráðleggjum fólki að kaupa,“
segir Kjartan Gústavsson, sölumaður hjá Ormsson. MYND/GVA