Fréttablaðið - 12.04.2011, Page 46
12. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR30
„Jú, ég er búin að fallast á að lýsa þessu fyrir Stöð 2. Við
erum ekki búin að ákveða öll smáatriði en þetta verður
örugglega mjög skemmtilegt,“ segir Hildur Helga Sig-
urðardóttir blaðamaður.
Hildur verður í beinni útsendingu ásamt völdum
gestum í myndveri Stöðvar 2 þegar Vilhjálmur prins
og Kate Middleton játast hvort öðru frammi fyrir Guði
og mönnum í kirkjunni Westminster Abbey föstudag-
inn 29. apríl.
Það virðist því ekki vera neinn einkaréttur á útsend-
ingu frá konunglegum brúðkaupum því eins og kom
fram í fjölmiðlum í síðustu viku þá verður einnig sýnt
beint frá athöfninni á RÚV. Þær berjast því um sitt-
hvað fleira en bara landsleik í handbolta. Bogi Ágústs-
son og Elísabet Brekkan lýsa því sem fyrir augum ber.
„Við Elísabet höfum nú gert eitthvað svipað saman áður,
gott ef það var ekki brúðkaup hjá dönsku konungsfjöl-
skyldunni og svo lýstum við líka einu sinni jarðarför.
Það er alltaf voðalega gaman að lýsa einhverju í beinni
útsendingu,“ segir Bogi sem kveðst þó ekki vera kon-
ungssinni númer eitt á Íslandi. Bein útsending hefst
klukkan sjö um morguninn en Bogi var efins um að
hann og Elísabet hæfu störf svo snemma. Henni lýkur
síðan klukkan 12.34, svo því sé haldið til haga.
Hildur Helga er spennt fyrir brúðkaupinu og segir
þetta alltaf vera skemmtilegan viðburð. Og ekki
veiti nú af í öllu þessu volæði. „Ég veit að það
er fólk úti um allan bæ sem ætlar að halda
partí. Ég á vinkonur sem fara og sækja ömm-
urnar á elliheimilin, kaupa brandý og kon-
fekt og horfa á brúðkaupið.“ - fgg
MORGUNMATURINN
„Ég fæ mér oftast bara Honey
Nut Cheerios.“
Magdalena Sara Leifsdóttir, nýkjörin Elite-
fyrirsæta ársins.
Konunglegt brúðkaup á tveimur stöðvum
SLEGIST UM PRINSINN Hildur Helga lýsir brúð-
kaupi Vilhjálms prins og Kate Middleton á Stöð
2 en það eru þau Bogi Ágústsson og Elísabet
Brekkan sem sjá um lýsinguna fyrir RÚV.
„Ég verð Jóhannesi innan handar ef það vakna
spurningar um líkamsrækt. Og ef mig vantar upp-
lýsingar um leik og leikræna tilburði þá get ég alltaf
leitað til Jóhannesar. Það verður gott samstarf okkar
á milli á tökustað,“ segir Egill „Gillz“ Einarsson.
Tökur á kvikmyndinni Svartur á leik hefjast seinna
í þessum mánuði en myndin er byggð á samnefndri
bók Stefáns Mána um undirheima Reykjavíkur.
Egill Gillzenegger leikur stórt hlutverk í mynd-
inni en þetta verður frumraun hans á hvíta tjaldinu.
Þetta er hins vegar ekki í fyrsta sinn sem leiðir Egils
og Jóhannesar liggja saman því sá síðarnefndi lék
svonefndan „rasshaus“ í sjónvarpsþáttunum Manna-
siðir Gillz. „Jóhannes hefur tekið sig mikið á síðan
þær tökur fóru fram, hann var alveg hnöttóttur; með
kringlóttan haus og svakalega bumbu,“ segir Egill
en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu
þá hefur Jóhannes verið fastagestur í líkamsræktar-
stöðvum borgarinnar til að undirbúa sig líkamlega
undir hlutverk handrukkara í myndinni. Og sú vinna
hefur sannarlega skilað sér.
Egill segist ekkert hafa þurft á kvikmyndahlut-
verkinu að halda, hann sé að skrifa bók, gera aðra
seríu um Ameríska drauminn og Mannasiðina auk
þess að vera uppbókaður sem einkaþjálfari. Hann
hafi hins vegar viljað ögra sjálfum sér. „Ég pældi
aðeins í þessu, þessi karakter sem ég leik er náttúru-
lega glæpamaður, hann gerir ljóta hluti í myndinni
og það gæti náttúrulega haft áhrif á mína ímynd. En
svo ákvað ég bara að láta slag standa, myndin verður
væntanlega líka bönnuð börnum.“ - fgg
Jóhannes orðinn hrikalegur
TEKIÐ Á ÞVÍ Þeir Jóhannes Haukur og Egill Einarsson skipta um
hlutverk í Svörtum á leik. Jóhannes leikur aðalhandrukkarann
en Egill er dópsali og varmenni. Ekki er langt síðan Jóhannes
Haukur lék „rasshaus“ í sjónvarpsþáttunum Mannasiðir sem
slógu í gegn á Stöð 2. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jake Gyllenhaal eyddi helginni
í aftakaveðri uppi á Eyjafjalla-
jökli og Fimmvörðuhálsi í tökum
fyrir sjónvarpsþáttaröðina Man
vs. Wild sem ævintýramaðurinn
Bear Grylls stjórnar.
