Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.06.2011, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 28.06.2011, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011 Með hjálp internetsins er hægt að undirbúa ferðalög innanlands á þann máta að sumarfríið verður þægilegt, fjölbreytt og síðast en ekki síst öruggt. WWW.VEGAGERDIN.IS Allt á einum stað um umferð, færð, veður og ástand vega. Ætti að vera upphafssíða ökumannsins. WWW.NAT.IS Mjög ítarlegur og vandaður þjónustu- og upplýsingavefur fyrir ferðamenn, á íslensku og ensku, sem dekkar allt landið. Á síðunni er meðal annars hægt að fá upplýsingar um gistingu, tjaldstæði, skoðunarverða staði, ferðir um hálendið, ferðaáætl- anir, stangveiði, golf, menningu og sögu. Heimsóknir eru um 60.000 á mánuði. WWW.SVEIT.IS Ferðaþjónusta bænda rekur vefsíðu þar sem hægt er að fá upplýsingar um gistingu, mat og ýmsa afþrey- ingu sem bændur um allt land bjóða. WWW.FI.IS Ferðafélag Íslands er með upplýsing- ar um skemmtilegar gönguleiðir víða um land og úrval skipulagðra ferða. UTIVIST.IS Ferðafélagið Útivist heldur úti vönd- uðum vef þar sem meðal annars er að finna leiðarlýsingar og gátlista um fatnað, mat og nauðsynlegan farangur fyrir ferðalanginn. ALLIR.IS Langan lista má finna inni á vefsíðunni yfir alls kyns ferðavefi sem skipt er í flokka eftir landshlutum. Á síðunni skal smella á flipann „Ferðalög“ og velja þar „landshlutar“. EAST.IS Markaðsstofa Austurlands heldur úti síðunni þar sem finna má áhuga- verða áfangastaði á Austfjörðum. NORDAUSTURLAND.IS Fróðleikur, myndir og upplýsingar um svæðið frá Vaðlaheiði í vestri til Bakkafjarðar í austri, frá Vatnajökli til sjávar. WWW.NORTHWEST.IS Sögustöðum, náttúruperlum, kirkjum, handverki, söfnum og fleiru á Norðausturlandi eru gerð góð skil á vefnum. WWW.SOUTH.IS Markaðsstofa Suðurlands með afbragðs ferðavísi um svæðið. WWW.SVEITIR.IS Upplýsingavefur um ferðaþjónustu uppsveita Árnessýslu sem og við- burði á svæðinu. WWW.VESTFIRDIR.IS Allt um sögustaði og náttúruundur Vestfjarðakjálkans, sem og almenna ferðaþjónustu. WWW.WEST.IS Upplýsingabrunnur um ferðalög á Vesturlandi. WWW.VISITAKUREYRI.IS Ferðavefur fyrir ferðamenn á Akur- eyri og nágrenni. Gagnlegar síður fyrir ferðalagið Internetið auðveldar skipulagningu sumarfrísins. FLEIRA SNIÐUGT WWW.GERUMEITTHVAD.IS Viðburðavefur sem listar það sem er á döfinni víðs vegar um landið í tímaröð. Á forsíðunni birtast þeir viðburðir er teljast fjölskylduvænir í höfuð- borginni og í allt að 40 mínútna aksturs fjarlægð frá Reykjavík. Efst á síðunni eru svo flipar þar sem hægt er að velja viðburði er tengjast landsbyggðinni, útivist og hreyfingu og svo er hægt að skoða hvað er á dagskrá er hentar börnum, 20 ára og eldri og sér flipi er með tillögum fyrir eldri borgara. WWW.SAFETRAVEL.IS Slysavarnafélagið Landsbjörg rekur heimasíðuna sem ferðalangar eru eindregið hvattir til að kynna sér áður en lagt er af stað í ferðalag. Verk- efnið er í höndum fjölda aðila sem hafa það að markmiði að efla forvarnir og minnka slys í ferðamennsku og ferðaþjónustu hérlendis. Má þar meðal annars finna upplýsingar um öruggar samgöngur, nauðsynlegan útbúnað, hvernig umgangast skal stórbrotna og stundum hættulega náttúru Íslands og mikilvæg öryggisatriði í ferðamennsku. Þórsmörk og Landmanna- laugar, daglega í sumar! Með Trex verður auðvelt að heimsækja þessar náttúruperlur í óbyggðum Íslands, með daglegum rútuferðum frá 1. júlí til 15. ágúst. Brottför frá Tjald- stæðinu Laugardal kl. 07.45 og Ferðafélagshúsinu Mörkinni 6, kl. 08.00. Pantið fyrirfram! Trex - Hópferðamiðstöðin ehf. Hesthálsi 10 • 110 Reykjavík, info@trex.is • www.trex.is Sími: 587 6000Finndu okkur á facebook: Trex - Travel Experiences Við erum á

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.