Fréttablaðið - 12.04.2011, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2011 7dekk ●
Viðskiptavinir Heklu munu
eiga von á góðu í apríl
þegar þar verður opnað
nýtt dekkjaverkstæði af
fullkomnustu gerð.
Hekla hefur um árabil boðið bif-
reiðaeigendum upp á framúrskar-
andi þjónustu. Til marks um það
ætlar fyrirtækið að opna dekkja-
verkstæði af fullkomnustu gerð í
þessari viku.
„Hingað til höfum við rekið
lítið dekkjaverkstæði með einum
starfsmanni sem hefur varla haft
undan við að sinna vaxandi eftir-
spurn eftir þjónustu. Við ákváð-
um því að blása til sóknar með
því að opna stærra verkstæði og
þannig koma til móts við þarf-
ir viðskiptavina okkar, sem geta
nú komið beint inn af götunni án
þess að panta tíma,“ segir Krist-
ján Guðjón Bjarnason, verkefna-
stjóri dekkjaverkstæðis Heklu.
Nýja verkstæðið er í portinu
aftan við Heklu á Laugavegi 170-
174, þar sem fyrir er smurstöð.
„Hekla býður nú upp á alhliða
bílaþjónustu; viðgerðaverkstæði,
fullkomna smurstöð og svo núna
fullkomið dekkjaverkstæði,“ segir
Kristján og lýsir þjónustunni
nánar. „Við sinnum öllum almenn-
um dekkjaviðgerðum; umfelgum,
jafnvægisstillum, veitum ráðgjöf
við val á dekkjum og seljum ný
dekk frá nær öllum framleiðend-
um og tökum auðvitað vel á móti
öllum gerðum bíla, bæði fólksbíl-
um og jeppum og ekki bara teg-
undum sem Hekla selur,“ telur
Kristján upp, en hann er enginn
aukvisi og með áralanga reynslu
að baki.
Loks getur Kristján þess að í
apríl verði sérstaklega vel tekið
á móti viðskiptavinum dekkja-
verkstæðisins. „Já, við verðum
með alls konar góð og spennandi
tilboð í gangi út mánuðinn, sem
eiga vafalaust eftir að nýtast fólki
mjög vel. Þannig bjóðum við um-
felgun á fólksbíla frá 2.990 krón-
um, svo dæmi sé nefnt.“
Fullkomið dekkjaverkstæði
Kristján Guðjón Bjarnason fer fyrir sveit vaskra manna á nýju dekkjaverkstæði Heklu. MYND/GVA
Fyrsta bifreiðin á Íslandi reyndist
of kraftlaus.
FYRSTI BÍLLINN
Á ÍSLANDI 1903 veitti Al-
þingi Ditlev Thomsen, konsúl
og kaupmanni, styrk að upp-
hæð 2.000 krónur til að gera
tilraunir með hvort hægt væri
að nota bifreiðar á vegum
hér á landi. Bifreiðin kom til
landsins 1904 og var notuð
á götum Reykjavíkur. Einnig
var henni ekið til Hafnarfjarð-
ar, Eyrarbakka og Stokkseyr-
ar. Hún reyndist ekki vel, bil-
aði oft og var of kraftlítil til að
komast upp brattar brekkur.
Hún var send úr landi aftur.
● SKIPT UM DEKK
Þegar springur á bílnum er
gott að geta bjargað sér, enda
ekki sjálfgefið að einhver
annar bjóðist til að aðstoða. Á
vef Umferðarstofu eru gefin
góð ráð varðandi hjólbarða-
skipti.
1. Setjið bílinn í gír og
handhemilinn á og steina við
hjól ef þörf krefur.
2. Setjið viðvörunarþríhyrn-
inginn 50-100 m fyrir aftan
bílinn.
3. Takið hjólkoppinn af og
losið um allar felgurærnar, en
takið þær ekki af.
4. Náið í varahjólbarðann
og tjakkinn. Stillið tjakknum
undir bílinn. Upplýsingar um
hvar hann er og hvar á að
setja hann undir eru í eiganda-
handbókinni.
5. Lyftið bílnum þar til
hjólbarðinn, sem skipta á um,
er í lausu lofti.
6. Skrúfið felgurærnar af og
takið sprungna hjólbarðann
undan.
7. Setjið varahjólbarðann
undir og skrúfið rærnar á – sú
hlið róarinnar sem er með
úrtakinu (kóniska hliðin) á
að snúa að hjólbarðanum
(felgunni). Herðið rærnar á
misvíxl, þannig að felgan sitji
rétt á.
8. Slakið bílnum niður, takið
tjakkinn undan og herðið allar
rærnar aftur. Setjið hjólkopp-
inn á.
Umfelgun
2.990frá kr.