Fréttablaðið - 03.05.2011, Blaðsíða 23
reiðhjól
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011
Hjólaðu
í sólinni
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
Verð 69.900 kr.
Verð 59.900 kr.
●SKIPTU UM DEKK Slétt
dekk gefa minna viðnám við
götuna en mjög gróf dekk svo
hjólið fer hraðar yfir.
Margir eiga nokkurra ára
gömul fjallahjól á mjög grófum
dekkjum en finnst leiðinlegt
að hjóla á þeim á götum og
stígum. Þeir þurfa þó ekki að
fjárfesta í nýju hjóli heldur geta
skipt út dekkjunum og endur-
nýjað hjólið.
● ALHLIÐA VIÐGERÐA
ÞJÓNUSTA Hjá Markinu er
rekið alhliða varahluta- og við-
gerðaverkstæði. Tekið er við
öllum hjólum af öllum gerðum,
hvort sem þau hafa verið keypt
hjá Markinu eður ei. Á vorin er
gott að láta yfirfara reiðhjólin,
sérstaklega ef þau hafa staðið
úti yfir veturinn. Með öllum hjól-
um keyptum hjá Markinu fylgir
frí upphersla innan tveggja
mánaða eftir kaupin.
● ÚRVAL FYRIR ÞAU
YNGSTU Hjá Markinu er gott
úrval af hjólum fyrir yngstu hjól-
reiðamennina. Ítalska hjólreiða-
merkið Italtrike hefur fengist hjá
Markinu í yfir 20 ár en Italtrike-
hjólin eru létt, þægileg og stöð-
ug. Öryggis- og aukahlutir svo
sem hjálmar, bjöllur, körfur og
fleira fást einnig í versluninni.
Markið Sportvöruverslun
hefur selt reiðhjól í 30 ár en
fyrirtækið var stofnað af Braga
Jónssyni árið 1980. Verslunin
er enn í eigu fjölskyldunnar
og er sonur Braga, Brynjar Þór,
verslunarstjóri í dag en Markið
er ein af stærstu sérhæfðu
reiðhjólaverslunum á landinu.
„Við byrjuðum reksturinn við
Suðurlandsbraut en fluttum svo í
Ármúla 30 og stækkuðum þá búð-
ina verulega. Með árunum hafa
skíðavörur og þrektæki bæst við
vöruflokkana hjá okkur en að-
aláherslan er á reiðhjól og allan
búnað sem þeim fylgir,“ segir
Brynjar Þór. „Við bjóðum upp á
allar tegundir hjóla fyrir alla hjól-
reiðamenn, allt frá eldri ömmum
sem vilja þægileg hjól með körfu
og upp í stráka sem vilja stökkva
yfir bíla.“
Meðal vörumerkja sem fást
í Markinu eru Scott, Giant og
Norco en allir þessir framleiðend-
ur eru þekktir fyrir gæðafram-
leiðslu. Eins býður verslunin upp
á aukahluti fyrir hjólreiðamann-
inn, hjálma, fatnað og skó.
„Scott framleiðir til dæmis
mikið af sérhönnuðum hjólreiða-
fatnaði sem gott er að hreyfa sig
í. Við seljum fatnað bæði innan
undir og utan yfir föt og allt sem
þarf til að stunda hjólreiðar allan
ársins hring. Starfsfólk verslun-
arinnar hefur áralanga reynslu og
þekkingu og aðstoðar viðskipta-
vini við val á hjólum og búnaði
sem hentar hverjum og einum.“
Brynjar segist finna fyrir tals-
verðri aukningu í sölu reiðhjóla.
Nú séu einnig hin svokölluð „Com-
fort“ hjól að sækja í sig veðrið en
á þeim situr hjólreiðamaðurinn
beinn í baki með dempara undir
hnakknum og hægt er að stilla
stöðuna á stýrinu.
„Það er þægilegra að sitja á
„Comfort“ hjólum en hefðbundn-
um fjallahjólum og þau kaup-
ir hinn venjulegi hjólreiðamaður
sem fer út í stutta hjólreiðatúra.
Sá hópur er að stækka. Reyndar
fer sá hópur líka stækkandi sem
notar hjól sem samgöngutæki og
hjólar á hverjum degi til vinnu.
Fólk er að átta sig á að það er
þægilegt að hjóla hérna og einn-
ig spilar hátt eldsneytisverð inn
í. Fólk talar jafnvel um að það taki
einungis einn mánuð að spara upp
í hjólið.“
Hverju hjóli sem keypt er í
Markinu fylgir frí upphersla,
sé komið með það innan tveggja
mánaða frá kaupunum. Brynjar
segir mikilvægt að láta yfirfara
hjólið eftir nokkurra vikna notk-
un.
„Á fyrstu vikunum teygjast
allir vírar. Það þarf að strekkja
á bremsum, herða bolta og fara
yfir gíra. Þetta eykur endinguna
á hjólinu til muna. Eftir veturinn
er líka gott að koma með hjólin og
láta líta yfir þau, sérstaklega ef
þau hafa staðið úti,“ segir Brynj-
ar og hvetur fólk til að geyma
hjól innandyra sé það hægt. Þá
sé mikilvægt að halda reiðhjólum
hreinum, smyrja keðjur og hjól
reglulega og passa að nóg loft sé
í dekkjum og að bremsupúðar séu
ekki eyddir.
„Við erum einnig með verk-
stæði hér á staðnum og sinnum
allri viðgerða- og varahlutaþjón-
ustu á öllum hjólum, hvort sem
þau hafa verið keypt hjá okkur
eða ekki.“
Heimasíða verslunarinnar er
www.markid.is
Reiðhjól fyrir ömmur og
STÖKKVANDI STRÁKA
Brynjar Þór Bragason, verslunarstjóri hjá Markinu sportvöruverslun, hvetur fólk til
að geyma reiðhjólin inni yfir veturinn sé hægt að koma því við. Einnig sé nauðsyn-
legt að halda hjólinu hreinu og smyrja reglulega keðjur og hjól. MYND/GVA