Fréttablaðið - 03.05.2011, Síða 14
14 3. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
B
eint lýðræði er í sókn víða um heim, einkum á Vestur-
löndum. Yfir helmingur þjóðaratkvæðagreiðslna, sem
efnt hefur verið til frá frönsku byltingunni, hefur átt
sér stað á undanförnum 25 árum. Nýlega ákváðu íbúar
í Suður-Súdan í þjóðaratkvæðagreiðslu að stofna eigið
ríki og Bretar ganga senn að kjörborðinu og greiða atkvæði um
hvort breyta eigi kosningakerfinu, svo dæmi séu nefnd.
Íslendingar hafa á rúmu ári efnt til tveggja þjóðaratkvæða-
greiðslna, þeirra fyrstu á lýðveldistímanum. Nú situr stjórn-
lagaráð og mótar tillögur um
hvernig megi efla frekar beint
lýðræði á Íslandi og beita þjóð-
aratkvæðagreiðslum í auknum
mæli. Um það virðist jafnframt
vera þverpólitísk samstaða.
Hið virta tímarit The Econ-
omist hefur barizt ötullega
fyrir beinu lýðræði. Ýtarleg
úttekt um efnið birtist þar í árslok 1996 og hafði mikil áhrif á
umræður víða, einnig hér á landi. Það sætir því tíðindum þegar
The Economist birtir nýja úttekt og virðist hafa fengið talsverða
bakþanka, eins og rakið var í grein í helgarblaði Fréttablaðsins.
Efasemdir blaðsins eru einkum til komnar vegna reynslunnar
af tíðum þjóðaratkvæðagreiðslum í Kaliforníu, en þar rambar
ríkið á barmi gjaldþrots, meðal annars vegna mislukkaðra
ákvarðana, sem teknar hafa verið í þjóðaratkvæðagreiðslum,
að sögn The Economist. Þannig hafa almennir kjósendur bæði
ákveðið að lækka skatta og greitt góðum málum sem auka útgjöld
atkvæði sitt. Það getur bara endað illa.
Í ríkinu er framkvæmdarvaldið sagt veikburða og löggjafar-
valdið nánast lamað vegna þess hversu auðvelt er að efna til
almennra atkvæðagreiðslna. Beint lýðræði er ekki lengur örygg-
isventill eins og það átti upphaflega að vera og ekki heldur aðhald
með elítuhópum, heldur geta sérhagsmunahópar nýtt sér það til
að koma sínum málum inn í löggjöf sem er oft gríðarlega flókin
og hefur furðulegar afleiðingar, segir tímaritið.
The Economist segir að beint lýðræði eigi að vera sá öryggis-
ventill sem upphaflega var lagt upp með. Tillögur eigi að vera
stuttar, skýrar og skiljanlegar, tilgreint hvað þær kosti og hvernig
eigi að fjármagna þær. Þá eigi þjóðþingið að geta gert breytingar
á tillögum.
Allt þetta og margt fleira sem er að finna í úttekt The Econ-
omist er umhugsunarefni, nú þegar rætt er um að virkja beint
lýðræði í meiri mæli á Íslandi. Umræðan um beint lýðræði hefur
því miður talsvert einkennzt af því að fólk telji það einhverja
töfralausn og það eigi ekki að vera neinum takmörkunum háð.
Alls konar málsmetandi fólk vill til dæmis endilega láta þjóð-
ina kjósa um fiskveiðistjórnunarkerfið, án þess að láta þess að
nokkru getið hvernig hin einfalda og skiljanlega spurning á kjör-
seðlinum eigi að hljóða. Og furðu margir sáu ekkert að því að
greiða í tvígang atkvæði um hugsanleg ríkisútgjöld í Icesave-mál-
inu. Það mál er um margt sérstakt, en ætti ekki að verða fordæmi
fleiri slíkra atkvæðagreiðslna um fjárhagsmálefni.
Ef ekki er hugað að nauðsynlegum takmörkunum á beinu lýð-
ræði og áframhaldandi meginhlutverki Alþingis í lýðræðisferlinu
getur Ísland endað sem önnur Kalifornía. Viljum við það nokkuð?
HALLDÓR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Sameinuðu þjóðirnar efndu til Alþjóða-dags tjáningarfrelsis, sem haldinn er
hátíðlegur á hverju ári um allan heim 3.
maí, til að vekja athygli á meginreglum
frjálsrar fjölmiðlunar og minnast þeirra
sem hafa barist og látið lífið við að reyna
að framfylgja þeim. Á þessu ári taka
Bandaríkin höndum saman við Menn-
ingarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna
(UNESCO) og halda alþjóðadag tján-
ingarfrelsis hátíðlegan í fyrsta skipti í
Washington, D.C.