Þættirnir ganga út á að lifa af
í ótrúlegum aðstæðum án utanað-
komandi aðstoðar og hafa þættir
Grylls notið mikilla vinsælda, eru
meðal annars sýndir á Channel 4 í
Bretlandi og á Discovery Channel.
Tilkynnt var um þátttöku
Gyllen haals á vefsíðu leikarans í
byrjun mars á þessu ári og kom
hann til Íslands beint frá Róm þar
sem hann var að kynna kvikmynd
sína, The Source Code. Gyllenhaal
er ekki eina stjarnan sem hefur
samþykkt að vera með í þessari
frægðarfólks-útgáfu af þáttaröð-
inni en leikarar á borð við Ben
Stiller og Will Ferrell munu einn-
ig ganga í gegnum þolraunir.
„Já, ég get staðfest að við erum
með þeim Gyllenhaal og Grylls en
ég vil ekkert tjá mig neitt frekar
um málið. Þeir fengu allavega allt
það villtasta og besta í íslenskri
náttúru,“ segir Þór Kjartansson,
framleiðandi hjá framleiðslufyrir-
tækinu True North, sem þjónustar
tökuliðið uppi á jökli.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins stóð til að ljúka tökum
uppi á jökli í gærkvöldi. Það er
auðvitað engin tilviljun að þetta
svæði varð fyrir valinu. Eldgosið
í Eyjafjallajökli lamaði alla flug-
umferð í Evrópu og víðar fyrir ári
en Ísland fær ögn betri landkynn-
ingu í gegnum þessa þáttaröð því
talið er að 1,2 milljarðar manna
horfi reglulega á Bear Grylls og
ævintýri hans úti um allan heim.
Það er því ekkert skrítið að
Gyllen haal skyldi hafa látið lítið
fyrir sér fara í Reykjavík um
helgina. Hann klæddi sig upp
ÞÓR KJARTANSSON: ÞEIR FENGU ALLT ÞAÐ BESTA OG VILLTASTA
Stórleikarinn Gyllenhaal í
háskaleik á Eyjafjallajökli
fyrir tökurnar í verslun 66 gráður
norður í Bankastræti og náði sér í
mikilvæga næringu á Laundromat
í Austurstræti. „Hann kom hing-
að tvisvar, á föstudagskvöldinu og
laugardeginum og var bara alveg
silkislakur,“ segir Steinn Einar
á veitingastaðnum Laundromat.
Gyllenhaal hefur því augljóslega
ekki kviðið fyrir þeirri reynslu
að fara upp á íslenskan jökul með
ævintýramanni sem virðist ekkert
hræðast.
freyrgigja@frettabladid.is
FENGU ALLT
Jake Gyllenhaal og Bear
Grylls voru alla helgina
uppi á jökli með tökuliði
frá True North að gera þátt
fyrir Man vs. Wild, einn
vinsælasta kapalsjón-
varpsþátt Bandaríkjanna.
Talið er að 1,2 milljarðar
áhorfenda eigi eftir að
fylgjast með svaðilförum
stórleikarans uppi á
Fimmvörðuhálsi og Eyja-
fjallajökli.
NORDICPHOTOS/GETTY
kr. 1299.-
minnkum notkun á plasti og pappabollum
kr. 1950.-
PÆGILEGT &
UMHVERFISVÆNT
Djúsfasta og hreinsun í Kríunesi við
Elliðavatn um páskana, 20 - 25 apríl 2011
Gisting - Heilsudjúsar - Fræðsla - Hreyfing - Slökun,
General-prufa 50 % afsláttur
Frekari upplýsingar
kriunes@kriunes.is • 897 0749 og 898 7522
Anna Katrín Ottesen sjúkraþjálfari
SMJÖRLÍKI EHF.
FUNDARBOÐ
Stjórn Smjörlíkis ehf. boðar til aðalfundar Smjörlíkis ehf. 2011,
sem verður haldinn þriðjudaginn 19. apríl 2011 að Stuðlahálsi
1, Reykjavík, kl. 12.00.
DAGSKRÁ:
1 Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár
2 Endurskoðaður ársreikningur félagsins fyrir síðastliðið
starfsár lagður fram til samþykktar og tekin ákvörðun um
hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reiknings-
árinu og framlög í varasjóð
3 Breyting samþykkta
4 Ákvörðun um greiðslu arðs
5 Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna á komandi starfsári
og greiðslu til endurskoðenda fyrir liðið starfsár
6 Kosning stjórnar
7 Kosning endurskoðanda
8 Önnur mál
Reykjavík, 11. apríl 2011
Stjórn Smjörlíkis ehf.