Fréttablaðið - 03.05.2011, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011
Mongoose er þekktasta merkið
í hjólabúðinni GÁP í Faxafeni
7. Verslunarstjórinn Mogens
L. Markússon segir sölu á
götuhjólum alltaf að aukast.
Við erum með hjól fyrir allan aldur,
alveg frá tveggja ára og upp
úr, og auðvitað alla flór-
una, barnahjól, fjalla-
hjól og götuhjól,“ segir Mogens
Markússon, verslunarstjóri hjá
GÁP, en hann finnur fyrir mikilli
söluaukningu í götuhjólum eftir
að bensínið hækkaði. „Fólk er líka
að fatta að það þarf ekki fjallahjól
í Reykjavík. Hér eru engin fjöll,“
bendir hann á.
Þótt fjallahjól séu góð til síns
brúks segir Mog-
ens léttara að
hjóla á götu-
hjólum, þau
séu á stærri og
mjórri dekkjum,
þannig að fólk
komist hraðar
og sitji meira
upprétt. „Full-
orðnir taka
þessum hjólum
fegins hendi og
við erum með mikið úrval af þeim,
bæði fyrir dömur og herra,“ tekur
hann fram.
Stærsta merkið sem GÁP selur er
Mongoose. „Svo erum við með hið
heimsfræga merki Cannondale. Það
eru amerísk hjól, handsmíðuð og
gríðarlega vönduð,“ lýsir Mogens.
Að sjálfsögðu selur GÁP ekki
bara hjólin sjálf heldur „allt sem
við á að éta“, þar með talin bretti því
flest hjól koma brettalaus að sögn
Mogens. „Öll hjól eru með standara,
bjöllu og glitaugu en fullorðið fólk
vill helst fá bretti líka því það rignir
svo mikið hjá okkur og það vill ekki
hafa vatnsausturinn upp á haus,“
segir hann. Þegar haft er orð á að
einkennilegt sé að brettin skuli ekki
vera staðalbúnaður útskýrir hann
það. „Það þykir ekki mjög
töff að hafa bretti og
krakkarnir vilja ekki
bretti á fjallahjól-
in. Sumir vilja
þau ekki heldur
á götuhjólin og
þá er verra að þurfa að rífa þau af.
En við erum eldsnöggir að setja þau
á því við erum með flott verkstæði
og á meðan gengið er frá kaupum
er búið að setja á bretti, bögglabera
og lás, ef þess er óskað. Sem sagt
allt klárt.“
Talandi um verkstæði. Tekur
GÁP hjól í yfirhalningu eftir vet-
urinn? „Já, já, við tökum hjól í upp-
herslu og yfirhalningu og alltaf
þegar við seljum nýtt hjól þá er frí
upphersla innan þriggja mánaða frá
kaupdegi. Þá herðum við upp hjól-
in, strekkjum vírana, stillum gírana
og bremsurnar. Flestir nýta sér það.
Spurður hvort fólk sé almennt
með tuttugu gíra og þar yfir á
hjólunum sínum svarar Mogens
hæverskur. „Það er nú ein og ein
sem vill bara þriggja til fimm gíra
hjól og þegar kemur fram á sumar
fáum við afskaplega skemmtileg
frúarhjól og herrahjól sem koma
með brettum, eru með fótbremsu
og ljósum. Þau eru fyrir 101. Afar
skemmtileg hjól en ekki til lang-
ferða.“
Strekkjum vírana og
stillum gírana
Hjólavagnar fyrir krakkana eru vinsælir,
enda þurfa krílin að komast á leik-
skólann. GÁP er með tvær gerðir af
vögnum. Þessi er með álbotni og
gjarðir og grind úr áli. Hann
kostar 75.900 krónur.
Strákarnir í hjólabúðinni GÁP stilltu sér upp fyrir ljósmyndarann. Þeir Arnar Gunnarsson, Mogens Markússon, Daniel Ostapiuk og
Bjarki Gíslason. MYND/VALLI
Margir kaupa sér dýr hjól í dag
að sögn Mogens, verslunarstjóra
í GÁP. „Hjól fyrir hundrað þús-
und krónur samsvarar því að
fylla tankinn á meðalfólksbíl tíu
sinnum. Þó að fólk kaupi sér hjól
fyrir 100-150 þúsund, hjálm og
galla og allan pakkann þá er það
fljótt að borga sig ef það getur
losað sig frá bílnum. Ég heyri það
hér í búðinni að það er mikið um
að fólk sé að losa sig við bílana
og ætli bara að hjóla. Í kringum
keppnina Hjólað í vinnuna, sem
er að hefjast, hefur líka verið
gríðarleg sala í hraðamælum því
allir þurfa að safna kílómetrum,“
upplýsir hann.
Margir eru með töskur á
bögglaberunum að sögn Mogens
þar sem fólk geymir aukaföt,
nesti og hvaðeina sem það þarfn-
ast. Mikið úrval er af slíkum
töskum í GÁP í Faxafeni 7.
Með aukaföt og nesti
Fjallahjól með bretti og töskur hentar
vel í sumarferðalögin.
MYND/GVA
WWW.GAP.IS
Ek
og á mjög svo rennilegum dekkjum sem þýðir minni áreynsla.
M
flo
M
Snilldar fjallahjól fyrir þá sem vilja meira.
REIÐHJÓL
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
komdu og skoðaðu úrvalið!