Yfirskrift þessa árs, „Fjölmiðlar 21.
aldar – Nýir miðlar, nýjar hindranir“
endurspeglar þær miklu breytingar á
aðgengi að upplýsingum sem stafræna
tæknin hefur gert mögulegar. Internet-
ið er alþjóðlegt tæki sem hefur magn-
að kröfur um tjáningarfrelsi og önnur
alhliða mannréttindi, auðveldað líflegar
og opnar umræður um fjölbreytt málefni
og myndað tengsl á milli borgara innan
ríkja og á milli fólks úti um allan heim.
Íslendingar og Bandaríkjamenn hafa
skuldbundið sig til að styðja fjölmiðla-
frelsi. Við vitum að það er nauðsynlegt
að stofna og hlúa að sjálfstæðum, fjöl-
breyttum og frjálsum fjölmiðlum til að
siðuð og lýðræðisleg þjóðfélög geti þró-
ast bæði heima fyrir og annars staðar í
heiminum. Blaðamenn gegna lykilhlut-
verki við að greina stefnur og strauma,
viðhalda trúverðugleika og segja fréttir
almenningi til hagsbóta. Í frjálsum sam-
félögum starfa fjölmiðlar óttalaust og
ákveða innihald sitt, bæði hvað fréttir
varðar og annað efni eins og menningar-
umfjöllun, án takmarkana eða lagasetn-
inga yfirvalda.
Við stöndum frammi fyrir þýðingar-
miklum breytingum í sögu heimsins. Um
allan heim krefst fólk frelsis, gegnsæis
og sjálfsákvörðunarréttar. Ný stafræn
tækni styður þennan málstað á hrað-
virkari og víðtækari hátt en nokkru sinni
fyrr, og blaðamenn gegna lykilhlutverki
í þessum málum. Til allrar óhamingju
hafa margir þeirra látið lífið eða slas-
ast þegar þeir hafa leitast við að segja
fréttir af þeim alvarlegu viðfangsefn-
um sem við stöndum nú frammi fyrir. Á
Alþjóðadegi tjáningarfrelsis heiðrum við
arf þeirra og fórnir sem þeir færðu til að
tryggja að allir, alls staðar fengju notið
grundvallarréttar til frjálsrar fjölmiðl-
unar.
Alþjóðadagur tjáningarfrelsis
Mann-
réttindi
Luis Arreaga
sendiherra
Bandaríkjanna á
Íslandi
TVEGGJA TÍMA
HLÁTURSKAST... MEÐ HLÉI
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
„Mjög vel heppnaður farsi, hraður
og ótrúlega fyndinn“ – IÞ, Mbl
Össur með hausinn á
Það var grátlegt að fylgjast með ofsa-
fengnu gleðiviðbragði Vesturlanda
þegar fregnir bárust af því í gærmorg-
un að Bandaríkjaher hefði drepið
hryðjuverkaleiðtogann Osama bin
Laden. Flestir hefðu haldið að það
væri keppikefli siðaðra manna
að klófesta óbermi á borð við
hann lifandi og rétta yfir þeim.
Því var ánægjulegt að heyra að
utanríkisráðherra Íslands, ólíkt
mörgum starfsbræðrum
sínum erlendis, er enn
með hausinn skrúfaðan
sæmilega rétt á. Hann
féllst á að andlátið
markaði tímamót, en
sagði að sér hefði verið kennt í æsku
að gleðjast ekki yfir dauða nokkurs
manns. Það var skynsamlega mælt.
180°
Einu sinni sögðu stjórnvöld að við
þyrftum að semja um Icesave af því
að allar líkur væru á að Íslendingar
myndu tapa máli fyrir EFTA-dóm-
stólnum. Það dugði ekki til. Nú
segja stjórnvöld blasa við að
rétturinn sé okkar megin. Vísa beri
málinu frá. Þetta er ekki sann-
færandi.
Eftirmenn sáttarinnar
Í dag verður kjörinn nýr forseti
og varaforseti borgarstjórnar.
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og
Sóleyju Tómasdóttur kom ekki nógu
vel saman við meirihlutann til að
geta hugsað sér að sinna störfunum
lengur. Það kom ekki á óvart. Nú þarf
að finna eftirmenn þeirra. Fregnir
herma að það verði þó ekki næstu
menn á lista meirihluta-
flokkanna utan borgar-
stjóra og formanns
borgarráðs, þau
Oddný Sturludóttir og
Einar Örn Benediktsson.
Býsna líklegt er að Björk
Vilhelmsdóttir fái aðra
stöðuna. Hún hefur
jú verið þriðji forseti.
stigur@frettabladid.is
Beint lýðræði þarf að vera takmörkunum háð:
Önnur Kalifornía?