Fréttablaðið - 03.05.2011, Page 26
3. MAÍ 2011 ÞRIÐJUDAGUR4 ● reiðhjól
Kría Hjól hefur stimplað
sig inn sem paradís
hjólreiðamannsins, en þar fást
nú heimsverðlaunagripir frá
Specialized.
„Við erum stoltir yfir að geta boðið
Íslendingum hjólin frá Special-
ized, en það er stærsti hjólafram-
leiðandi heims og á í sínum röðum
heimsmeistara í öllum keppnum
hjólreiða, eins og Tour de France
síðastliðin tvö ár,“ segir Emil Guð-
mundsson, einn þriggja eigenda
Kríu Hjóla, um heitustu hjólin í
bænum.
„Hjá Specialized er mikið lagt
í hvert einasta hjól og draumur að
hjóla á þeim hvort sem það er inn-
anbæjar eða yfir Fimmvörðuháls.
Úrvalið er breitt og allir geta fund-
ið hjól við hæfi, en markmið okkar
eftir sem áður er að velja hjól sem
samræmist útliti og stíl hvers og
eins, rétt eins og þegar þeir velja
sér flíkur,“ segir Emil.
Aðalsmerki Kríu frá upphafi
hefur einmitt verið að sérsníða og
sérsmíða reiðhjól eftir óskum, en
einnig dubba þeir upp gömul hjól
viðskiptavina.
„Flestir koma hingað með
ákveðinn karakter af hjólum í
huga og þá setjumst við niður
með þeim og leiðbeinum í rétta
átt. Möguleikarnir eru endalaus-
ir, hvort sem keðjan á að vera
lituð eða hnakkurinn sérsmíðað-
ur, en við flytjum einnig inn hand-
smíðaða leðurhnakka og fylgihluti
sem ekki hafa áður boðist íslensk-
um hjólreiðamönnum,“ segir Emil
en þess má geta að handsmíðuðu
hnakkarnir hafa verið framleidd-
ir frá árinu 1866.
„Hjól er ekki bara hjól heldur
hlutur sem fær þig til að líta vel
út. Þannig hjólabúð hefur alltaf
vantað og við viljum veita persónu-
lega þjónustu þannig að menn fari
ánægðir út með háklassa gæði,
eftirsóknarvert útlit og varanlega
eign. Búðin er full af hjólanördafíl-
ingu þar sem hægt er að sjá hvern-
ig hjólamennska er lífsstíll og hvað
er kúl við hjólin, en sum hjól eru
reyndar svo vel hönnuð og falleg
að þau eru í raun eins og mublur.“
Hjól heimsmeistaranna
David Robertson og Emil Guðmundsson í verslun Kríu við Hólmaslóð. Báðir eru landskunnir hjólreiðamenn og miklir reynslu-
boltar sem keppt hafa á hjólum og eiga þau mörg til skiptanna í daglegum hjólaferðum.
● NOKKRAR MIKILVÆGAR STAÐREYNDIR UM KRÍU
• Kríu stofnaði David Robertson á annarri hæð lítils verkstæðishúsnæðis
á Hólmaslóð 4 í mars 2009.
• Í ársbyrjun 2011 flutti Kría í 115 fermetra verslunarhúsnæði á Hólma-
slóð 2, þar sem hún rekur einnig verkstæði.
• Kría hefur einkaleyfi á sölu Specialized Bicycles á Íslandi.
• Specialized var stofnað í Bandaríkjunum 1974. Það hóf framleiðslu á
fyrsta markaðssetta fjallahjóli heimsins, Stumpjumper, árið 1981 en
það er enn framleitt í dag.
• Specialized er eitt þriggja bestu hjólamerkja heims. Á þeim hafa
hjólagarpar unnið fjölda heimsmeistaratitla í þríþraut, fjallabruni
og hjólreiðakeppnum, en síðustu tveir sigurvegarar Tour de France
hjóluðu einmitt á Specialized-hjólum.
• Kría býður frábæran afslátt á fyrirfram pöntuðum Specialized-reið-
hjólum.
• Kría rekur hjólaleigur við farfuglaheimilin í Reykjavík.
• Kría stendur fyrir spennandi hjólreiðaferðum með leiðsögumönnum.